Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.06.1970, Síða 50

Læknablaðið - 01.06.1970, Síða 50
92 LÆKNABLAÐIÐ hann hafi lært að kenna. Reynslan sker svo úr um, þegar starf er hafið, hvort kennari reynist jafnhæfur til kennslu og rannsókna. En „vant er tveimur herrum að þjóna og vera báðum trúr“, segir málshátt- urinn, og oftar líður kennslan vegna rannsóknanna en rannsóknirnar vegna kennslunnar. Vísindarannsóknir draga fé að skólunum og veita kennurum frægð og tækifæri til frekari frama, en á þeirri braut er kennslan þeim frekar fjötur um fót, þar sem hún er ekki metin til jafns við ritstörf og rann- sóknir. Öllum er þó ljóst, að nauðsynlegt er háskólakennurum að vinna að sjálfstæðum rannsóknum. Slík störf eru stöðug hvatning við kennsl- una og beina kennurum og stúdentum inn á nýjar brautir. Á þennan hátt hafa einnig flestar framfarir læknavísindanna orðið, og á háskól- unum hvílir sú skylda að tryggja þessa þróun með því að ráða til sín vísindamenn og veita þeim aðstöðu til starfa. Vandinn er sá að rata hinn gullna meðalveg milli rannsókna og kennslu, ef sama manni eru ætluð bæði störfin. Ein leið til þess að jafna metin milli rannsókna og kennslu virðist vera sú að krefjast menntunar í uppeldis- og kennslufræðum af um- sækjendum um kennarastöður við háskólana. Við það vex virðing kenn- arastarfsins sem slíks. Ánægja kennaranna með þann hluta starfsins mun einnig aukast, þegar þeir vita og finna, að þeir eru vandanum vaxnir, því að ekki er grunlaust um, að sumir hinna misheppnuðu há- skólakennara líði í raun og veru af reynsluleysi við kennsluna og finni sig betur komna við rannsóknastörfin, þar sem þekking þeirra er meiri. Einn erindaflokkur þingsins byggðist á greinargerðum fulltrúa Norðurlandanna fimm um núverandi menntun læknakennara í þessum löndum. Kom skýrt í ljós, að til þessa hefur menntun læknakennara yfirleitt ekki innifalið uppeldis- og kennslufræði, og svipað mun vera um menntun meirihluta annarra háskólakennara. Við danska, norska og sænska læknaskóla eru nú hafnar tilraunir til þess að bæta úr þess- um menntunarskorti kennaranna, en finnskir skólar og læknadeildin hér hafa enn ekkert aðhafzt í þessu efni. Fleiri þjóðir eiga við þetta vandamál að stríða, og í Bandaríkjunum kvarta læknanemar t. d. sáran undan lélegri kennslu og benda til samanburðar á afburðakennslu á lægri skólastigum og við ýmsar aðrar háskóladeildir. Þetta er mörgum bandarískum forystumönnum læknakennslu áhyggjuefni, því að þeir telja læknaskólana missa af mörgum góðum nemendum til annarra háskóladeilda, þar sem meiri kröfur eru gerðar til hæfni kennaranna til kennslu. Við skulum nú aðeins líta á málið frá sjónarhóli íslendinga. Há- skóli Islands velur kennara sína fyrst og fremst úr röðum þeirra, sem getið hafa sér orðstír vegna rannsóknarstarfa, en þrátt fyrir það að þeim eru ætluð kennslustörf jafnframt rannsóknastörfum, er ekki sér- staklega óskað eftir menntun eða reynslu í kennslu, þegar stöður eru auglýstar. Ef læknadeildin ætlar að fara að tilmælum þings Nordisk Federation för Medicinsk Undervisning varðandi menntun kennara í uppeldis- og kennslufræðum, mun hún reka sig á, að næsta illa er búið að þessum greinum í skólum hérlendis. Aðeins eitt kennaraembætti er í uppeldisfræði við háskólann og tilheyrir heimspekideild. Fer kennslan
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.