Læknablaðið - 15.10.1981, Page 37
LÆK.NABLAÐ1D
211
ingu rannsókna og samræmdu upplýsinga-
kerfi, er auðveldlega gætu skilað frá sér upp-
lýsingum, m.a. í líkingu við pær upplýsingar
um aðkomudreifingu sjúklinga á Röntgendeild
Borgarspítalans, sem árlega eru unnar úr
tölvugeymdu gagnasafni deildarinnar (2, 6).
Rannsóknafjöldi á 1000 íbúa í »Stór-
Reykjavíkursvæðinu« (Reykjavík, Kópavogur,
Hafnarfjörður, Álftanes, Garðabær, Seltjarn-
arnes, Mosfellshreppur), meðal-íbúafjöldi
120.000), er sýndur neðanmáls á 3. töflu. hessi
viðmiðun er pó lítils virði pví að sjúklingar af
öllu landinu leita til rannsóknadeilda á pessu
svæði.
b. 2. Rannsóknir utan Reykjavíkur
Fjöldi röntgenrannsókna á sjúkrahúsum utan
Reykjavíkur stendur mikið I stað milli ára. Það
er pó athyglisvert að rannsóknum fækkar á
Röntgendéild F.S.A. um 11.6 % vegna breyttra
aðstæðna á árinu 1979, eftir að hafa verið
nokkuð jafn margar um allmörg ár, og saman-
lagður rannsóknafjöldi nágrannasjúkrahús-
anna er samtímis óbreyttur (3. tafla).
Það kemur í ljós í pessum talningum, að
einungis 2 % allra röntgenrannsókna eru
gerðar á heilsugæzlustöðvum án tengsla við
sjúkrahús (4. tafla). Samaburður við önnur
lönd í nágrenni okkar varðandi petta atriði
er erfiður, par sem aðstæður eru mjög mis-
munandi, en í Finnlandi eru um 16 % allra
röntgenrannsókna á stöðvum utan sjúkrahúsa.
í Svípjóð og Noregi eru um 8 % allra röntgen-
rannsókna í einkapraxis (5, 12). Hérlendis
hefur aðeins verið starfræktur einn röntgen-
praxis, um 2.5 % allra rannsókna (1979).
c. Aðgangur að sérfræðiaðstoð
Staðsetning röntgentækjanna skiptir e.t.v.
minna máli en hvort aðstaða til sérfræðipjón-
ustu er fyrir hendi. 7. tafla leiðir í Ijós, að mjög
vel er fyrir pessum pætti séð hérlendis: 84.2 %
allra röntgenrannsókna eru gerðar á sérhæfð-
um röntgendeildum eða í nærveru sérfræð-
inga og af peim. Auk pess nær skipuleg ráð-
gjafapjónusta til um 8 % allra rannsókna,
pannigað pað eru einungis um 7.8 % rann-
sókna, sem gerðar eru án beinnar stýringar
eða ráðgjafapjónustu sérfræðinga í röntgen-
greiningu.
d. Tegundir röntgenrannsókna
Eitt grundvallaratriði pess, að yfirgripsmat á
geislunarbyrði ákveðins hóps eða pjóða verði
gert, er að fyrir liggi all nákvæm sundurliðun á
tegundum röntgenrannsókna, en magn geisl-
unar, hvort heldur mældrar sem heildargeislun
eða t.d. kynkirtlageislun er mjög mismunandi
eftir rannsóknum. Út frá slíkum upplýsingum
eru tölfræðilegar áætlanir á hlutdeild röntgen-
rannsókna í geislunarbyrði unnar (4, 9). I
pessari athugun hefur tekizt að fá staðgott
yfirlit um skiptingu 95.5 % allra röntgenrann-
sókna eftir líffærakerfum (6. tafla). Nákvæm
sundurliðun, sem leggja má til grundvallar
útreikningum af ofangreindu tagi, er til um
allar rannsóknir frá sérdeildum í Reykjavík og
á Akureyri, og nokkrum öðrum stöðum og
nær með talsverðri nákvæmni til 85 % allra
rannsókna.
e. Rannsóknafjöldi á íbúa
Á fimm ára bilinu 1975-1979 var íbúafjölgun
hérlendis 3.5 %, en fjölgun röntgenrannsókna
7.1 %. Fjöldi röntgenrannsókna, 528 á 1000
íbúa (5. tafla), er mjög svipaður hér og í
nágrannalöndum okkar og hefur próunin ver-
ið mjög lík (3, 5).
Til samanburðar má nefna, að 1977 voru
tilsvarandi tölur í nokkrum löndum (7, 12), sem
her segir:
Svípjóð ..... 560 Finnland...... 850
Noregur ..... 520 Frakkland.... 600
Bandaríkin ... 850
f. Innflutningur röntgenfilma til íslands
Upplýsingar um filmuinnflutning eru fengnar
frá Hagstofu íslands, en bornar saman við
tölur innflytjenda og upplýsingar framleið-
enda um flatarmál og punga röntgenfilma. —
Smáfilmur (10x10 cm, »photofluorography
films«) vegna berklavarnastöðva og annarra
nota eru ekki taldar hér með. Það er tiltölu-
lega lítið magn af filmum, enda pótt geisla-
byrði af slíkum rannsóknum purfi sér-
stakrar skoðunar við.
Innflutt magn filma er háð smávægilegum
breytingum milli ára, en eins og fram kemur í
2. mynd er vegið meðaltal 12.2 tonn á ári. Það
svarar til u.p.b. 36.900 m* 2 röntgenfilma. Filmu-
eyðsla á hverja rannsókn er pannig að meðal-
tali 0.3 m2 og er pá meðtalin fyrning og úrkast.
Þetta er mjög líkt samskonar útreikningum í
öðrum löndum með svipuð heilbrigðiskerfi
(14).