Læknablaðið - 15.02.1980, Blaðsíða 20
8
LÆKNABLADID
virðast hafa verið víðar en í Reykjavík, a.m.k.
sást töluvert af blöðrubólu hjá ungbörnum á
Akureyri um sama leyti (11).
Sú könnun, sem gerð var á nýburum,
starfsfólki og umhverfi, hefur ýmsa galla. í
fyrsta lagi var bagalegt að geta ekki gert
phagaflokkun nokkurn veginn jafnóðum og
coag. jákvæðir klasasýklar greindust. í öðru
lagi geymdust ekki allir stofnar, sem í náðist. í
priðja lagi hefði verið æskilegt að safna sýnum
úr blöðrubólum ungbarna í heimahúsum á
sama tímabili. Aðeins eitt slíkt sýni barst og
klasasýklastofninn úr pví geymdist ekki.
Þrátt fyrir annmarka könnunarinnar má
draga vissar ályktanir af henni:
1. Að hlutfall klasasýklabera meðal starfsfólks
deildanna er ekki frábrugðið pví, sem fund-
ist hefur annars staðar (19).
2. Að bólfesta klasasýkla í nefi nýbura eykst
með hverjum degi, sem peir dveljast á
stofnuninni, en verður ekki fyrr hér en
fundist hefur við svipaðar kannanir annars
staðar og síðar en sums staðar (18, 19).
3. Að allan pann tíma, sem könnunin nær yfir,
p.e. frá sept. 76 til maí 77 er blöðrubólu-
stofninn 3A/3C±55 viðloðandi á nýbura-
deildum í bólum og öðrum sýkingum nýbura,
í nefi peirra, í umhverfi og á fingrum
starfsfólks. Könnunin leiðir hins vegar ekki
í ljós neinn ákveðinn smitbera, enda ekki
hafin fyrr en rúmu ári eftir að faraldurinn
byrjaði.
Stofn 3C/94 er sennilega blanda af stofni
3A/3C og 94/96, sem fannst í mörgum nef-
strokum frá stafsfólki. Ef til vill er 3C/94 ekki
eins skaðlegur og 3A/3C, par sem hann
ræktaðist aðeins úr sýkingum í einum fyrir-
bura. Ekki er pó útilokað, að hann hafi valdið
sýkingunt í fleiri börnum, par eð sýni voru ekki
send úr öllum sýkinguni nýbura.
Margs konar athuganir hafa verið gerðar
til að finna, hvaða aðferðir séu árangursrík-
astar til að draga úr dreifingu klasasýkla um
nýburadeildir. Alls staðar er lögð mikil áhersla
á handpvott starfsfólks (10, 8). Vandkvæði við
tíðan handpvott eru pau, að hann polist
stundum illa, húð vill porna og springa, en við
pað verður hún opnari fyrir sýklunt en ella og
meiri gróðrarstía. Til að vinna gegn pessu
getur reynst vel að nota handáburð með
sótthreinsandi efnum í.
Hvað klæðnað stafsfólks snertir, hefur
verið reynt að láta pað klæðast dauðhreinsuð-
um sloppi og grímu í hvert sinn milli handfjötl-
unar einstakra barna, en pað virðist ekki draga
að ráði úr dreifingu sýkla á börnin auk pess
sem pað er ógerlegt á venjulegum deildum (8).
Sumir telja, að plastsvuntur utan yfir sloppa
dragi úr dreifingu sýkla á börnin, par eð peir
loði síður við plast en léreft og komist ekki
gegnum pað af fötum starfsmanns (16).
Hvað böðun nýbura snertir, tíðkaðist víð-
ast hvar að baða pá úr 3 % hexachlorophen,
frá pví að pað efni kom á markað um miðjan 6.
áratuginn og fram til 1971. Upp úr 1970 varð
uppvíst, að hexachlorophen getur frásogast
gegnum opna eða óproskaða húð (5). Var eftir
pað víða hætt að baða nýbura úr pessu efni.
Enginn vafi er á, að hexachlorophenböð drógu
úr tíðni blöðrubólu (18). Eftir að peim var
hætt, færðist pessi kvilli í aukana og á sumum
stofnunum margfaldaðist tíðni hans (3). Nú eru
hexachlorophenböð ráðlögð, ef blöðrubólufar-
aldur kentur upp á deild, en með meiri
varfærni en áður, einkum hvað snertir fyrir-
bura (1). Sumir ráðleggja fremur hexachloro-
phenpúður en lausn (10). Annars eru heilbrig-
ðir nýburar pvegnir úr volgu vatni með eða án
mildrar sápu og nú orðið talið heppilegt, að
fósturfitan (vernix caseosa) fái að haldast sem
mest á húð barnsins fyrstu dagana (I). Á
naflastreng er ýmist ekkert sérstakt notað eða
eitthvert eftirtalinna efna: 1) Alkohol 2) Blanda
3ja sótthreinsandi litarefna, s.k. triple dye
(Brilliant grænt 2.29 g, proflavin hemisulfat
1.14 g og crystal violet 2.29 g í vatni að 1000
ml) 3) Smyrsl með klasasýklaeyðandi lyfjum í.
Þessi efni eru notuð í pví skyni að draga úr
sýklagróðri á naflastreng, en ekki hefur sann-
ast að neitt peirra hindri bólfestu sýkla par (1).
Á fæðingadeild Landspítalans voru hexa-
chlorophenböð nýbura tekin upp um 1960. Þar
tíðkaðist að bæta 3 % hexachlorophenlausn
(Phisohex) út í baðvatn nýburans eða setja pað
í svamp, sem fylltur var af vatni, áður en
pvottur hófst. Þar eð hexachlorophen leysist
lítt í vatni, er talið betra að smyrja pví beint á
húð nýburans og pvo pað síðan af nieð volgu
vatni. Var sú aðferð tekin upp í pemphigusfa-
raldrinum 1976. Enn fremur var skýrt fyrir
starfsfólki nýburadeildanna, um hvers konar
sýkla væri að ræða, hvaðan peir kæmu og
hvernig helst mætti draga úr dreifingu peirra.
Faraldurinn rénaði vorið 1977 og voru pað ár
alls skráð 10 tilfelli. Vor og sumar 1978 jókst
tíðni sjúkdómsins á ný og voru pað ár skráð 19
tilfelli.