Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2007, Side 21
DV Lífsstíll þriðjudagur 3. apríl 2007 21
LífsstíLL
Ný skynjun
dagana 5.-6. maí verður haldið námskeið á vegum Heilsustofu lilju og Ella í Hafnarfirði
þar sem þáttakendur læra meðal annars að víkka vitund sína, ná hærra stigi í sköpunar-
gáfu, ná tökum á hraðlestrartækni og jafna starfsemi milli beggja heilahvela. Notuð er
svokölluð Hemi-Sync hljóðtækni sem þróuð hefur verið og rannsökuð af Monroe
stofnuninni síðastliðin 40 ár.
Gjafir sem gera gagn
Geit eða frelsi
barNs í fermiNGarGjöf
Uppfærsla
fyrir hUGaNN
Ný handbók að betra lífi er komin út
eftir Barböru Berger sem skrifaði hinar
vinsælu bækur
Skyndibitar fyrir
sálina og Fleiri
skyndibitar fyrir
sálina. í þessarri
bók Barböru,
sem heitir
Hugræn tækni
og andlegu
lögmálin tíu, eru
lesendur hvattir
til þess að grípa
gæfuna og
uppfæra
hugbúnaðinn
sem stýrir hugsunum með því að
tileinka sér andlegu lögmálin tíu því til
þess að mannshugurinn virki rétt þarf
hann að vera í lagi. . Stjórnunarfélagið
selur bókina á tilboðsverði á 1490
krónur og einnig er hægt að fá allar
þrjár bækur Barböru fyrir 3500 krónur.
betri vélritUN-
arkUNNátta
þeir sem eru að sækja um starf þar sem
vélritunarkunnáttu er krafist geta tekið
próf inn á
heimasíð-
unni www.
réttritun.is til
að finna út
hversu mörg
slög þeir slá
á mínútu.
Vefurinn,
sem er
ókeypis
fjarnámsvef-
ur, er annars
hægt að nota ekki bara til að bæta
vélritunarkunnáttuna heldur einnig til
þess að bæta stafsetninguna. þar er að
finna allar helstu stafsetningarreglur og
gagnvirkar æfingar sem hjálpa til við að
ná betri tilfinningu fyrir málinu.
iNNkaUpapokar út
í San Francisco sést brátt ekki nokkur
maður út á götu með innkaupapoka því
yfirvöld þar hafa bannað verslunum að
bjóða upp á óendurvinnanlega
plastpoka og gildir bannið í hálft ár.
gömlu góðu innkaupatöskurnar koma
þess í stað sterkar inn enda mun
umhverfisvænni. íslendingar mættu
alveg taka þetta líka upp, innkaupatösk-
ur á hjólum, framleiddar fyrir tíma
plastpokanna, leynast örugglega í
einhverjum geymslum.
fUllkomiN feGUrð
Frederic Fekkai er nafn sem þeir sem
vilja líta virkilega vel út ættu og hafa efni
á því að borga fyrir það ættu að leggja á
minnið. Til þessa rómaða fegurðarfræð-
ings og stílista leita allar fegurstu konur
Hollywood til Frederic, sem tekur
stjörnurnar í einkameðferðir og
ráðleggur þeim hægri, vinstri, rekur
einnig snyrti- og hárstofur undir eigin
nafni og framleiðir eigin snyrtilínu. í
vörulínu Frederic Fekkai má meðal
annars finna vöru sem kallast Overnight
Hair repair. þetta er snilldarefni sem
hefur hárinu hreinan glamúr á meðan
sofið er. Efnið er afar létt í sér og smitast
ekki á koddann þannig að fegrunar-
blundurinn verður hreinlega fullkominn.
Það færist sífellt í vöxt að fólk frá-
biðji sér gjafir á stórafmælum og
óski fremur eftir stuðningi við
líknarfélög eða til góðgerðarmála.
