Læknablaðið - 15.02.1980, Side 39
LÆKNABLAÐID
21
Rögnvaldur Porleifssson, Jón J Níelsson, Leifur Bárðarson
TILLÖGUR UM FRAMHALDSNÁM í
HANDLÆKNISFRÆÐIÁ ÍSLANDI*
og ábendingar um viðaukanám í handlæknisfræðum fyrir
sérfræðinga
Skipuleggja skal, eins til tveggja ára nám, í
almennri handlæknisfræði og undirgreinum
hennar, svo og bæklunarlækningum og und-
irgreinum peirra fyrir pá, sem eru að hefja
nám í þessum fræðum.
Fjöjdi námsstaða verði ekki fleiri en svo,
en samrýmist sennilegri pörf íslenzks pjóðfé-
lags fyrir sérfræðinga á þessum sviðum, að
loknu framhaldsnámi peirra erlendis.
Námsefni
1. Kandídatinn rifji upp og tengi prekliniskar
greinar handlæknisfræði, svo sem kliniska
líffærafræði, kliniska lífeðlisfræði, kliniska
lífefnafræði, kliniska meinafræði og kliniska
lyfjafræði,
2. hljóti pjálfun í rannsóknaraðferðum hand-
læknisfræðinnar, eftir pví, sem sjúklingaefni-
viður gefur tækifæri til,
3. tileinki sér undirstöðutækni við einfaldari
skurðaðgerðir, pannig að hann geti skamm-
lítið gengið inn í þjálfunarstöður erlendis, ef
kostur gefst á pví,
4. hljóti tilsögn í vísindalegri vinnu. Yrði hér
fyrst og fremst um að ræða byrjendaæfing-
ar í söfnun og úrvinnslu á klinisku efni.
Rannsóknir í grundvallarvísindum gætu
komið til greina í undantekningartilfellum,
ef sérstök verkefni byðust.
5. Kandídatinn geri kliniskar dissectionir á
líkhlutum, bæði á eðlilegum vefjum og
sjúkum. Leita skal um petta samstarfs við
meinafræðistofnun og líffærafræðistofnun,
sem væntanlega kemst á stofn í einhverri
mynd.
6. Kandídatinn taki pátt í námskeiðun sbr.
neðanritað.
7. Kandídatinn taki patt í vaktþjónustu eftir
því, sem hæfni hans leyfir. Vaktbyrði verði
pó ekki meiri en svo, að honum gefist tími
til fræðilegs náms.
* Frá nefnd, sem stjórn LI fól að gera tillögur um
ofangreint efni. Barst 18/10/1979.
Framkvæmd
Ætla verður fastráðnum kennurum í hlutað-
eigandi greinum við læknadeild Háskólans og
yfirlæknum sérdeilda (séu þeir ekki fastakenn-
arar), að annast leiðbeiningu kandídatanna.
Eðlilegt er, að allir læknar, er vinna á deild, par
sem pjálfun fer fram, veiti tilsögn eftir getu og
skal það metið til verðleika, t.d. gagnvart
stöðuhækkun o.s.frv. Yfirmaður deildar metur
pessa viðleitni læknanna og skilar um hana
unsögn, t.d. til. spítalayfirvalda og/eða lækna-
deildar Háskóla Islands.
Haldið skal a.m.k. eitt fræðilegt námskeið í
hverri peirri grundvallargrein, sem lögð er
áherzla á í pessum námsáfanga (p.e. kliniskt
tengdri líffærafræði, lífeðlisfræði, lífefnafræði,
meinafræði og lyfjafræði). Ekki skal sérstak-
lega stefnt að hreinum kliniskum námskeiðum.
Gæti pó af peim orðið, ef aðstæður pykja
henta og sérstakur áhugi kæmi fram hjá
kennurum eða nemendum í pá átt. Ætla má, að
kandídötum gefist síðar tækifæri á pvi erlend-
is, að taka þátt í nægilega mörgum kliniskum
námskeiðum.
Líklegt skilyrði til pess, að hægt sé að
halda kliniskt námskeið er, að kandidatar séu
ekki færri en sex. Mjög sýnist til greina koma,
að námskeið pessi yrðu að verulegu leyti
sameiginleg fyrir kandídata í handlæknisfræði
og í lyflæknisfræði og e.t.v. fleiri sérgreinum,
enda er upprifjun grunngreina frá klinisku
sjónarmiði í mörgu tilliti sameiginlegur
grundvöllur flestra sérgreina.
Námið í heild yrði að verulegu leyti
sjálfsnám undir leiðsögn, par sem kandidati-
num gæfist kostur á að gera hlutina og læra.
Eigið framtak og áhugi yrði að miklu metið.
Einhvers konar árangurseftirlit yrði nauð-
synlegt. Líklega yrði pað bezt gert, annars
vegar með umsögn leiðbeinanda og hins vegar
með einhvers konar prófformi og gæti petta
orðið grundvöllur fyrir trausta umsögn eða
meðmælum ábyrgs aðila, p.e.a.s. leiðbeinenda,
til spítala erlendis, par sem námi yrði haldið