Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2007, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2007, Blaðsíða 10
Vélvirkinn Páll Kristinsson stórslasað- ist aðfaranótt laugardags eftir að hafa skollið á steyptan brunn. Fjölmargir bílstjórar keyrðu framhjá honum án þess að stoppa. Sá eini sem stoppaði var leigubílstjóri sem keyrði hann á slysadeild og heimtaði Páll að fá að borga farið sjálfur. Páll nefbrotnaði, kinnbeinsbrotnaði auk þess brotn- uðu rifbein og tær. Hann hafði dottið vegna þess að hann flúði fjóra unga menn sem stöðvuðu bifreið rétt hjá honum og hótuðu honum. „Þeir hótuðu mér kynferðislega og það má vel vera að þeir hafi ver- ið að grínast, en svona eftir á finnst manni þetta ekki mjög fyndið,“ segir Páll Kristinsson vélvirki sem er enn að jafna sig eftir slæma byltu aðfara- nótt laugardags. Hann var að ganga heim eftir fimmtugsafmæli mágkonu sinnar þegar bifreið var stöðvuð rétt hjá honum. Í henni voru fjórir pilt- ar sem hótuðu Páli öllu illu. Sjálfur segist hann ekki hafa ætlað að bíða og athuga hvort þeir gerðu alvöru úr hótununum. Úr varð að hann fór yfir vegrið hjá vegaframkvæmdum við Vesturlands- og Suðurlandsveg. Það fór ekki betur en svo að Páll hrasaði og rúllaði niður grýtta brekku þar til hann skall með andlitið á steypt- an brunn sem var óvarinn. Þar hlaut hann alvarleg meiðsl á andliti. Óku framhjá slösuðum „Ég veit ekki hversu lengi ég hef legið þarna meðvitundarlaus en þeg- ar ég vaknaði reyndi ég að hringja,“ segir Páll. Hugur hans var nokkuð skýr þrátt fyrir harða lendingu. Hann segir farsímann hafa brotnað og því gat hann ekki hringt eftir hjálp. Hann reisti sig þá alblóðugan upp og ákvað að reyna að stöðva ökumann sem gæti aðstoðað hann. Eftir að hafa gengið í talsverðan tíma hafði enginn ökumaður stoppað fyrir honum held- ur hreinlega ekið framhjá honum al- blóðugum. „Það voru allavega tveir leigubílar sem hægðu á sér þegar ég reyndi að ná athygli, en þegar þeir sáu útgang- inn á mér þá gáfu þeir aftur í,“ seg- ir Páll vonsvikinn yfir skorti á samúð ökumanna en auk leigubílstjóranna óku fleiri framhjá honum án þess svo mikið sem hringja á lögregluna og til- kynna um slasaðan mann. Bjargvætturinn á brúnni Þegar Páll var kominn að bryggju- hverfinu við Gullinbrú var hann bú- inn að ganga talsverðan spotta. Nóttin var köld og sjálfur var hann verulega hrakinn, bæði af kulda og meiðslum. „Þá stoppaði einn leigubílstjóri loksins en hann sá greinilega ekki útganginn á mér fyrr en ég var kominn í bílinn því honum dauðbrá,“ segir Páll um við- brögð bjargvættarins sem var sá eini sem sá að sér og aðstoðaði manninn. Hann ók honum á bráðamóttökuna þar sem hann fékk aðhlynningu. „Ég borgaði svo bara leigubílinn og þakkaði honum kærlega fyrir,“ seg- ir Páll sem heimtaði sjálfur að borga bílstjóranum fargjaldið. Dularfulli samverjinn Sjálfur segist Páll ekki muna hjá hvaða leigubílastöð bjargvætturinn starfar né hvað hann heitir. Þrátt fyrir nokkra leit náðist ekki að hafa uppi á honum. Páll segist þakklátur bílstjór- anum því ekki mátti muna minna. Þegar hann var lagður inn á spítala þurfti að vefja hann í hitateppi því kuldinn hafði tekið af honum hættu- lega mikinn toll. Páll þurfti að gangast undir aðgerð þar sem bein var tekið úr mjöðm og sett í brot sem hann hlaut fyrir neð- an auga. Hann segir aðgerðina hafa gengið vel og er hann á batavegi. Páll segist bera sig vel þessa dagana enda að ná bata. Hann gagnrýnir þó har- kalega þá bílstjóra sem óku framhjá honum og það gerir hann með réttu. Þá má geta þess að það er saknæmt að aðstoða ekki fólk í neyð. miðvikudagur 28. Febrúar 200710 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Borgi ekki ítrekað fyrir efnið Neytendur ættu að fá að kaupa nýjan disk með af- slætti ef geisladisk- ar eða mynddisk- ar skemmast, segir Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda. Hann segir að eðli málsins sam- kvæmt ætti afnotaréttur efnisins á disknum að vera stærsti hluti kaupverðsins. Því ættu neytend- ur að geta keypt nýjan disk ódýrt gegn því skila þeim sem hefur skemmst. Þetta kemur fram í pistli Gísla á vef embættisins þar sem hann fjallar um hvernig sé hægt að taka á því þegar geisla- diskar eyðileggjast. Þar tiltek- ur hann sérstaklega diska með barnaefni sem verði oft fyrir margvíslegu hnjaski. Hann segir eðlilegt