Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2007, Síða 15
DV Sport miðvikudagur 28. Febrúar 2007 15
Sport
miðvikudagur 28. febrúar 2007
sport@dv.is
Manchester United Mætir MiddlesbroUgh í næstU UMferð enskU
bikarkeppninnar eftir sigUr á reading í frábærUM leik. sjá síðU 16.
Guus Hiddink dæmdur í sex mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir skattsvik
Chelsea eru níu stigum á eftir Manchest-
er United í deildinni eftir að Christiano Ron-
aldo skoraði sigurmark United á móti Fulham
á laugardag. Þeir eru einnig í góðum málum í
Meistaradeildinni eftir að Ryan Giggs skoraði
afar umdeilt mark gegn Lille. José Mourinho,
stjóra Chelsea, finnst ekki leiðinlega að vera í
sviðsljósinu og lét gamminn geisa í viðtali við
breska fjölmiðla.
„Þetta tímabil hefur United ekki lent í nein-
um meiðslum og allir leikmenn verið heilir í all-
an vetur. Þeir mættu Lille í Meistaradeildinni
og mark Lille var dæmt af en þeirra „mark“ var
dæmt gott og gilt. Þeir fóru til Fulham og áttu
skilið að tapa en unnu samt. Ég sá reyndar ekki
leikinn en miðað við þær upplýsingar sem ég
hef fengið var þetta óverðskuldaður sigur. Þeir
spiluðu við Tottenham og í stöðunni 0-0 var
Christiano Ronaldo með leikræna tilburði inni
í teig, víti dæmt og leikurinn fór 4-0. Það virðist
allt ganga upp hjá þeim en svona er fótboltinn.“
Mourinho stýrði Chelsea til sigurs í deild-
arbikarnum um helgina í annað skiptið frá
því hann tók við. Hann sagði að Arsene Weng-
er væri undir minni pressu á að vinna titla en
hann sjálfur. „Arsenal er með frábæra unga
leikmenn. Ég myndi ekki gráta það ef stjórn-
in gæfi mér þrjú, fjögur, fimm ár og segði svo
við mig: Þú þarft ekki að vinna, það er allt í lagi
að tapa titli eftir titli. Síðan ég kom til Chelsea
hafa Arsenal-menn tapað deildartitlinum, þeir
töpuðu fyrir okkur í Samfélagsskildinum og í
deildarbikarnum. Þeir eru með frábæra stráka,
stjóra í heimsklassa og lið sem á framtíðina fyr-
ir sér, en þeir skila ekki titlum í hús. Um það
snýst þetta,“ sagði þessi litríki stjóri Chelsea og
halda mætti að hans menn hefðu aldrei unnið
leik sem þeir áttu ekki skilið. benni@dv.is
José Mourinho Það verður ekki af honum
mourinho tekið að hann hefur skilað nokkrum
titlum í hús fyrir roman abramovich.
José Mourinho segir að lukkan sé með Manchester United og gagnrýnir metnaðarleysi Arsenal:
GaGnrýnir keppinautana
Og það var mark!
Ole gunnar Solskjær
skoraði þriðja mark
manchester united með
góðu utanfótarskoti.
Frábær leikur
á Madejski
Allt um leiki næturinnar í NBA
NBA