Læknablaðið - 01.08.1970, Blaðsíða 62
138
LÆKNABLAÐIÐ
þar sem slík skipan mála er útilokuð í heilum landsfjórðungum, a. m. k.
um ófyrirsjáanlega framtíð. En í þessum landsfjórðungum býr fólk,
sem þarfnast læknisþjónustu.
í hvaða starfsgrein, sem er, hlýtur það alltaf að vera skemmtilegra
og þægilegra, ef fleiri en einn maður úr starfsgreininni geta unnið
saman. Reynslan er hins vegar sú, að þessu verður ekki ætíð við komið.
Með tilliti til þess, sem hér hefur verið sagt, tel ég algjöra nauð-
syn, að læknasamtök geri sér ljóst, að endurskipulagning heilbrigðis-
þjónustu dreifbýlisins verður því aðeins til raunhæfra úrbóta, að byrj-
að verði á því að breyta læknishéraðaskipuninni og skipta landinu nið-
ur í mismunandi stór héruð í samræmi við samgöngumöguleika og land-
fræðilegar aðstæður. Því næst verði að því unnið að koma upp í hverju
héraði heilbrigðismiðstöð, sem útbúin sé að tækjum og starfsliði skv.
nútímakröfum, og að því loknu verði læknar ráðnir að stöðvunum,
einn eða fleiri, eftir því sem stærð héraðanna gefur tilefni til.
Þegar þessu marki er náð, er ég ekki endilega viss um, að bezta
læknisþjónustan verði rekin í því héraði, sem flesta hefur læknana, og
því muni enginn þurfa að skammast sín fyrir að gerast læknir í ein-
mennings'héraði.
Daníel Daníelsson,
NESKAUPSTAB.
UM EFNISSKRÁ 55. ÁRGANGS LÆKNABLAÐSINS
Þessu hefti Læknablaðsins fylgir efnisskrá síðasta árgang-s,
sem birtist af vangá með blaðsíðutali í febrúarblaði. Nú er efnis-
skráin birt án blaðsíðutals og með titilsíðu, eins og venja hefur
verið.
Biður ritstjórnin afsökunar á þessum mistökum.