Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1981, Síða 9

Læknablaðið - 15.10.1981, Síða 9
LÆKNABLAÐID 191 Vafasamt er að minni hyggju hvort heimild er fyrir pessu ákvæði reglugerðarinnar í lækna- lögum og greinilegt er, að það er umfram pað, sem er að finna í norræna samkomulag- inu og að pví ég bezt fæ séð, getur pað ekki gilt fyrir pá, sem fengið hafa sérfræðileyfi á hinum Norðurlöndunum og sækja um leyfi hérlendis með skírskotun til samningsins um sameiginlegan vinnumarkað heilbrigðisstétta. Er pað skoðun mín, að slíkt leyfi beri að veita, enda pótt umsækjandi hafi ekki skrifað um- rædda ritgerð, par sem hér er um sérskilyrði að ræða, sem brjóta í bága við norræna samkomulagið. Hér er ég að sjálfsögðu aðeins að túlka eigið álit og pað verður lögfróðra að kveða upp úrskurð í málinu. Hins vegar vil ég fylgja pessum hugleiðingum eftir og velta pví fyrir mér, hvaða áhrif pað kynna að hafa, ef pessi skoðun mín reyndist rétt lagalega séð. Augljóst er, að læknadeild gæti ekki haldið áfram að krefjast ritgerða af peim, sem öfluðu sér sérfræðimenntunar utan Danmerkur, Finn- lands, Noregs og Svípjóðar og pví yrði að fella úr reglugerðinni ákvæðin í 2. gr. e. Að skrifa stíl En væri pá mikill skaði skeður? Ekki veit ég með vissu, hvað að baki lá, pegar ákvæðin un ritgerðina voru sett í reglugerðina 1961, en grun hefi ég um, að par séu leifar frá peim tíma, er peim, sem ekki höfðu náð fyrstu einkunn á embættisprófi, var gert að skrifa sérfræðiritgerð. Nú skulu sízt af öllu á pað bornar brigður, að pað auki proska og pekkingu að takast á við vísindalega ritgerðarsmíð og pví skal heldur ekki neitað, að fjöldi lækna hefði líklega alls ekki lagt pað á sig að skrifa grein, ef peir hefðu ekki mátt til vegna reglugerðar- ákvæðisins. Petta hefir hins vegar leitt til mikilla erfið- leika fyrir Læknablaðið, sem Páll Ásmunds- son lýsti svo hógværlega í ritstjórnargrein fyrir fjórum árum (1977; 63:94): »Mikið hefir verið um pað hin síðari ár, að menn sendi blaðinu »sérfræðiritgerðir« sínar til birtingar og telja sig stundum vart eiga í önnur hús venda. Slíkar greinar eru harla misjafnar að gæðum, en ógjarnan bregður maður fæti fyrir starfsbróður á framabraut«. Ritstjórn hefir fram að pessu verið sammála um, að beita sér ekki fyrir pví, að ákvæðin um ritgerðina væru tekin til endurskoðunar og hafði pá hliðsjón af peim jákvæðu atriðum, sem áður voru nefnd. Hins vegar verður ekki hjá pví komist á pessari stundu að skora á læknadeild að taka málið til endurskoðunar. Skilyrði pess, að læknar almenn skrifi grein- ar er, að peim sé kennt pað. Gæti ekki verið að taka pyrfti upp kennslu í deildinni í pví lesa tímaritsgreinar? Kynni mín af sjötta árs lækna- nemum á undanförnum árum benda til, að peir, sem eru farnir að lesa erlend tímarit, séu færri en hinir. Aðspurðir báru peir við, að ekki værí tími til pess. Má vera, en er hitt ekki líklegra að peir kunni pað ekki? Önnur hugmynd, sem ég vil koma á fram- færi við læknadeild, er sú, hvort ekki væri ráð að fá stúdentum í hendur verkefni, t.d. í miðju námi og úrlausnir væru lagðar fram fyrir embættispróf og dæmdar, en við úrlausn nytu nemendur aðstoðar kennara. Til örvunar vís- indastarfsemi íslenzkra lækna almennt held ég að pessi aðferð væri vænlegri til árangurs en núgildandi pvingunaraðferðir. Með nýskipun mála, sem lögð er til, útskrifuðust trúlega betri læknar og Læknablaðið yrði örugglega betra blað.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.