Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.06.1970, Side 70

Læknablaðið - 01.06.1970, Side 70
106 LÆKNABLAÐIÐ Ekki eru memi á einu máli um, hvort betri árangur náist á sér-brunadeildum. Sumir segja, að hvergi þrífist hættulegir sýklar ])etur en þar. Fáar nýjungar hafa verið teknar upp hér í meðferð á bruna- sjúklingum í seimii tið. Helzt finnst mér því áhótavant, sem varð- ar hreinlæti og sóttvarnir. Umræður Erfitt er að meta tjón, sem hlýzt af brunum á fólki. Verður það ekki gert á sama mælikvarða og annað brunatjón. Ýinsar innri afmyndanir geta menn liorið býsna vel, en mikil ytri lýti er erfitt að bera. Þrátt fyrir nýja tækni og tækifæri til lagfær- inga er það önnur hlið málsins, sem leggja þarf stóraukna áherzlu á, en það er að koma í veg fyrir þessi slys, sem iðulega eru svo óþörf. Yfirgnæfandi meirihluti bamanna, sem hér hefur verið rætt um, hafa hrennzt vegna gáleysis fullorðinna. Mikið hefur verið gert á siðari áriun til að koma í veg fyrh* slys á ýmsum sviðum. Nokkur áherzla hefur verið lögð á eldvam- ir, en mjög litið verið gert að því að hvetja fólk til aukinnar var- úðar á heimilum. Nauðsynlegt er að brýna fyrir fólki hætturnar, er leynast innan veggja heimilisins, sem á að vera hinn öruggi samastaður fjölskyldunnar. Minna má á, að hvorki eldhús né þvottahús eiga að vera leikherbergi barna og það sízt, þegar móð- irin er þar við störf. Slys í heimahúsum vekja minni athygli almemúngs en hin, sem utanhúss verða, þar sem lögregla og fjölmiðlar frétta sjaldan af þeim. Hér er óplægður akur fyrir einstaklinga og félög, sem vinna að almannaheill. HEEVHLDIR 1. Ófeigur J. Ófeigsson: Observations and experiments on the immedi- ate cold-water treatment for burns and scalds. Brit. J. Plast. Surg. 12:104, 1959. 2. Ófeigur J. Ófeigsson: Water cooling: Firstaid treatment for scalds and burns. Surgery 57:391, 1965. 3. Robinson, S. S.: The causes of bums of children in Scotland. Brit. J. Plast. Surg. 21:2:140, 1968. 4. Sörensen, B. og Thomsen, M.: Scand. J. Plast. Reconstr. Surg. 2:3, 1968. 5. Thomsen, M. og Sörensen, B.: Scand. J. Plast. Reconstr. Surg. 2:8, 1968.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.