Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.10.1970, Side 23

Læknablaðið - 01.10.1970, Side 23
LÆKNABLAÐIÐ 147 eina klukkustund til flutnings fyrirlestursins. Fyrir sýnikennslu l)yrfti tvær klukkustundir, þ. e. eina klukkustund til undirbúnings og eina til kennslunnar. Til klínískrar kerinslu á deild þyrfti ekki nema eina klukkustund, þ. e. a. s. enginn undirbúningur væri nauðsynlegur. Ct frá þessum tölum var talið hægt að reikna að nokkru leyti dagvinnu hvers læknis og út frá henni fylla upp með fleiri læknum til þess að ná fulliun starfskrafti við sjúkra- deildina. 12. Stjórn kennslusjúkrahúss A sumum Norðurlandanna iiafa háskóladeildir fulltrúa í stjóm kennslusjúkrahúsanna, en öðrum ekki, en þar er náin samvinna milli sjúkrahússtjórnarinnar og háskólans. Lögð var áherzla á nauðsyn þessa sambands, og var af flestum talið æskilegast, að háskólinn ætti fulltrúa í stjórn kennslusjúkrahúsanna. 13. Val nýrra kennara Mikið var rætt um þau vandamál, sem verða til við útvíkkun kennsluskipulags, þar á meðal þegar kennsla er hafin á nýju sjúkrahúsi eða sjúkrahúsi, sem þegar er starfandi. Á nj'ju sjúkra- liúsi verður vandamálið auðveldlega leyst með því að gera þá kröfu til þeirra lækna, sem ráðnir eru að sjúkrahúsinu, að þeir hafi menntun og hæfileika til þess að taka að sér kennslu- og vísindastörf auk læknisstarfanna. Þegar um er að ræða sjúkra- hús, sem þegar er starfandi og gera á að kennslusjúkrahúsi, eru vandamálin meiri. I slíkum tilfellum var bent á möguleika þess að bjóða þeim læknum, sem þegar a'U fyrir á sjúkrahúsinu, að hæfni þeirra til kennslu yrði metin og eftir því mati yrði ákveðið. hvort þeir gætu tekið að sér kennarastöðu eða ekki. Ef mat er jákvætt, þ. e. a. s. læknirinn talinn hæfur, yrði hann gerður að kennara. Ef hann reyndist ekki hæfur, mundi þurfa að stofna aðra læknisstöðu samhliða og fá ráðinn í hana lækni, sem hæfur yrði talinn til þess að taka að sér kennarastöðuna. Að lokum var rætt um, á hvern hátt væri unnt og hver ætti að tryggja, að nægilega hæfir læknar veldust til starfa á kennslu- sjúkrahúsið. 1 Odense var sú regla höfð, að sjúkrahúsið átti rétt- inn til þess að velja lækna í yfirlæknisstöður, en umsækjendur um þær stöður, sem áttu jafnframt að vera prófessorsstöður, gengu undir hæfnismat læknaskólans, áður en stöðurnar voru veittar.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.