Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1980, Blaðsíða 13

Læknablaðið - 15.11.1980, Blaðsíða 13
LÆKNABLADID 267 andsvörun, sjúklingurinn harmar þá missi ein- hvers, t.d. brjósts, saknar þess að geta ekki verið með börnum sínum eða saknar þess að geta ekki sinnt starfi sínu lengur. Hann talar um allt, sem hann hefur þegar misst. Vanalega reynast læknar, hjúkrunarlið og fjölskylda sjúklingum vel á þessu stigi, líklegast vegna þess, að við þekkjum tilfinninguna sjálf. Hitt skeiðið er gjarnan mjög erfitt fyrir sjúklinga. Pað hefur verið nefnt þögla undirbúningsstig- ið. Pá harmar sjúklingurinn þann missi, sem er í vændum, manni sem kominn er að dauða verður skyndilega ljóst, að hann verður ekki aðeins að sjá af einum ástvin, heldur öllum og öllu. Sjúklingurinn grætur gjarnan án þess að tala um það, hvers vegna hann grætur. Læknar eiga vanalega erfitt með að þola grátandi sjúklinga, einnig þunglynda sjúklinga í lengri tíma. Því hættir læknum þá til að biðja um geðlæknisfræðilega ráðgjöf, en sjúklingum finnst það óviðeigandi og þeir kæra sig ekki um það. Þeir hafa á réttu að standa, því að þetta eru mannleg og eðlileg viðbrögð undir slíkum kringumstæðum. Ef við missum ástvin, er talið eðlilegt að syrgja hann í allt að 20 ár, en sá sem stendur fyrir framan dauða sjálfs sín, stendur frammi fyrir því að sjá af öllu og öllum og það er þúsund sinnum hryggilegra. Því eigum við að hjálþa þessum sjúklingum að gráta, segja þeim að það sé gott og mannlegt, ef þeir gráta og að það þurfi karlmann til að gráta undir slíkum kringumstæðum. Á þessu stigi fer sjúklingurinn að búa sig undir enda- lokin, hann kveður ættingja og kunningja á táknrænan hátt og biður um, að fá börnin sín einu sinn enn í heimsókn til sín. Loks vill hann hafa einn eða tvo vini hjá sér, sem geta setið þegjandi og haldið í hönd hans, og verður það öllum orðum þyngra á metunum. Á þessu stigi minnkar áhugi sjúklingsins fyrir umheiminum, hann missir allan áhuga á stjórnmálum og yfirleitt því, sem gerist í heiminum. Hann vill ekki heyra minnst á heimili sitt, það mundi aðeins auka á söknuðinn. Á þessu stigi líður karlmönnum oft verr en konum. Af óskiljan- legum ástæðum telur samfélag okkar óviðeig- andi, að karlmenn gráti, en það er fáránlegt og því er ekki síður þýðingarmikið að segja karlmönnum, að það krefjist hugrekkis að taka því, sem að höndum ber og gráta. Ef sjúklingum leiðist að gráta og þeir verða ekki taldir hugleysingjar fyrir vikið, tala þeir um það, hversu erfitt það sé að verða að sjá af öllu, sem þeim þykir kærast í framtíðinni. Fái sjúklingar að láta harm sinn á ljós áður en þeir deyja, geta þeir að lokum sætt sig við hlut- skipti sitt. Þýðingarmikið er, að læknar geri sér grein fyrir því, að þeir þurfa að sleppa takinu, en ekki endilega álíta það æðstu skyldu sína að reyna að lengja lífið með öllum hugsanlegum ráðum, í þess stað að leyfa sjúklingum að fá að vera í friði, þegar sjúklingurinn er kominn á það stig, að hann er reiðubúinn að kveðja heiminn. Það er ekki síður skylda læknis að vita, hvenær hætta skal án þess þó að hann yfirgefi sjúklinginn, en það einmitt getur hjálpað sjúklingum að öðlast frið, deyja ró- lega.Takmark okkar er að hjálpa sjuklingum að öðlast ytri sem innri frið fyrir dauðann, þannig að þeir geti sagt við okkur: »Ég finn að endalokin eru að nálgast og ég kvíði engu«. Nær allir vilja alltaf lifa, en það er einnig hægt að vera undirbúinn undir það að deyja, án gremju, leiða og hræðslu, en hún er ekki síður kveljandi. Börn á öllum aldri ganga einnig í gegnum þessi stig, en ekki nærri því eins greinileg og fullorðnir. Lítil börn óttast aðeins skilnaðinn. Lítið eitt eldri börn fá einnig hræðslu, síðar óttast þau dauðann eins og draug, sem kemur í myrkri og tekur þau til sín. Síðar skynja þau dauðann sem ekki tímabilisbundið ástand, heldur ævaranlegt. Aðstandendur og fjölskyldur deyjandi fólks sýna sömu viðbrögð og deyjandi sjúklingar. Æskilegast er, að aðstandendur séu á svipuðu stigi og sjúklingurinn, ella skapast oft vand- ræði af. Það er því einnig þýðingarmikið, að áfellast ekki erfiða aðstandendur sjúklinga, sem vekja gjarnan hjá okkur sektarkennd, en þess í stað aðstoða þá við að láta tilfinningar sínar í ljós, án þess að hefja rökræður við þá. Einmitt við það létta þeir oft á huga sínum á nokkrum mínútum og eiga auðveldara með að umbera sjúklinginn og erfiðleika hans. HEIMILDIR: 1. Kiibler-Ross E.: On Death and Dying. New York, Macmillan Publishing & Co, 1969. 2. Kiibler-Ross E.; Wessler S.; Avioli L. V.: On Death and Dying. Jama July 10, 1972; Vol.'221, No. 2.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.