Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2007, Síða 8
Svifryksmengun var skaðleg
heilsu á mánudag þegar mengun-
in fór yfir heilsuverndarmörk. Þann
sólarhringinn mældist mengunin
að meðaltali rúm 66 míkrógrömm á
rúmmetra en fari mengunin yfir 50
míkrógrömm er hún talin skaðleg
heilsu. Í gær var svifrykið mun minna
og undir mörkum enda meiri vindur
til að hreinsa andrúmsloftið.
Svifrykið hefur farið yfir æskileg
mörk fimm sinnum á þessu ári en
það þýðir að átján dagar eru eftir af
kvótanum samkvæmt reglugerð um
helstu loftmengandi efni í andrúms-
lofti. Á síðasta ári voru dagarnir 29
talsins sem er jafnmikið kvótanum
það árið. Fjölda daga sem leyfilegt
er að svifrykið sé yfir heilsuvernd-
armörkum fer fækkandi ár frá ári og
árið 2010 verða þeir ekki nema sjö
talsins. Reynslan hefur sýnt að meng-
unin hefur oft farið yfir heilsuvernd-
armörk í marsmánuði. Þá er önnur
hver bifreið á nagladekkjum og götur
oft þurrar. Því er æskilegt að fólk geri
tilraun til þess að hvíla einkabílinn
og nota aðrar leiðir til þess að kom-
ast á milli staða. hrs@dv.is
miðvikudagur 28. Febrúar 20078 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Svifryk má fara yfir æskileg mörk 23 daga á ári:
Átján dagar eftir af kvótanum
Svifryk Þegar svifryksmengun er mikil er hún oft vel sýnileg. DV-mynd Stefán
Óróleikinn yfir
meðallagi
Jón Kristjánsson þingforseti
mátti hafa sig allan við að hafa
hemil á þing-
mönnum við upp-
haf þingfundar í
gær. Hann sló á
köflum ótt og títt
í bjöllu sína til að
hafa taumhald á
þingmönnum en
með misjöfnum
árangri. „For-
seti vill enn og aftur beina því til
þingmanna að óróleikinn er fyrir
ofan meðallag,“ sagði Jón þegar
hann áminnti þingmenn um að
gjamma ekki fram í þegar aðrir
þingmenn væru í ræðustól. Óró-
ann mátti meðal annars rekja til
umræðna um jafnréttismál og
hvort vinstri græn væru reiðubúin
að svíkja hugsjónir fyrir stjórn-
arsetu.
Vinstri græn
að selja sig
Ólafur Níels Eiríksson, vara-
þingmaður Framsóknarflokks-
ins, spurði við
upphaf þingfund-
ar hvaða málefni
vinstri græn væru
reiðubúin að selja
í skiptum fyrir
sæti í ríkisstjórn.
Hann lagði út af
orðum Steingríms
J. Sigfússonar, for-
manns Vinstrihreyfingarinnar
- græns framboðs, á flokksþingi
um að flokkurinn myndi selja sig
dýrt í stjórnarmyndun án þess að
vilja útiloka ákveðið samstarf. Siv
Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra
sagði Vinstri-græn og Samfylk-
ingu sleikja Sjálfstæðisflokkinn
upp. „Það er stórkostleg gaman-
semi hjá heilbrigðisráðherra að
koma hingað upp og kvarta und-
an því að aðrir stjórnmálaflokk-
ar tali of hlýlega um Sjálfstæðis-
flokkinn, stórkostleg gamansemi,“
sagði Steingrímur J. Sigfússon.
Jarðskjálftar á
Reykjaneshrygg
Nokkur skjálftavirkni
mælist nú um 65 kílómetra
suðvestur af Reykjanesi.
Stærstu skjálftarnir mældust
um fjórir á Richter, í fyrrinótt.
„Það kom svona hálftíma
skjálftapúst um eftirmiðdag-
inn í gær. Þetta er eldvirkt
svæði þannig að það hvarflar
að manni að það sé einhver
kvikuhreyfing í gangi. Það
mælist ekki gosórói á svæðinu
þannig að við erum nokkuð
viss um að það er ekki byrjað
að gjósa,“ segir Steinunn Jak-
obsdóttir á Veðurstofu Íslands.
Einhver mesta byggðaröskun Íslands-
sögunnar hefur átt sér stað á tólf ára
valdatíma Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks sagði þingmaður Sam-
fylkingar á þingi í gær. Hún spurði
hvort sinnuleysi, viljaleysi eða getu-
leysi væri um að kenna.
„Hér eru stór landsvæði þar sem
heilu byggðarlögin hanga á blá-
riminni,“ sagði Anna Kristín Gunn-
arsdóttir, þingmaður Samfylk-
ingarinnar. Hún sagði að jafnvel
landshlutakjarnar eins og Ísafjörður
færu ekki varhluta af hnignun lands-
byggðarinnar þótt höfuðáhersla
væri lögð á að styrkja þá. Þetta sagði
hún sýna sig í því að Marel hefði ný-
lega lokað starfsstöð sinni þar. Jafn-
framt sagðist hún hafa heimildir fyr-
ir því að fleiri válegra tíðinda væri
að vænta í atvinnumálum á þessum
slóðum.
