Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2007, Síða 20
Menning
miðvikudagur 28. febrúar 200720 Menning DV
Pourquoi-pas?
Sýning tileinkuð Jean-Bapt-
iste Charcot stendur yfir í Há-
skólasetri Suðurnesja. Jean-
Baptiste Charcot var læknir
og heimskautakönnuður og
fórst með rannsóknarskipi sínu
Pourquoi-Pas? í óveðri út af
Mýrum árið 1936. Ásamt honum
fórst öll áhöfnin utan einn.
Meðal þeirra muna sem eru
á sýningunni eru hlutir sem rak
á land úr Pourquoi-Pas? Frú
Anne-Marie Vallin-Charcot,
barnabarn Charcots, hefur gefið
persónulega muni til sýningar-
innar auk þess sem Þjóðminja-
safnið, Byggðasafn Suðurnesja
og fleiri hafa lagt til muni.
Ný málverk
Í galleríinu Art-Iceland.com, Skólavörðustíg
1a, stendur yfir sýning Kjartans Guðjónssonar
og Sigurðar Örlygssonar, Ný málverk.
Sýningin er þáttur í Vetrarhátíð og Safnanótt
og stendur til 10. mars.
Konur og Íslam
Klukkan 16.15 í dag verður
haldið námskeið í Alþjóðahús-
inu. Þar verður fjallað um stöðu
kvenna á Arabíuskaganum. Þrátt
fyrir kennisetningar Múhamm-
eðs spámanns og lagasetning-
ar fjölda ríkja einkennist staða
kvenna þar af undirokun og
kynjabundinni mismunun.
Leiðbeinandi á námskeið-
inu er Amal Tamimi fræðslufull-
trúi Alþjóðahúss. Hún er fædd
og uppalin í Palestínu. Hægt er
að skrá sig í síma 5309300 eða
amal@dv.is.
Tónlistar-
veisla á
Akureyri
Næstu helgi verður hald-
in tónlistarveisla hjá Tónlist-
arskólanum á Akureyri og Sin-
fóníuhljómsveit Norðurlands.
Laugardaginn 3. verða tónleik-
ar í gangi allan daginn og taka
þátt nemendur á öllum stigum.
Sunnudaginn 4. heldur Sinfón-
íuhljómsveit Norðurlands ásamt
strengjasveit Tónlistarskólans
á Akureyri tónleika í Akureyr-
arkirkju. Tónleikarnir hefjast
klukkan 16.
Leikfélag ME frumsýnir nýtt
verk á hverju ári og að sögn leik-
stjórans, Guðjóns Sigvaldasonar,
hafa stífar æfingar staðið yfir í sjö
vikur.
„Verkið sem varð fyrir valinu
er í ár er gamansamur söngleikur,
saminn af tveimur 19 ára nemend-
um skólans. Jónas Reynir Gunn-
arsson, sem er annað aðilinn að
baki teiknimyndarsögunnar Art-
húrs, semur leiktextann og Hjalti
Jón Sverrisson semur tónlistina.
Þeir byggja texta og tónlist laus-
lega á tölvuleikjunum vinsælu um
Súper Maríó og í sýningunni kem-
ur margt kunnuglega fyrir sjónir,
svo sem nöfn, frasar og stef.
Að sögn Guðjóns koma tuttugu
leikarar komi fram í verkinu og
álíka stór hópur standi að verkinu
að tjaldabaki.
„Æfingar standa enn yfir á fullu
og enn er eftir að herða nokkrar
skrúfur. Við erum mjög spennt
fyrir frumsýningunni á föstudag-
inn. Það verður enginn svikinn
af þessari sýningu og verkið er
mjög skemmtilegt af höfundanna
hálfu.“
thorunn@dv.is
Súper Maríó býr um sig á leiksviði Menntaskólans á Egilsstöðum
Súper Maríó kemur til Egilsstaða
Auðunn Gestsson varð 69
ára í gær. Reykvíkingar þekkja
hann betur sem Auðun blaðasala
og minnast hans sennilega helst
þar sem hann stóð við Laugaveg-
inn seljandi Dagblaðið í gríð og
erg.
Óþreytandi og einbeittur
þrammaði Auðunn upp og nið-
ur Laugaveginn og seldi grimmt
því hann átti sína fastakúnna, en
það var ekki alltaf friður í þessum
rekstri. Laugavegurinn var eftir-
sóttur staður til blaðasölu og mik-
ilvægt að standa sig vel. En Auð-
unn naut virðingar stéttarbræðra
sinna og var því helst um að ræða
reynslulitla nýliða í stéttinni sem
ógnuðu honum, en uppgjöf var
ekki valkostur að mati Auðuns
blaðasala.
Auðunn er heiðarlegur og
skilvís eins og eftirfarandi saga
sýnir: Auðunn var á leið í bíó en
komst að því þar sem hann stóð
við miðalúguna að hann vantaði
tíu krónur til að geta keypt mið-
ann. Var Auðunn að því kominn
að snúa frá þegar maður fyrir aft-
an hann rétti honum það sem
upp á vantaði. Segir ekki meira
af bíóferðinni. Margt löngu síð-
ar var þessi ónefndi maður á ferð
við Hlemm og rakst þá á Auðun
og ákvað að kaupa hjá honum
blaðið. Blaðið fékk hann svika-
laust, en Auðunn tók ekki í mál
að taka greiðslu fyrir. Því þar
mundi hann eftir bjargvættinum
í bíóferðinni góðu og nú skyldi
skuldin greidd.
Auðunn var ein litríkasta per-
sónan í þessari þá stóru starfstétt
sem heyrir nú sögunni til. Í tilefni
afmælis Auðuns ákvað Sólheima-
útibú Borgarbókasafnsins að halda
sýningu á verkum afmælisbarns-
ins. „Auðunn hefur verið iðinn við
að mála og hefur undanfarið sótt
námskeið í myndlist einu sinni í
viku. Hann kemur mjög oft til okk-
ar og færir okkur gjarnan myndir
við þau tækifæri. Okkur þykir mjög
vænt um hann,“ segir Áslaug Ótt-
arsdóttir safnstjóri Borgarbóka-
safnsins á Sólheimum. Á sýning-
unni verða sextán myndir, „og þær
eru mjög skemmtilegar og sætar,“
segir Áslaug.
Starfsfólk DV óskar afmælis-
barninu til hamingju með afmæl-
ið.
...en Auðunn tók ekki
í mál að taka greiðslu
fyrir. Því þar mundi
hann eftir bjargvætt-
inum í bíóferðinni
góðu og nú skyldi
skuldin greidd.
Áður fyrr setti ákveðin stétt mikinn svip á mann-
líf borgarinnar. Þeir sem henni tilheyrðu læddust
ekki með veggjum, heldur þvert á móti gengu um
með köllum. Sumir áttu sitt fasta horn í bænum
meðan aðrir gengu upp og niður Laugaveginn og
víðar. Þar sem þeir buðu vöru sína til kaups mátti
heyra þá kalla...
Dagblaðið
Myndlist
Vísir!
Frá æfingu á nýjum söngleik Skraut-
legir karakterar túlka Súper maríó í
tali og tónum.