Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.1970, Síða 26

Læknablaðið - 01.10.1970, Síða 26
150 LÆKNABLAÐIÐ 24 stúdentum veittur kostur á að halda áfram námi. Skal ákvörð- un liverju sinni tilkynnt fyrir upphaf þess misseris, er prófið er haldið. Réttur stúdenta til framhaldsnáms skal miðaður við árangur fyrstaársprófs eftir nánari ákvörðun deildarinnar. Þeir stúdentar, sem standast fyi'sta árs próf, en eiga ekld kost á að halda áfram námi, svo og þeir, sem standast ekki próf, mega endm-taka prófin næsta ár og keppa þá við nýstúdenta á jafn- réttisgrundvelli.“ Þótt stúdentafjöldinn sé enn óákveðinn, er nauðsynlegt að fara að gera sér grein fyrir því, hversu mörgum stúdentum sjúki'a- húsin í Reykjavík geta tekið við til klínískrar kennslu núna og eftir að nýja reglugerðin hefur komið til framkvæmda. Hér verð- ui' aðeins tekið dæmi: Ef við hugsum okkur nálægt þrjátiu stúd- enta í hverjum árgangi, sem verður að telja hóflega tölu miðað við reynslu undanfarinna ára, verða skv. nýju reglugerð lækna- deildar 20—30 stúdentar samtímis við klinískt nám á lyfjadeild- um. Samkvæmt skýrslu borgarlæknis um sjúkrarúmaþörf í Reykja- vík árið 19704 verða á því ári samtals 200 rúm á lyfjadeildum sjúkrahúsanna þriggja í Reykjavík, og mun ekki vera fyrirhuguð frekari fjölgun þeirra í liráð. Samkvæmt þeim tölum, sem áður- nefnt þing í Odense lét fara frá sér um fjölda stúdenta við nám miðað við sjúkrarúmafjölda, er í mesta lagi hægt að hafa 10 stúdenta á 100 rúma deild, þ. e. a. s. sjúkrarúmin i Reykjavík á lyl’jadeildum frá og með árinu 1970 verða nægilega mörg til þess að kenna 20 stúdentum. Landspítalinn einn með 92 rúm getur að- eins annað niu stúdentum hverju sinni með sömu viðmiðun. Svipað ástand verður með kennslu á almennum skurðdeildum, þaimig að Landspítalinn getur aðeins tekið um helming stúdent- anna hverju sinni. A barnadeild Landspitalans verður skv. sönm útreikningum aðeins kennsluaðstaða fyrir sex stúdenta. Læluiadeild hlýtur því að þurfa að tryggja sér kennslu fyrir stúdentana á öllum þremur sjúkrahúsum borgarinnar á næstu árum, jafnvel þótt Landspítalinn geti e. t. v. að lokum sinnt þeim ölliun, þegar hann liefur náð lokastærð. Jafnvel þótt sjúkrahúsin þrjú i Reykjavík verði öll kennslu- sjúkrahús, verður nauðsynlegt að hafa fleiri kennslurúm fyrir stúdenta. 1 því sambandi má benda á töluverðan fjölda sjúkra- rúma á heilsuhælinu að Vífilsstöðum, sem nýta mætti að fullu til kennslu stúdenta. Sjúkrahúsið á Akranesi liefur tekið þátt í klin- ískri kennslu stúdenta undanfarin ár og hefur reynzt vel. Væri

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.