Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.08.1970, Page 78

Læknablaðið - 01.08.1970, Page 78
Góður svefn nótt eftir nótt, ef tekið er í dropa formi MOGADON® Nýjasta og öruggasta aðferðin við svefntruflunum 1. NÝTT. MOGADON verkar á nýjan hátt. Áhrif þess koma fram sem æskileg minnkun á starfsemi „limbiska“ kerfisins án þcss að hafa veruleg áhrif á aðra hluti heilans. Það hefur verndandi áhirf á þann lífeðlis- fræðilega þátt, sem sér um, að eðlilegur svefn fáist, þrátt fyrir ýmiss konar ytri eða tilfinninga- lega truflandi áhrif. Árangurinn verður þægilegur svefn. Venjuleg svefnlyf íþyngja öllu miðtauga- kerfinu og leggjast því á tiltölu- lega handahófskenndan hátt á öll svæði heilans. Þannig leiða þau eiginlcga til nokkurs konar djúp- svæfingar (anesthesia). 2. VERKUN. Tvíprófanir (double- blind tests) hafa staðfest, að MOGADON reynist vera annað hvort jafngott eða betra en beztu nútíma svefnlyf, hvað snertir skjóta byrjun, lengd og dýpt svefnsins og cinnig hvað viðvíkur líðan sjúklings, þegar hann vaknar. Hann sofnar fljótt, en eðlilega. Sjúklingurinn sefur vel, en á auðveit með að vakna. Hann vaknar endurnærður án nokkurra eftirkasta. MOGADON er skrásett vörumerki S.ÖRYGGI. MOGADON þolist sér- staklega vel, og það inniheldur aðeins minnsta skammt af eitur- efnum. Öryggissviðið er því sér- staklega vitt. Séu tekin inn 100 til 300 mg af MOGADON (þ. e. 20 til 60 sinnum meira en venju- legur skammtur), þá leiðir það til djúps svefns í nokkuð lengri tíma, en jafnframt slaknar á vöðvum, öndun vcrður róleg og blóðrás helzt eðlileg. Við samsvar- andi yfirskammt af öðrum al- mennum svefnlyfjum er yfirleitt mikil hætta á djúpum dásvefni eða dauða. Ef notað er hins veg- ar MOGADON er hætta á eitrun af slysni eða ásettu ráði mjög lítil.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.