Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1980, Blaðsíða 36

Læknablaðið - 15.11.1980, Blaðsíða 36
284 LÆKNABLAÐIÐ sveitar varnarliðsins flutt allmarga sjúklinga. Þyrlur þeirrar sveitar eru bæði stórar, hrað- fleygar og vel útbúnar og hafa auk þess mjög vel pjálfaðar áhafnir. Gera má ráð fyrir að hlutur pyrla verði nokkuð meiri í framtíðinni en verið hefur, þar sem ráðgert mun vera að Landhelgisgæslan fái fullkomna þyrlu á næst- unni. Þær þyrlur sem nú eru smíðaðar eru mjög fullkomnar. Þetta stafar meðal annars af aukinni notkun tveggja hreyfla þyrla með túrbínuhreyfla og einnig hafa verið notuð ný efni, svo sem í skrúfublöðin. Einnig eru þessar þyrlur búnar fullkomnum blindflugsútbúnaði. Þetta hefur í för með sér meira öryggi og hávaði og titringur er miklu minni. (10) Hins vegar hefur ekki ennþá tekist að komast fyrir öll vandamál í sambandi við ísingu. (17) Þyrlur henta best á tiltölulega stuttum vegalengdum og þar sem ekki er hægt að lenda öðrum flugvélum. í könnun þeirri sem að framan getur kom í Ijós að lækningatækjaútbúnaður í flugvélum hefur verið næsta lítill. í mörgum tilfellum var enginn útbúnaður, en stundum eingöngu súr- efnisútbúnaður og stöku sinnum lyfjakassi. Þetta þyrfti að breytast. Útbúnaðinn þyrfti að staðla og ætti hann að vera eins hvar sem er á landinu. Þau tæki sem nauðsynleg eru í hverri sjúkraflugvél eru: Fullkominn súrefnisútbúnað- ur með nægum birgðum, sogtæki til að hreinsa úr vitum sjúklings, öndunarbelgur, barkaslöng- ur, spelkur, umbúðir og nauðsynleg lyf. Full- komin sjúkraflugvél væri auk þess útbúin hjartarafsjá, defibrillator, lítilli öndunarvél og útbúnaði til að gefa innrennslislyf. Að sjálfsögðu er nauðsynlegt að hafa fullkomnar sjúkrabörur í flugvélum. Þegar flytja þarf nýfædd börn eða fyrirburði er nauðsynlegt að hafa til taks hitakassa með tilheyrandi útbúnaði og eru slíkir kassar til í eigu Barnaspítala Hringsins og e.t.v. víðar. Flugvellir Eins og kunnugt er eru margir flugvellir hér á landi næsta ófullkomnir. Ýmsir þeirra eru að miklu leyti frá náttúrunnar hendi, en hafa verið sléttaðir, valtaðir, merktir og vindpoki settur við þá. Yfirborð margra er mjög lélegt og geta þeir oft verið varhugaverðir vegna bleytu, forar og holklaka. I samantekt um flugvelli, sem Flugmála- stjórn lét gera 1978, er talið ýmislegt sem ófullkomið er á flugvöllum landsins og rætt um það sem gera þarf til úrbóta: Gera þarf Mynd I. Sjúklingur fluttur med flugvél 1930. Flugvél af gerdinni Junkers F-13. Flugmadurinn, Sigurdur Jónsson, lengst til hægri. Mynd 2. Sjúklingur fluttur með flugvél 1979. Flugvél af gerðinni Britten Norman Islander. Pórólfur Mag- nússon, flugmadur, lengst til vinstri. sem flestar flugbrautir frostfríar, þannig að hægt sé að lenda á þeim, án þess að sökkva í aurbleytu. Marga flugvelli þarf.að girða til að verja þá ágangi búfjár. Snjóruðningi af flug- brautum er víða áfátt. Merkja þarf flugbrautir betur. Koma þarf upp fleiri farþegaskýlum með hreinlætisaðstöðu. Víða skortir umsjón- armenn með lágmarksþekkingu til að gefa upplýsingar um veður og ástand flugvallanna. Þá eru talin upp öryggisatriði sem víða vantar, svo sem brautarlýsingu, aðflugshallaljós, slökk- vitæki, sjukrakassa, radióvita, radíósamband milli flugvélar og flugvallar, hæðarmæla, vind- mæla, miðlínusenda, fjarlægðarmæla, talsíma og fleira. Það eru aðeins á tiltölulega fáum stöðum þar sem mörg framangreind atriði eru í lagi og sennilega er langt í land að svo verði, þar sem fjárveitingar til flugvalla hafa verið litlar á undanförnum árum. Þannig er ljóst, að mjög víða er ekki hægt að sækja sjúkling flugleiðis, nema í björtu veðri og góðu skyggni.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.