Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.10.1970, Side 28

Læknablaðið - 01.10.1970, Side 28
152 LÆKNABLAÐIÐ traustan grundvöll sem háskóladeild, ef meirihluti kennaranna er lausráðinn og í lágum stöðmn í pýramíðakerfi Háskólans. Ef engar sérstakar kröfur eru gerðar til sönm kennara við ráðningu varðandi hæfni til kennslu- og visindastarfa, má ekki búast við, að sömu kennarar vilji eða geti haldið uppi þeim staðli, sem læknadeild þarf að setja sér. Með því að tengja stöður dósenta og yfirlækna annars vegar og lektora og sérfræðinga hins vegar á sama hátt og nú er gert varðandi stöður prófessora, sem jafn- framt eru yfirlæknar, væri sennilega umit að tiyggja læluiadeild nægilega marga fastráðna, hæfa kennara. Með tilliti til þess, að Háskólinn gerh’ kröfur um hæfnismat á umsækjendum um prófessora- og dósentastöður, ættu forráða- menn sjúkrahúsanna í Reykjavílc að hafa í huga við ráðningu uýrra lækna, að læknar þessir gætu síðar þurft að ganga undir hæfnismat læknadeildar til þess að fá þær kennarastöður, sem nauðsynlegt verður að stofna við sjúkrahúsin. 4. Vísindastörf Á fundi yfirlæknaráðs Landspitalans h. 15/11 1967 var sam- þykkt reglugerð fyrii- Visindasjóð Landspítalans og Rannsókna- stofu Háskólans.12 Hlutverk sjóðsins á að vera að efla og styðja vísindarannsóknir við Landspitalann og Rannsóknastofu Ilá- skólans. 1 þeim tilgangi á sjóðurinn að styrkja rannsóknir, sem gerðar eru við fyrrnefndar stofnanir af starfsmönnum þeirra. Sjóðnum á að vera heimilt að veita launastyrki, sé um tekju- rýrmm að ræða hjá starfsmanni vegna rannsóknanna. Við út- hlutim á að hafa hliðsjón af tekjurýrnun, en styrkur á þó eigi að vera hærri en sem svarar tekjum af dagvinnu. Sjóðnum á að vera heimilt að greiða laun aðstoðarfólks vegna rannsóknanna. Stjórnarnefnd ríkisspítalanna hefur ekki viljað viðurkenna til- verm’étt þessa vísindasjóðs, og fjáröflvmarleiðir hans munu aðal- lega hafa orðið nefndinni þyrnir í augum. Það kemur óneitan- lega töluvert spánskt fyrir sjónir, að þörf sé slíks vísindasjóðs við háskólaspítala, þar sem Háskóli íslands er vísinda- og kennslu- stofnun og ætlazt er til, að kennarar stimdi hvort tveggja. Nauð- syn vísindasjóðs við Landspítalann verður aftur á móti augljós, þegar athugað er, að hann er ekki ein af stofnunum Háskólans og sjúkrahúsið hefur engar lagalegar skyldur við vísinda- og kennslustörf, þegar frá eru tekin störf þeirra fáu lækna, sem hafa stöður við lælmadeildina. Læknadeildin hefur verið og er enn og verður e. t. v. fram-

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.