Læknablaðið - 01.08.1971, Side 65
LÆKNABLAÐIÐ
163
Richet, heimsfrægur vísindamaður, en aldrei fyrr við kveðskap kennd-
ur. Er svo að heyra, sem þetta séu einsdæmi, hafi ekki borið við
áSur, að skáldum þar í landi hafi nokkurn tíma verið gerður slíkur
grikkur. En það játa allir, að þetta læknisverk sé snilldarverk, og
snilldin að ýmsu í vísunum þremur um sóttkveikjur. Próf. Richet gaf
allt verðlaunaféð bágstöddu fólki í því héraði, þar sem Pasteur ólst
upp.
Kvæðið er langt; eru 262 vísuorð í því. Það fellur í 3 þætti; kveð-
ur langmest að 1. og 3. þættinum, þeim sem hér er snúið á íslenzku;
en hér er 2. þætti sleppt; er sá miðbálkur einskonar ,,útlegging“ af
því ,,höfuðspjalli“, (1. þætti), sem undan er komið; er þar rakinn
vísindaferill Pasteur’s og sagt frá merkustu afrekum hans, sem vís-
indamanns; er sú frásögn fögur og skýr og skáldleg, en kemst þó
ekki til jafns við upphafið og kvæðislokin. Má því óhætt segja, að
þetta listaverk nýtur sín til fulls, þó miðbálkinn vanti, af því að
hann er sjálfstæður þáttur út af fyrir sig.
Þetta er lofkvæði um Louis Pasteur (1822-1895), þann mann, sem
íæknavísindi eiga hvað mest að þakka, allra manna. Og höfundur
kvæðisins er læknir og ekki tekinn í skálda röð. Þess vegna hef ég,
líka læknir, en ekki skáld, ráðizt í að snúa þessu franska læknisverki
á íslenzku.
Ég hef haldið kveðandi höfundarins og gert mér fyllsta far um
að vanda verk mitt sem allra bezt, af allri minni litlu getu, — því
fer svo, að hugur minn hvarflaði til eins félagsbróður míns, annars
læknis, sem hefur verið nánasti samverkamaður minn í 18 ár (1894-
1912), svo að enginn kann betur deili á þeim manni en ég. Honum
hef ég helgað þetta litla læknisverk mitt, unnið af elju og alúð; þarf
ég naumast að nefna, að ég á hér við Guðmund Magnússon, prófessor
chirugiæ.
G. Björnsson
Barn! -— Þú verður að vita,
og vel í minni geyma,
að uppi voru áður
— aldrei má þeim gleyma —
vitringar — afbragðsmenn,
með eldhug, aldrei trauðan,
sem fengu fært um set
fávizku manna’ og dauðann.
. . . Flýt þér! — Komdu með mér!
Ungum er nýtt um allt.
Inn hér! — í þessu helga hofi’
er hljótt og svalt.
Líttu’ á! — Þú lest Pasteur
á leiði’ eins meistarans.
Hlýddu á! — Þá muntu bljúgur
blessa minning hans!
★