Læknablaðið - 15.10.1981, Qupperneq 54
222
LÆKNABLADIÐ
Svíar hafa hætt bólusetningu gegn kíghósta.
Þátttaka í kíghóstabólusetningu féll úr 80 % í
31 % á árunum 1974-’80 í Englandi. Ástæðan
var að æsifregnir birtust í dagblöðum um
Tafla I. Mænusóttarbólusetning meðal 12 ára barna
í nokkrum héruðum 1974 (1).
Fjöldi 5. mænusóttar-
Hérað barna bólusetning
1 ......................... 74 5
2 ........................ 157 67
3 ......................... 58 32
4 ........................ 179 100
5 ......................... 21 1
6 ......................... 100 80
7 ......................... 26 9
8 ......................... 91 39
9 ......................... 50 13
Samtals 756 346
Tafla II. Hlutfall bólusettra gegn mænusótt í 12 ára
árgangi (5. bólusetning) (2).
Ár %
1973 .. 27,5*
1975 .. 43,8**
1977 .. 96,6
* E.t.v. léleg skil á skýrslum
** Upplýsingaherferð
Tafla III. Pátttaka barna af heildarfjölda / bólusetn-
ingu gegn barna veiki, kikhósta og stífkrampa.
Ár %
1972 82,3
1975 71,8
1977 79,8
hættur samfara bólusetningunni. Nú hafa verið
birtar niðurstöður rannsókna The National
Childhood Encephalopathy Study o.fl. (Eng-
landi) (3, 4) á hættum samfara bólusetningu. í
ljós kemur að hættan hefur verið mjög ýkt.
Talið er að hættur á »serious neurological reac-
tion« eftir bólusetningu með DTP bóluefni sé 1:
110.000 en hætta á »persistent neurological
damage« einu ári síðar sé 1:310.000. Ennfrem-
ur kom í ljós að kíghóstabólusetning gefur
góða vörn, eða dregur verulega úr punga
veikinnar. íslensk heilbrigðisyfirvöld telja
ástædu til að hvetja lækna til að sinna vel
þessari bólusetningu.
Mislingar
Almenn mislingabólusetning meðal barna hófst
hér á landi 1975. í nokkrum héruðum var pó
hafist handa fyrr fyrir atbeina Margrétar
Guðnadóttur prófessors og nokkurra héraðs-
lækna. Nú hefur landlæknisembættið kannað
árangur bólusetningarinnar. í ljós kemur að
milli 15 og 30% af börnum 6-15 ára hafa
hvorki verið bólusett né fengið veikina (4). Á
pessu ári verður pví óskað eftir fjárveitingu
frá Fjárveitinganefnd til pess að Ijúka bólusetn-
ingu framangreindra barna. Áætla má að
bólusetja purfi allt að 8000 börn.
HEIMILDIR
1. Skýrsla landlæknis á L. í. fundi 1974.
2. Annus Medicus — Landlæknisembættið 1980.
3. Pertussis vaccine Editorial Brit. M. J. 1981 282
1563-1564.
4. Effect of Vaccination on Severity and Dissemina-
tion of Wooping Cough. Brit. M. J. 1981, 282,
1925-1928.
5. Skýrsla héraðslækna til landlæknis 1981.