„Ætli það hafi eitthvað með van-
rækslu Sjálfstæðisflokksins í sam-
göngumálum að gera?“ spurði Anna
Kristín þegar hún velti fyrir sér ástæð-
um þess að landsbyggðinni hrak-
aði. Hún sagði sjálfstæðismenn hafa
svikið kosningaloforð um samgöngu-
bætur og það ásamt öðru græfi und-
an möguleikum minni byggðarlaga á
landsbyggðinni.
Viðvarandi verkefni
Aðgerðir í byggðamálum eru ekki
áhlaupaverk heldur viðvarandi verk-
efni, sagði Jón Sigurðsson, ráðherra
byggðamála. Hann sagði rétt að hafa
í huga að það væri ekki fyrir aðgerð-
ir stjórnvalda sem landsbyggðin gæfi
eftir. Ástæðan væri sú að atvinnan
byggði víða á frumatvinnugreinum
þar sem tæknivæðing væri í fullum
gangi og samhliða því fækkaði störf-
um.
„Það er mikill misskilningur að
meta vaxtarsamninga aðeins eftir
þeim fjárframlögum sem koma úr rík-
issjóði,“ svaraði Jón gagnrýni á vaxt-
arsamninga við svæði á landsbyggð-
inni. Hvort tveggja væri að fleiri aðilar
legðu fram fé og eins væru mörg og
umfangsmikil verkefni í gangi til að
styrkja landsbyggðina.
Engu fylgt eftir
„Íbúum Ísafjarðar hefur verið talin
trú um að þeir væru landshlutakjarni.
Því hefur engan veginn verið fylgt eft-
ir,“ sagði Jón Bjarnason, þingmaður
vinstri grænna og gagnrýndi byggða-
stefnu stjórnvalda. Hann gagnrýndi
sérstaklega að ekki hefði verið staðið
við loforð um jöfnun flutningskostn-
aðar.
Samgönguáætlun miðar að því að
styrkja hinar dreifðu byggðir, sagði
Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokks-
formaður Sjálfstæðisflokks. „Það hef-
ur aldrei verið lagt jafn mikið í sam-
göngumál, þrátt fyrir orð háttvirts
þingmanns Önnu Kristínar áðan.“
Frjálslyndi þingmaðurinn Kristinn
H. Gunnarsson sagði aðgerða þörf.
„Við trúum því að það sé ekki yfirlýst
markmið ríkisstjórnarinnar að fækka
fólki á landsbyggðinni og fjölga því á
höfuðborgarsvæðinu.“
Byggðunum blæðir út
„Staðan er sú að fólki hefur ver-
ið að fækka víðsvegar um landið og
ekki síst í þeim jaðarbyggðum sem
hér var komið inn á í framsögu,“ sagði
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formað-
ur Samfylkingarinnar. Hún sagði
tekjugrunn sveitarfélaganna hrynja,
fyrirtækin leggja upp laupana og
hagvöxtur hefði verið neikvæður á
landsbyggðinni. „Þessum byggðum
blæðir út. Þeim blæðir út.“
Stjórnarandstæðingar gagnrýndu stjórnvöld harðlega fyrir að hafa brugðist algjörlega
í byggðamálum. Frammistaðan hefur aldrei verið verri en nú sagði formaður vinstri
grænna og þingmaður Samfylkingarinnar sagði ráðherra ríkisstjórnarinnar ekki ráða
við verkefni sín í byggðamálum.
Heilu byggðarlögin
Hanga á bláriminni
BRYNJÓLFUR Þ. GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar: brynjolfur@dv.is
„Þessum byggðum blæðir
út. Þeim blæðir út.“
rannsaka fækkun
sjófugla
Sjófuglum á Breiðafirði hefur
fækkað að sögn Róberts Stef-
ánssonar forstöðumanns Nátt-
úrustofu Vesturlands. Breiða-
fjarðarnefnd óskað eftir því að
Náttúrufræðistofnun Íslands og
fleiri aðilar setjist niður og geri
áætlun um rannsóknir vegna
þessa. „Við leituðum eftir styrk
frá umhverfisráðuneyti til þess
að rannska þetta en var hafnað.
Það blasir við að þessum fugl-
um hefur fækkað. Það þarf að
rannsaka þetta vandlega,“ segir
Róbert.
Byggðir í hættu Þingmenn
gagnrýndu harkalega hvernig
stjórnvöld hefðu staðið að
byggðamálum. afraksturinn var
sagður verri en nokkru sinni fyrr.
Varað við
hlutabréfum
Undanfarið hafa borist til-
kynningar til lögreglunnar á
höfuðborgarsvæð-
inu um að verið sé
að hringja
í fólk fyr-
irvaralaust
erlendis frá
og bjóða
fram hag-
stæð kaup á
hlutabréfum í er-
lendum fyrirtækjum.
Lögreglan telur rétt að vara við
að taka þátt í öllum slíkum við-
skiptum enda hafa komið upp
tilvik þar sem tapast hafa millj-
ónir króna er menn hafa látið
blekkjast. Skemmst er að minn-
ast nígeríupóstanna svokölluðu
en þar urðu einstaklingar fyrir
verulegu fjártjóni.