Læknablaðið - 01.06.1970, Side 69
LÆKNABLAÐIÐ
105
oft er erfitt að átta sig á dýpt vatnsbruna, og svo er hitt, að þeir
dýpka stundum af ofangreindri ástæðu.
Á 11. mynd sést, að tveir þi’iðju hlutar harnanna voru farnir
heim innan þriggja vikna. Þetta voru 1. og 2. stigs vatnsbrunar,
sem greru eðlilega; börn, sem lögð voru inn gagngert til lagfær-
inga á afleiðingmn bruna, og ýmsir mimiiháttar brunar.
Fæð sjúklingamia leyfir ekki útreikninga á meðallegudaga-
fjölda hvert árið um sig, svo að nokkurt vit sé í. Heildai'legudaga-
fjöldirm öll árin er 4.811.
Gerðar hafa verið plastiskar aðgei'ðir á 47 börnum eða 25%
allx’a sjúklinganna. Eru það vefjaflutningar, lagfæringar á con-
tracturum, flipaplastikur o. fl.
Á 12. mynd má sjá fjölda barnanna, sem hvert ár gengu undir
aðgerðir. Ekkert heildareftirlit eða skoðun hefur fai’ið frarn á
þessurn sjúklingum, þannig að ekki er vitað, hversu mörg þeirra
hera varanleg merki.
Ég ætia mér ekki að íæyna að leggja dóm á meðferðina, sem
þessi böi'n hafa fengið. Meðan allir leggja sig sem bezt frarn og
eigin í-eynsla og annarra er skynsamlega hagnýtt, ætti ekki að
þurfa að kvarta.
57 58 59 60 61 62 63 64 65 66 67 68 69
12. mynd. Fjöldi sjúklinga, sem gekkst undir plastiska skurðaðgerð.