að fólk greiði aðeins fyrir nýjan disk en ekki ítrekað fyrir afnotaréttinn. Nýr formaður Hverfisráðs Borgarráð hefur samþykkt að Birna K. Jónsdóttir verði skipuð formaður Hverfisráðs Grafarholts og Úlfarsársdals. Birna tekur við af Steinari Björnssyni sem látið hefur af störfum vegna brottflutnings. Fyrsti fundur í Hverfisráðinu undir stjórn nýs formanns verður þann 6. mars næst- komandi. Birna hefur meðal annars starfað áður á rekstrar- og afgreiðslusviði Seðlabanka Íslands. Neita enn að lýsa skoðun sinni Tillögu um að bæjarfulltrúar Samfylkingar gæfu upp afstöðu sína til stækkunar álversins í Straumsvík var vísað frá á bæj- armálafundi flokksins í fyrra- kvöld. Bæjarfulltrúarnir hafa hingað til þvertekið fyrir að gefa upp afstöðu sína til stækkun- ar. Andstæðingar stækkunar lögðu tillöguna fram á fundinum í fyrrakvöld. Henni var svarað með frávísunartillögu sem var samþykkt. Allir bæjarfulltrúarn- ir nema einn, Guðfinna Guð- mundsdóttir, greiddu atkvæði með frávísunartillögunni. Leiki minnsti vafi á að umsækjandi um vistun á Vernd sé hæfur til dvalar þar verður honum synjað um vist, segir í ályktun stjórnar Verndar. Ákvörðun- in var tekin eftir að þátturinn Komp- áss greip kynferðisbrotamanninn, Ág- úst Magnússon, þar sem hann hugðist hitta stúlku undir lögaldri. Eins fannst barnaklám á tölvum Ágústs á Vernd en þar er netsamband. „Það er ljóst að breytingar verða gerðar á inntökuskilyrðum þeirra sem sækja um á Vernd og hafa brotið af sér í ákveðnum brotaflokkum. Auðvitað höfum við áhyggjur af þeim mönnum sem eiga þar af leiðandi minni mögu- leika, það er því áríðandi að fundn- ar verði aðrar leiðir fyrir þá menn til að aðlagast samfélaginu á nýjan leik,“ segir Þráinn Farestsveit, fram- kvæmdastjóri Verndar. Stjórn Verndar treystir húsnefnd áfangaheimilisins, eftir atvikið með Ágúst, fyrir því að afgreiða af fyllstu aðgát umsóknir brotamanna sem sem dæmdir hafa verið fyrir ofbeldisbrot og kynferðisbrot og þá einkum kyn- ferðisbrot gegn börnum.Telur stjórnin að hagsmunir hverfisins og síðast en ekki síst öryggi barna þar skuli vera í fyrirrúmi. Eins kemur fram í ályktun- inni að stjórnin hafi áhyggjur af þeim áhrifum sem vistun tiltekinna brota- manna kynni að hafa á úrræðið. hrs@dv.is Breytt skilyrði fyrir vistun á Vernd: Möguleikar barnaníðinga minnka 150 milljarða króna halli Vöruskiptajöfnuður við út- lönd var mun lakari á síðasta ári en búist hafði verið við. Hall- inn nam tæpum 150 milljörð- um króna. Það er 23 milljörðum króna meira en ráðgert var í vetr- arskýrslu fjármálaráðuneytisins. Þá var gert ráð fyrir 126 milljarða króna halla á viðskiptum við út- lönd. Á síðasta ári nam hallinn rétt rúmlega hundrað milljörð- um króna. Helmingur þeirrar upphæðar sem vanáætluð var er tilkominn vegna kaupa á flugvél- um. Hallinn nemur um 24 pró- sentum af landsframleiðslu. Vélvirkinn Páll Kristinsson lenti í hremmingum um helgina þegar enginn vildi stöðva bifreið sína fyrir honum. Hann stórslasaðaðist þegar hann féll á höfuðið á steyptan brunn. Það varð honum hugsanlega til lífs að leigubílstjóri stoppaði og ók honum á spítala. Stórslasaður borgaði „Þeir hótuðu mér kynferðislega og það má vel vera að þeir hafi verið að grínast, en svona eftir á finnst manni þetta ekki mjög fyndið.“ fyrir leigubíl valur grettisson blaðamaður skrifar: valur@dv.is steyptur brunnur Páll rúllaði niður brekku þar til hann skall með andlitið á enda óvarins brunnsins og stórslasaðist Páll Kristinsson vélvirkinn Páll þurfti að ganga heljarinnar vegalengd stórslasaður en enginn stöðvaði bifreið sína fyrir honum. vernd reglum um hverjir fá vistun hefur verið breytt eftir að vistmaðurinn Ágúst magnús- son braut af sér. Framboðið að verða að veruleika „Mér heyrist vera talsverður hugur í eldri borgurum og ég vona að menn nái saman um að samþykkja tillögu um slíkt fram- boð,“ segir Arnþór Helgason, einn þeirra sem undirbúa sam- eiginlegt framboð eldri borgara og öryrkja. Verkefnaskrá sem framboð- ið á að byggja á var samþykkt á fundi Átakshóps öryrkja í gær. Úrslitin ráðast svo á sunnudag þegar eldri borgarar fjalla um verkefnaskrána. Áherslan er lögð á að berjast fyrir réttindum og hagsmunum lífeyrisþega sem aðstandendur fyrirhugaðs framboðs segja hafa verið látin sitja á hakanum hin síðari ár.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.