Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2007, Blaðsíða 6
miðvikudagur 28. Febrúar 20076 Fréttir DV
Heiðmörk ómetanleg vin
„Þetta er góður staður til þess að
vera á,“ segir leikkonan Herdís Þor-
valdsdóttir en hún hefur ræktað
skóglendi í Heiðmörk í fjörutíu ár.
Hætta steðjar að Heiðmörk þessa
dagana eftir að deilur spruttu upp
vegna framkvæmda Kópavogsbæjar
en sextíu tré hafa verið fjarlægð það-
an vegna framkvæmdanna. Miklar
og háværar deilur hafa orðið vegna
málsins en það var Hanna Birna
Kristjánsdóttir sem stöðvaði fram-
kvæmdina.
„Ég hef ekki séð sárið sem Kópa-
vogsbær gróf,“ segir Herdís og bæt-
ir við að hún yrði sennilega í meiri
sárum en svæðið sjálft sæi hún allan
þann gróður sem gengið hefur verið
á af hálfu bæjarins.
Herdís hefur fylgst með uppvexti
gróðursins í Heiðmörk í fjölda ára.
Hún segir svæðið vera orðið yndis-
legt enda margar óskaplega fallegar
gönguleiðir þar. Hún svarar því þó
til að hún hafi ekki gengið þær allar
en það standi þó til bóta.
Að sögn Herdísar mætti vera
meiri áhersla á gróður á Íslandi.
Hún bendir réttilega á að gróðri fylgi
hlýnun og bendir á Reykjavík. Hún
segir borgina, þótt ótrúlegt megi
virðast, vera gróðursælasta stað Ís-
lands. Þess vegna hafi veður batn-
að mikið og yfirleitt sé það milt hér á
suðvesturhorninu.
Herdís hefur um árabil barist fyr-
ir trjárækt og gróðursetningu í land-
námi Ingólfs Arnarsonar. Hún seg-
ir að bæta megi margt í Heiðmörk
og nefnir þar fyrst malarveg sem
er mikið ekinn. Hún segir það leið-
inlegt hversu mikið ryk leggst yfir
gróður og nálæg svæði í stilltu veðri.
Helst vildi hún malbika veginn en
það mun vera vandkvæðum bundið
vegna deilna um eignarrétt yfir veg-
inum að hennar sögn.
„Heiðmörk er ómetanleg vin í
nágrenni borgarinnar,“ segir Herdís
sem ber sterkar taugar til svæðisins
og gróðurs yfir höfuð.
Deilan á milli Kópavogs og
Reykjavíkur er enn í fullum gangi.
Skógræktarfélag Íslands hugðist
kæra Kópavogsbæ fyrir að fjarlægja
tré þaðan. Sú kæra var þó aldrei lögð
fram.
Aðspurður hvert framhaldið
verði á þessari deilu segir Gunn-
ar Birgissson bæjarstjóri Kópavogs:
„Við bíðum eftir framkvæmdaleyf-
inu sem við erum löngu búnir að fá
samþykki fyrir.“
Hann segist ekki hafa nein-
ar áhyggjur af því hvort þetta verði
samþykkt enda hafi borgarstjórn
greitt atkvæði með framkvæmdun-
um á sínum tíma og það verði varla
svikið.
Herdís Þorvaldsdóttir Leikkonan
Herdís á sumarbústað í Heiðmörk og
hefur fylgst með uppgangi svæðisins í
fjörutíu ár.
valur grettisson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Reykjavíkurborg er gróðursælasti staður
Íslands þótt ótrúlegt megi virðast, segir
Herdís Þorvaldsdóttir leikkona sem lengi
hefur barist fyrir trjárækt í landnámi Ingólfs
Arnarsonar. Hún harmar mjög að stór tré hafi
verið rifin upp og fjarlægð vegna fram-
kvæmda á vegum Kópavogsbæjar.