Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1980, Blaðsíða 5

Læknablaðið - 15.11.1980, Blaðsíða 5
LÆKNABLADID 261 Jón G. Stefánsson, Tómas Helgason, Gylfi Ásmundsson SAMANBURÐUR Á HEILSUFARI TOGARASJÓMANNA OG VERKSMIÐ JU STARFSMANN A í LANDI INNGANGUR Sjómennska og fiskveiðar eru mikilvægar atvinnugreinar hér á landi og um 1/10 hluti vinnandi karlmanna á landinu eru sjómenn. Sjómennskan er einnig pýðingarmikill atvinnu- vegur í nágrannalöndum okkar og á undanförn- um árum hafa komið fram ábendingar, m.a. í Norðurlandaráði um nauðsyn pess, að rann- saka heilsufarslegar og félagslegar afleiðingar pessa starfs. Sjómennskan er líkamlega erfitt og krefjandi starf og vitað er að likamlegt álag eykst að mun í slæmu veðri og kulda. Vinnudagur sjómanna er oft langur og hvíldarstundir í vinnutíma óreglulegar. Ekki er pó ljóst, hvort sjómenn eru líklegri en aðrir til pess að pjást af einhverjum líkamlegum sjúkdómum, en vitað er að slysatíðni meðal peirra er há. (2, 5, 7). Heildarlíkur íslenskra sjómanna á pví að verða geðsjúkir eru pær sömu og meðal annarra stétta. Líkur á drykkjusýki og lyfjamis- notkun eru pó hærri meðal sjómanna en líkur á öðrum geðsjúkdómum að sama skapi minni. (3). Athugun sú er hér greinir frá, er hluti rannsóknar á félagslegum, heilsufarslegum og sálfræðilegum högum íslenskra togarasjó- manna, maka peirra og barna. Rannsóknin var gerð í samráði við sjómannasamtökin og Félag íslenskra botnvörpuskipaeigenda. Fór gagnasöfnun fram á árunum 1976 og 1977 en úrvinnsla upplýsinga hefur farið fram síðan. AÐFERÐ Margvíslegir erfiðleikar voru fyrir hendi við framkvæmd rannsóknarinnar. Hún krafðist mikils tíma frá allra hendi. Tími sjómanna í landi er oftast mjög stuttur og peir hafa pá margs að gæta. Varð pví að samkomulagi, að útgerðarmenn gæfu pann tíma sem til pyrfti með pví að seinka brottför skipanna. Fór Geðdeild Landspítalans. Barst ritstjórn 03/05/80. Send í prentsmiðju 10/06/80. hópur rannsóknarmanna um borð í skipin er pau voru að leggja af stað í veiðiferð til að safna nauðsynlegum upplýsingum um hvern meðlim áhafnarinnar. Nauðsynlegt var að fá samanburðarhóp og pví leitað til nokkurra stórverksmiðja og óskað eftir að fá að rann- saka par slíka hópa. í upphafi var gerð athugun á einni togara- áhöfn og samsvarandi hóp úr einni verksmiðju til að reyna pær rannsóknaraðferðir er ráð- gert var að nota. Gekk sú athugun eftir áætlun og leiddi aðeins til smávægilegra breytinga er miðuðust að pví að stytta pann tíma, er upplýsingasöfnun tók. Síðan var ætlunin að rannsaka áhafnir 5 togara til viðbótar og samsvarandi hóp starfsmanna frá jafnmörgum vinnustöðum í landi til samanburðar. Ekki reyndist pó unnt að fá nema 4 útgerðarfyrir- tæki og 3 verksmiðjur til viðbótar til pátttöku. Af togurunum 5 voru 3 gerðir út frá Reykjavík, en 2 után höfuðborgarinnar. Á móti hverjum togara var valin verksmiðja í sama sveitarfélagi nema peim fimmta, Reykja- víkurtogara, er engin verksmiðja fékkst á móti. Á móti hverjum togarasjómanni var valinn starfsmaður í viðkomandi verksmiðju, pannig að aldur, menntun og ábyrgð í starfi væri sem allra líkust. Sjómennirnir voru skoðaðir um borð í skipunum í upphafi veiðiferðar. Hver peirra fyllti út spurningalista um almennt heilsufar (Cornell Medical Index Health Questionnaire) og fór síðan til læknis er kannaði heilsu- farssögu hans og gerði læknisskoðun. Hver sjómaður svaraði einnig spurningum um fé- iagsfræðileg og sálfræðileg atriði, en peim páttum verða ekki gerð skil hér. Verksmiðjustarfsmennirnirvorueinnigskoð- aðir á vinnustað í vinnutíma. Var farið að öllu á sama veg og við togarasjómennina. Að skoðun lokinni var farið yfir allar heilsufarslegar upplýsingar og niðurstöður skoðunar og gert heildarmat á líkamlegri heilsu og geðheilsu viðkomandi, auk sjúk- dómsgreiningar ef við átti.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.