Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1980, Blaðsíða 9

Læknablaðið - 15.11.1980, Blaðsíða 9
: LÆKNABLAÐID 265 Helga Hannesdóttir HUGLEIÐINGAR UM DAUÐVONA SJÚKLINGA Við eigum það öll sameiginlegt að eiga erfitt með að gera okkur grein fyrir dauða okkar eða að við séum dauðleg. Er það m.a. álitið stafa af því, að undirmeðvitund okkar býr ekki yfir þessari skynjun. Við skiljum og skynjum hins vegar dauða annarra. Ef við hugsum um okkur sjálf, ímyndum við okkur gjarnan, að ef við deyjum, munum við deyja skyndilega vegna slysfara eða að einhver muni drepa okkur. Börn skynja dauða öðruvísi en fullorðnir. Þau upplifa dauðann sem tímabundið ásig- komulag fram að 9 ára aldri, en börn eldri en 9 ára skynja dauðann svipað og fullorðnir. Á undanförnum 50 árum hafa ýmsar breyt- ingar átt sér stað í okkar þjóðfélagi, sem hafa stuðlað að því, að fólk almennt á auðveldara með að afneita dauðanum og alvarlega veik- um ættingjum sínum. Flestir í okkar þjóðfélagi deyja nú á sjúkrahúsum, en áður fyrr dóu sjúklingar í heimahúsum, umkringdir ættingj- um og vinum, en nú hjúkrunarliði, læknum og sjúkraliðum. Pegar dauðvona sjúklingur er umkringdur rafsjám og öndunarhjálpartækjum, hættir okk- ur oft til að afneita, að þeir séu deyjandi. Öll óttumst við dauðann, og því er það líklegast, að við höfum fjarlægt hann frá heimilum inn á sjúkrahús. En hvaða áhrif hefur dauði á þig, sem lækni eða hjúkrunarkonu? Hvaða áhrif hefur það á sjúkling að vera með banvænan sjúkdóm? Ýmsar rannsóknir hafa verið gerðar undanfar- in ár til þess að komast betur að þessu, og hefur Dr. Elisabeth Kubler Ross, geðlæknir í Bandaríkjunum, náð hvað mestri frægð með rannsóknum sínum og skrifum um deyjandi og dauðvona sjúklinga. Dr. Ross hefur talað við mörg hundruð sjúklinga s.l. 10 ár og komist að raun um, að þeir hafa mjög sterkar tilfinninga- legar þarfir til að tala um veikindi sín og yfir- Geðdeild Barnaspítala Hringsins. Byggt á fyrirlestri á vegum handlseknisdeildar Lsp. 07/10/77. Barst ritstjórn 18/03/80. Sampykkt 04/05/80. Send 1 prentsmidju 01/06/80. vofandi dauða. Einnig vita flestallir alvarlega veikir sjúklingar, að þeir eru deyjandi, hvort sem þeim hefur verið sagt það eða ekki. Þetta gildir vanalega einnig um börn. Sjúklingar með ólæknandi krabbamein vita í yfir 90 % tilfella, að þeir eru með krabbamein, þótt þeim hafi aldrei verið sagt það. Sérlega þýðingarmik- ið er að segja sjúklingum sannleikann, t.d. að þeir séu alvarlega veikir. Við segjum ekki sjúklingi, að hann sé að deyja eða að hann sé með ólæknandi krabbamein, heldur að þetta líti mjög illa út, en hvernig sannleikurinn er sagður, skiptir meira máli en hvað er sagt, þ.e.a.s. heiðarleiki, nærgætni og raunsætt sjón- armið er mikilvægast. Það skiptir miklu máli að læknirinn sé í góðu, andlegu jafnvægi, þegar hann ræðir við dauðvona sjúkling um veikindi hans. Það er ávallt mjög sársaukafullt fyrir krabbameinssjúkling að fá vitneskju um að hann sé með krabbamein. En læknirinn getur að verulegu leyti dregið úr þeim sárs- auka með því, hvernig hann hagar orðum sínum og með því að ræða rólega og nærfær- nislega við sjúkling um þá meðferð sem ráðgerð er fyrir hann í framtíðinni. Sérstak- lega þýðingarmikið er fyrir sjúklinga að vita, að þeir geti alltaf leitað til sama læknisins fram á það síðasta. Dr. Ross komst að því, að dauðvona sjúk- lingar ganga í gegnum fimm stig frá því, að þeir veikjast alvarlega og fram að því, að þeir deyja, jafnvel þótt þeir hafi mjög takmarkað- an tíma. Sjúklingar komast fljótt að raun um, hvenær þeir veikjast alvarlega. Ættingjarnir koma sjaldan, þeir tala minna, þegar þeir koma, þeir vita ekki, hvað þeir eiga að segja, þeir verða vandræðalegir, sumir brosa, aðrir tala um eitthvað óviðkomandi veikindum sjúk- lingsins, og svo mætti lengi telja. Ef sjúklingi er sagt, að hann sé haldinn banvænum sjúkdómi, verða fyrstu viðbrögð hans jafnan skelfing og afneitun. Þetta'má kalla fyrsta stig, en það einkennist af því, að sjúklingurinn, trúir ekki, að þetta geti komið fyrir hann sjálfan. Slíkir sjúklingar fara oft frá

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.