Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2007, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2007, Qupperneq 12
miðvikudagur 28. Febrúar 200712 Fréttir DV vorsókn í AfgAnistAn Yfirmenn herliðs NATO í Afganistan vita að þegar snjóa leysir í fjöllum með vorinu sækja andspyrnuliðar og hryðju- verkamenn í sig veðrið. Beggja vegna víglínunnar búa menn sig undir sókn í suðurhluta landsins, þar sem uppreisn- armenn flakka hindrunarlítið yfir landa- mærin milli Afganistans og Pakistans. Hert landamæravarsla á löngum og eftirlitslitlum landamærum Pakistans og Afganistans var eitt af helstu umræðuefnunum þeg- ar Dick Cheney fundaði með for- setum landanna hvorum í sínu lagi í gær og fyrradag. Suðaust- urhéruð Afganistans, sem liggja að Pakistan, eru órólegustu upp- reisnarsvæði landsins. Landa- mæri landanna eru tæplega 2.400 kílómetra löng og liggja um strjál- býl fjöll í norðri og eyðimerkur í suðri. Hryðjuverkamennirnir virð- ast sérstaklega eiga góð samskipti við Balúka, sem búa í – og telja sig eiga – stærsta hérað Pakistans, í vesturhlutanum sem liggur að Af- ganistan. Frjálst flæði uppreisnarmanna og vopna streymir yfir landamær- in. Afganskir talibanar sækja í skjólið Pakistans-megin og launa sjálfstæðissinnuðum Balúkum með vopnum og peningum, að sögn pakistanskra yfirvalda. Meiri- hlutanum af afgönsku ópíumi er einnig smyglað út úr landi í gegn- um eyðimerkur Balúkistans. Bretar og Bandaríkja- menn fjölga Síðasta ár var það alblóðugasta síðan bandamenn réðust inn í Af- ganistan árið 2001, til að steypa talibönum af stóli og hafa uppi á Osama bin Laden. Áhyggjur af því að herlið NATO ráði ekki við sí- versnandi stöðuna í landinu urðu til þess að aðildarþjóðirnar voru eggjaðar til að senda liðsstyrk til landsins. Bretar senda á næstu mánuð- um 1.400 hermenn til Afganist- ans, til viðbótar við þá 6.300 sem eru þar fyrir og Bandaríkjamenn sögðu fyrr í mánuðinum að þeir myndu fjölga í herliðinu um 3.200. Varnarmálaráðherra Bretlands, Des Browne, sagði í fyrradag að hinn valkosturinn; að fjölga ekki í Afganistan, væri óásættanlegur, bæði fyrir Afganistan og fyrir öryggi Breta. „Ég hef ítrekað sagt að það er engin einföld hernaðarleg lausn á vandamálum Afganistans. En ef við getum ekki hjálpað fólkinu að finna öryggi og sannfært það um að lýðræðislega kjörin stjórn, með okkar aðstoð, muni sigra talibana, þá eigum við á hættu að missa allt sem hefur áunnist í Afganistan.“ Hik hjá NATO-ríkjum Flestar aðrar NATO-þjóðir hafa hins vegar haldið að sér höndum, Bretum og Bandaríkjamönnum til mikilla vonbrigða. Á nýlegum ráð- herrafundi NATO í Riga í Lettlandi var mest rætt um skilyrði sem þjóðir vildu setja fyrir eigin her- menn, til þess að tryggja að þeirra eigin þegnar yrðu ekki sendir í hættulegustu verkefnin. 15–16 Íslendingar eru nú í Af- ganistan eða á leiðinni þangað innan mánaðar. Valgerður Sverr- isdóttir, utanríkisráðherra, hefur lýst því yfir að hún vilji fjölga enn frekar í liðinu þannig að seinni hlutann af árinu gætu verið 20–25 íslenskir friðargæsluliðar í Afgan- istan. Íslendingarnir eru þó ekki á átakasvæðunum í Afganistan, heldur á flugvellinum í Kabúl og í norðurhluta Afganistans. „Ég hef ítrekað sagt að það er engin ein- föld hernaðarleg lausn á vandamálum Afganistans. En ef við getum ekki hjálpað fólkinu að finna ör- yggi og sannfært það um að lýðræðislega kjörin stjórn, með okkar aðstoð, muni sigra talibana, þá eigum við á hættu að missa allt sem hefur áunnist í Afganistan.“ Herdís sigurgrímsdóTTir blaðamaður skrifar: herdis@dv.is Hermaður og úlfaldahirðir Nýlega var fækkað í herliði breta í Írak, meðal annars til þess að senda mætti fleiri breska hermenn til Suður-afganistans. bandaríkjamenn munu einnig fjölga hermönnum, en flest önnur NaTO-ríki hika.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.