Fermingargjafir geta líka verið af
þessum toga og mörgum ferm-
ingarbörnum þykir vafalaust vænt
um að stóri dagurinn í lífi þeirra
hafi orðið einhverju til gagns; jafn-
vel lífs. Hjá Hjálparstarfi kirkjunn-
ar er hægt að kaupa gjafakort fyr-
ir upphæð að eigin vali. �okkrar
hugmyndir: Geit í Afríku og tvær
hænur fyrir 3.000.- krónur, að
leysa þrælabarn úr ánauð 5.000
krónur - og svo er hægt að fá tvær
hænur fyrir 1000 krónur.Einnig er
hægt að gefa peninga til mennt-
unar barna á Indlandi. Gjafakort-
ið er hægt að nálgast hjá Hjálpar-
starfi kirkjunnar sem nýverið flutti
í Grensáskirkju, Háaleitisbraut
66, en ef gefandinn óskar eftir að
kortið sé fyllt út af starfsmönnum
þar, þarf að panta það með sólar-
hrings fyrirvara. Fleiri upplýsing-
ar um hvernig hægt er að gefa gjöf
til gagns má finna á heimasíðunni
help.is
annakristine@dv.is
„Það er miklu meira um það að
karlmenn séu skósjúklingar, miklu
meira en menn gera sér grein fyr-
ir,“ segir Þráinn Jóhannsson, betur
þekktur sem Þráinn skóari á Grettis-
götu. Þráinn er ófeiminn við að við-
urkenna að hann hafi verið haldinn
skóbakteríu frá því á unglingsárun-
um og að hún sé síður en svo að rját-
last af honum. „Karlmenn leyfa sér
bara síður en konur að vera sjúkir í
skó,“ segir skósmiðurinn sem nýver-
ið tók upp þann skemmtilega sið að
stilla áhugaverðum skóm út í glugg-
ann á verkstæði sínu. Þessa dagana
er þar að finna tvö karlmannsskó-
pör, annars vegar gullfallega ferm-
ingarskó frá 1975 og hins vegar
handsmíðaða ítalska skó frá 1978,
en bæði pörin eru í hans eigin eigu.
„Fermingarskórnir voru keyptir í
verslun á Laugavegi og ég valdi þá
sjálfur. Fólki finnst afskaplega gam-
an að sjá þá og margir virðast sjá eft-
ir því að hafa ekki sjálfir haldið upp
á eigin fermingarskó. Hinir skórnir
eru frá árinu sem ég hóf nám í skó-
smíði.“
Að sögn Þráins er meiningin
að skipta um ústillingu í gluggan-
um einu sinni til tvisvar í mánuði.
Þannig má þar fljótlega sjá forláta
skó sem fundust uppi á háalofti í húsi
við �jálsgötu. „Skórnir eru sérstakir
fyrir þær sakir að þeir eru með tré-
sóla sem beygist. Ég gæti best trúað
að þeir væru frá millistríðsárunum,
framleiddir í austantjaldslöndun-
um,“ segir Þráinn. Hann upplýsir að
sjálfur eigi hann ógrynni af áhuga-
verðum skóm en einnig hafi hann
falast eftir skóm til sýnis frá heldri
mönnum borgarinnar. Það verð-
ur því fróðlegt að fylgjast með því
hvaða skópör dúkka upp í sýningar-
glugganum á næstunni. „Ég á eigin-
lega flest skópör krakkanna minna.
Það er gaman að halda upp á góða
skó en því miður er hryllilegt að sjá
hvað fólk hendir oft á tíðum miklu.
Vel pússaðir og vandaðir skór geta
verið mikil stofuprýði þótt þeir séu
úr sér gengnir enda yfirleitt mikil sál
og saga í skónum,“ segir Þráinn.
Opnar skóverslun
Þráinn segir að karlmenn í dag hafi
mikinn áhuga á vönduðum og flott-
um skóm og sem gott dæmi um það
þá nefnir hann að fyrir áramót hafi
hann flutt inn 100 pör af handsmíð-
uðum gæðaskóm sem hann hafi selt
á verkstæðinu hjá sér. „Skórnir hafa
fengið gríðarlega góðar viðtökur og
ný sending er á leiðinni,“ upplýsir
Þráinn og bætir við að ýmsar breyt-
ingar séu væntanlegar á skósmíða-
stofu hans. Með vorinu mun hann
opna þar skóverslun sem einbeitir
sér eingöngu að karlmannsfótum,
hvað sem svo seinna verður.
snaefridur@dv.is
Skór með Sál og Sögu
Það er alltaf talað um það að kvenmenn séu skósjúkir. Karlmenn geta þó ekki síður
verið veikir fyrir skóm og gott dæmi um það er skósmíðameistarinn Þráinn Jóhannsson
sem hefur verið með skódellu frá því hann var unglingur. Hann hefur nú tekið upp
þann skemmtilega sið að stilla fallegum skóm úr safni sínu út í glugga svo fleiri geti
notið þeirra.
Flottir fermingarskór
þeir sem eiga leið framhjá skóvinnu-
stofu þráins skóara í miðbænum geta
barið háhæluðu fermingarskóna
hans frá 1975 augum sem og fleiri
fallega skó með sögu. þráinn stækkar
líka fljótlega við sig og opnar verslun
með gæðakarlmannsskó.
Nemendur í Myndlistarskóla Reykjavíkur nota nútímaleg efni úr eigin umhverfi:
áhugaverðar hugmyndir vöknuðu á safninu