Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2007, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2007, Blaðsíða 18
miðvikudagur 28. FEBrÚar 200718 Sport DV LeBron fór fyrir sínum mönnum í Cleveland Cavaliers þegar hann skoraði 35 stig þegar liðið lagði New Orleans Hornets að velli, 97-89. James skoraði tvær þriggja stiga körfur á síðustu mínútu leiksins og tryggði þar með sínum mönnum sig- urinn. Mike Brown, þjálfari Cleveland, var ánægður með sinn mann. „Ef skotin fara ofan í þá eru það góð skot. LeBron lét vaða og hitti beint í mark,“ sagði Brown. Markmið varnarinnar hjá Hor- nets var að neyða James til að taka eins erfið skot og mögulegt væri. Það tókst en það sem Hornets gerði ekki ráð fyrir var að James hitti hvort sem er. „Við gerðum það sem við ætl- uðum okkur. Hann [James] skaut þriggja stiga skoti með hönd í and- litinu á sér. Málið er að hann hitti. Við vissum að hann myndi taka skotið Við verðum bara að lifa með því að hann hittir af löngu færi,“ sagði David West, leikmaður New Orleans. LeBron James var ánægður eftir leikinn og sagðist vera í góðu formi. „Ég hef verið að spila mjög vel eftir stjörnuleikinn. Mér hefur ekki liðið svona vel allt tímabilið,“ sagði James eftir leikinn. Nash er lykilmaðurinn Amare Stoudemire átti enn einn stórleikinn þegar Phoenix Suns vann sigur á Indiana Pacers á útivelli, 103- 92. Stoudemire skoraði 23 stig fyrir Phoenix í leiknum og hirti auk þess 18 fráköst. Hann var þó ekki stigahæstur í sínu liði því Steve Nash skoraði 25 stig, auk þess sem hann gaf 11 stoð- sendingar. Hjá Indiana var Jermaine O‘Neal stigahæstur með 28 stig en hann hirti auk þess 13 fráköst. Jeff Foster kom af bekknum hjá Indiana og hirti 14 fráköst í leiknum en hann náði þó ekki að skora eitt einasta stig. „Við vöknuðum loksins til lífsins. Við vorum hálf sofandi og hittum illa á löngum kafla. Við tókum okk- ur saman í vörninni og fórum loksins að hitta,“ sagði Nash. „Ég hef aldrei séð lið spila eins vel og þeir [Phoenix] gerir á þessu plani. Nash er klárlega lykilmaður- inn en hann er með réttu leikmenn- ina í kringum sig,“ sagði Rick Carlisle, þjálfari Indiana, eftir leikinn. Jermaine O‘Neal var ekki sáttur eftir leikinn. „Við verðum að spila vel allan leikinn. Annað hvort spilar maður eða ekki. Við verðum að spila góða vörn og hjálpa hverjum öðr- um,“ sagði O‘Neal. Dirk með stórleik Þjóðverjinn Dirk Nowitzki var maður leiksins þegar Dallas Maver- icks sigraði Minnesota Timberwol- ves á útivelli, 91-65. Í fyrsta sinn í sögu Dallas liðsins fór liðið í gegnum heilan mánuð án þess að tapa leik. Nowitzki skoraði 23 stig og hirti 14 fráköst í leiknum sem var 13 sig- urleikur Dallas í röð. Kevin Garnett og Ricky Davis skoruðu 15 stig hvor fyrir heimamenn í Minnesota. Leikmenn Dallas virðast þó ætla að halda sér á jörðinni og virðast ekki vera mikið gefnir fyrir hrós. „Hér er enginn að hoppa um af fögnuði. Ég dettur strax í hug átta mistök sem ég gerði í leiknum,“ sagði Jason Terry, leikmaður Dallas, strax eftir leikinn. Minnesota lenti strax undir í leiknum eftir að fyrstu sex sóknir liðsins fóru í súginn þegar leikmenn liðsins misstu boltann fimm sinnum og einu sinni var skot þeirra varið. „Við höfum hvorki reynsluna né einstaklingana til að koma okkur úr þeirri stöðu að þurfa að elta allan leikinn. Stundum hengjum við haus og það er ókostur,“ sagði Kevin Gar- nett sem átti frekar slakan leik í gær. 16 þriggja stiga körfur New Jersey Nets setti nýtt félags- met í gær þegar liðið hitti 16 þriggja stiga körfum í 113-101 sigri á Wash- ington Wizards. Jason Kidd átti stór- leik og hitti úr sex af níu þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Kidd skoraði 26 stig í leiknum en- Vince Carter var þó stigahæstur í liði Nets með 27 stig. Gilbert Arenas hitti ekki eins vel en hann hitti aðeins úr þremur af 12 þriggja stiga tilraunum sínum í leiknum. Arenas var samt sem áður stigahæstur í liði Wizards með 26 stig. „Þetta var spurning um að spila vel út á vellinum. Við féllum hálf- partinn í gildru í fyrri hálfleik en við fengum góð skotfæri,“ sagði Jason Kidd þegar hann var spurður um varnarleik Washington liðsins. „Við fórum loks að hitta vel. Við vorum að fá góð skotfæri fyrir utan þriggja stiga línuna og við nýttum vel þau skot sem við fengum,“ sagði Vince Carter. „Þeir voru sjóðheitir í dag og við gáfum þeim of mörg opin skotfæri. Varnarlega vorum við augljóslega ekki að verjast þeim á réttum stöð- um,“ sagði Roger Mason Jr., leikmað- ur Washington, eftir leikinn. dagur@dv.is NBANBA Úrslit næturinnar Staðan U T Austurdeildin detroit 36 19 Cleveland 33 24 Washington 31 24 Toronto 31 26 Chicago 32 27 indiana 29 27 New Jersey 28 30 Orlando 28 30 miami 27 29 New York 26 32 Charlotte 22 35 atlanta 22 35 milwaukee 21 37 Philadelphia 19 38 Boston 14 42 Staðan U T Vesturdeildin dallas 48 9 Phoenix 44 13 San antonio 39 18 utah 37 19 Houston 35 21 L.a. Lakers 33 25 denver 27 28 L.a. Clippers 27 29 New Orleans 27 30 minnesota 26 31 golden State 26 32 Sacramento 24 32 Portland 24 34 Seattle 22 34 memphis 15 43 NBA-úrslit næturinnar Cleveland - New Orleans 97 - 89 indiana - Phoenix 92 - 103 New Jersey - Washington 113 - 101 milwaukee - golden State 122 - 101 minnesota - dallas 65 - 91 sigurleikur DAllAs í röð Fimm leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt. New Jersey setti nýtt félagsmet þegar liðiðð setti niður sextán þriggja stiga skot í sigri á Washington. Sex þristar í hús Jason kidd hitti úr sex af níu þriggja stiga skotum sínum í nótt þegar New Jersey setti nýtt félagsmet í þriggja stiga skotum. Þjóðverjinn ógurlegi dirk Nowitzki skoraði 23 stig í þrettánda sigurleik dallas í röð. Leiðtoginn LeBron James tryggði Cleveland sigur á New Orleans með tveimur þristum á lokamínútunni. 13.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.