Læknablaðið - 01.06.1970, Blaðsíða 57
LÆKNABLAÐIÐ
97
virðist mega álykta, að drengir séu meira fyrír sér og meiri fikt-
arar en telpur allt frá fyrstu tíð.
Hlutur brunatilfella á barnadeildinni
Heildarsjúklingafjöldinn á barnadeildinni hefur farið jafnt
vaxandi frá ári til árs. Hann fór yfir 700 árið 1964, en var á síð-
asta ári 1244. Hundraðstala brunasjúklinga hefur einnig aukizt
frá því að vera kringum 1% fyrri árin upp i 2.5—3% hin síðari.
Ég tel, að þessi aukning stafi fyrst og fremst af því, að nú
eru langflestir þeirra, sem verða fyrir brunaslysum, a. m. k. á
Reykjavikursvæðinu, lagðir á Landspítalann, en áður var þeim
dreift. Ástæðan fyrir því er m. a. sú, að sá spitali hefur í sinni
þjónustu plastic kirurga. Einnig má vera, að nú séu böm lögð
inn með tiltölulega litla bruna, sem áður hefðu verið meðhöndl-
aðir á ferli (3. mynd). Hvort um er að ræða raunverulega aukn-
ingu bruna, verður ekkert sagt.
3- mynd. Frum- og endurinnlagnir brenndra barna fært sem hundraðs-
tala allra innlagna á D VII.
Áður var talsvert um, að börn kæmu á barnadeildina eftir að
hafa verið meðhöndluð aimai’s staðar, en slikum innlögnum hefur
nú fækkað, þar sem börnin koma strax (4. mynd).