Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.10.1981, Qupperneq 15

Læknablaðið - 15.10.1981, Qupperneq 15
LÆKNABLADIÐ 195 haemolyticus 6. Alls dóu 12 sjúklingar eða 32.4 %. Slæmar horfur fylgdu sýkingum af staph. aureus (28.6 %), Gram. neikvæðum stöfum og ef sjúklingur hafði gerviloku. Sýkla- lyfjagjöf fyrir innlögn gerði horfur ekki verri. Fjórtán sjúklingar höfðu annan hjartasjúkdóm og átta sjúklingar höfðu auknar líkur á BE vegna annarra ástæðna. Ekki varð séð að skortur á hefð bundinni fyrirbyggjandi sýkla- lyfjagjöf við tannaðgerðir og fleira hafi valdið neinni sýkinganna. Við innlögn voru sex sjúk- lingar ekki með hjartaóhljóð. Skoðun m.t.t. húð- og augnbotnabreytinga við BE var oft ónákvæm. Við innlögn voru 25 sjúklingar (68 %) með 10.000 hvít blóðkorn/microl. eða færri, hins vegar höfðu flestir (75.7 %) sökk yfir 20 mm/klst. Af peim 12 sjúklingum sem dóu höfðu fimm fengið viðeigandi sýklalyf lengur en sjö daga. Jónas Magnússon, Sigurður Björnsson, Gunnar Gunnlaugsson, skurðdeild og lyfjadeild Borgarspítalans Yfirlit yfir bráða magablæðingu á Borgarspítalanum 1974—1978 Á fimm ára tímabili, 1974— 1978, vistuðust 198 sjúklipgar í 227 skipti á Borgarspítalanum með bráða magablæðingu. Algengasta orsök blæð- ingar var skeifugarnarsár í 31 % tilfella. Blæð- ingarorsök fannst ekki í 12.6%. Fjörtíu pró- sent sjúklinganna voru 60 ára og eldri. Fjörtíu sjúklingar eða 20 % fóru í aðgerð. Heildar- dánartala var 5.6 %. Afdrifum 54 sjúklinga með lágt hemoglobin við innlögn og sem hlutu lyfjameðferð, eru gerð sérstök skil. Ingvar Bjarnason, Þórður Harðarson, Stefán Jónsson, Lyfjadeild og Rannsóknadeild Borgarspítalans Cardiomyopathia hypertrophica: Könnun á arfgengi og kliniskum einkennum Rannsóknin tók til nánustu ættingja átta einstaklinga af 11 sem látist höfðu með cardiomyopathia hypertrophica (CH) á árun- um 1966—1977. Alls voru 59 manns athugaðir, 28 karlmenn, meðalaldur 42 ára (17 — 82) og 31 kona, meðalaldur 46 ára (6 — 82 ára). Hópnum var skipt í tvennt samkvæmt niðurstöðum hljóðbylgjurannsókna á 20 manna heilbrigðum viðmiðunarhóp. Þeir einstaklingar mynduðu hóp A, sem höfðu eðlilega sleglskiptarþykkt (<1.3 cm) og hóp B (sleglskiptarþykkt >1.3 cm). Auk hljóðbylgjurannsókna var spurt um sjúkdómseinkenni, fyrri sjúkdóma og gerð nákvæm hjartaskoðun og hjartarit tekið af öllum. Helstu niðurstöður eru þær, að óskýrð sleglaskiptarþykkt (CH) virðist erfast sam- kvæmt ríkjandi erfðaeiginleika (autosomal do- minant). Aðeins þrír af þeim 25 einstaklingum sem við teljum hafa CH höfðu einkenni á því stigi, að þeir leituðu læknis vegna þess. Færri en þriðjungur hópsins hafði óeðlileg hjarta- hljóð og aðeins fjórir höfðu einkennandi út- streymisóhljóð. Hjartarit virðist mega nota sem síupróf meðal ættingja CH sjúklinga, því það reynist óeðlilegt í 84 % tilfella. Ingvar Bjarnason, Þórður Harðarson og Stefán Jónsson, Lyfjadeild og Rannsóknadeild Borgarspítalans Hjartsláttartruflanir hjá sjúklingum með cardiomyopathiu hypertrophica og ættingjum þeirra Meðal sjúklinga með arfgenga cardiomyopa- thia hypertrophica (CH) ber dauða yfirleitt skyndilega að, en orsaka er talið mega rekja til hjartsláttartruflana eins og hjá sjúklingum með kransæðasjúkdóma. Tilgangur þessarar rannsóknar var að athuga tíðni hjartsláttar- truflana meðal sjúklinga með CH og ættingja þeirra. Tuttugu og tveir sjúklingar með CH voru rannsakaðir, 15 karlar og sjö konur, meðal- aldur 50 ára (18—82 ára). Tuttugu og sjö ættingjar þeirra voru athugaðir, 12 karlar og 15 konur, meðalaldur 39 ára (10—82 ára). Til viðmiðunar voru rannsakaðir níu karlar og níu konur, meðalaldur 48 ára (23 — 71 árs). Þegar hefur verið greint frá kliniskum einkennum, niðurstöðum skoðunar, hjartarits og hljóð- bylgjurannsóknar hjá þessu fólki. Sólarhrings

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.