Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.10.1970, Page 13

Læknablaðið - 01.10.1970, Page 13
LÆKNABLAÐIÐ L/íKNAFÉLAG ÍSLANDS OG LÆKNAFÉLAG REYKJAVÍKUR Aðalrifstjóri: Ólafur Jensson. Meðritstjórar: Karl Strand og Þorkell Jóhannesson (L.Í.), Asmundur Brekkan og Sævar Flalldórsson (L.R.) 56. ÁRG. OKTÓBER 1970 5. HEFTI Jónas Hallgrímsson KENNSLUSJÚKRAHÚS Inngangur Undanfarið liafa birzt nokkrar greinar og rit um núverandi ástand og æsldlegt framtíðarskipulag sjúkrahúsa á Islandi.1,2,?,4,5 Sjúkrahúsmál hafa einnig verið tekin til umræðu á læknaþing- um.6,7 Greinar þessar og umræður hafa að mestu leyti beinzt að einu hlutverki sjúkrahúsanna, þ. e. a. s. lækningum. Lítið hefur verið rætt um tvö önnur aðalhlutverk sjúkrahúsanna, sem eru kennsla og visindastörf, nema það, að landlæknir hefur nýlega getið hlutverks Landspítalans sem háskólaspítala og bent á þátt spítalans í því að veita læknadeild kennsluhúsnæði.8 Raunin er sú, að ekki er unnt að skipuleggja starfsemi nútíma- sjúkrahúss án þess, að þessi þrjú hlutverk séu höfð til hliðsjónar. Enda þótt hlutverk sjúkrahúsanna utan Reykjavíkur sé fyrst og fremst læknisþjónusta, verður samt æskilegt að veita einhverja kennslu við þau og jafnframt að gefa læknum og öðru þjálfuðu starfsfólki tækifæri til sjálfstæðra vísindastarfa, ef áhugi er fyrir hendi. Með þetía sjónarmið fyrir augum má telja, að öll sjúkra- hús eigi að geta tekið að sér hlutverk kennslusjúkrahúss. Eftirfarandi grem fjallar annars vegar almennt um kennslu- sjúkrahús, byggingu þeirra, starfsemi og starfslið, og hins vegar um þessa þætti varðandi stofnanir á Islandi. Er einkum og sér i

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.