Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.06.1970, Side 80

Læknablaðið - 01.06.1970, Side 80
Sjúklingurinn er 25 ára gömul stúlka Hún er nýgift. Hún hafði síðast tíðir fyrir meira en tveimur manuðum. Síðastliðna nótt fór að blæða frá leg- göngum, og hún fékk fljót- lega.'verk með blæðingun- um. Tveimur stundum síðar fékk hún hita og við kom- una snemma í morgun var hitinn 41,3°C. Hún kvartar undan miklum eymslum yfir neðanvert kviðarholið. Við skoðun sést, að leghálsinn er opinn, og þaðan er mikil út- ferð. Strok hefur verið gert hátt uppi í leggöngum og sent til ræktunar og í næmispróf. JÍL Allt að tveir sólarhringar geta Iiðið,^ð»tr.'eoí?yar -6' varðandi ræktun og næmizprítf. ' Hvaða meðferð vilduð. her^veút> - sjúkUngniúöh'^^^ hafi? Sjúkdómseinkenni benda til þess, að um fósturlát sé að ræða með ígerð í legi og byrjandi lífhimnubólgu. Hugsanlegt er, að penicillínasamyndandi stafýlókokkar séu þar að verki ásamt öðrum bakt-eríum. Nauðsynlegt er að byrja gjöf sýklalyfja undir- eins, og hyggilegt er að gefa lyf, sem er virkt gegn öllum venjulegum jákvæðum bakteríum. ORBENIN er virkt gegn stafýlókokkum, þ. á m. penicillínasamyndandi stafýlókokk- um, streftókokkum og pneumókokkum. Um helmingur allra ígerða í sambandi við fósturlát stafar af þessum bakteríum. Gjöf ORBENINS þegar í upphafi getur því, ef að líkum lætur, læknað eða komið í veg fyrir ígerðir í sambandi við fósturlát á skömmum tíma. ORBENIN (kloxacillínnatríum) er fram komið og framleitt hjá Beecham Research Laboratories, Brentford, Englandi, sem eru brautryðjendur í framleiðslu hálfsamtengdra penicillínafbrigða. Umboðsmaður er G. Ólafsson hf., Aðalstræti 4, Reykjavík, sem veitir allar frekari upplýsingar.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.