Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2007, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2007, Blaðsíða 30
þriðjudagur 3. apríl 200730 Síðast en ekki síst DV veðrið ritstjorn@dv.is miðvikudagurþriðjudagur Sandkorn Um að gera að nýta páskafríið í að ferðast lítils háttar. Þó það sé ekki nema dagsferð eitthvert út á land, skoða Gullfoss og Geysi eða skreppa í sumarbústaðinn. Nóg er um að vera um páskana um allt land bæði fyrir unga sem aldna. Margir vilja líka nýta sér síðustu snjólufsur vetrarins og skella sér á skíði fyrir norðan en það er tilval- in skemmtun fyrir alla fjölskyld- una. Öfugt við búningapartí þar sem allir klæða sig upp í búning eiga allir að mæta með búðing í búð- ingapartíið. Tilvalið er að veita svo verðlaun fyrir besta búðinginn, frumlegasta búðinginn og flottasta búðinginn. Það hressir alltaf upp á partýið að hafa smá skemmtilegt þema og búðingar eru einfaldir í framkvæmd og einstaklega gaman er að sjá fólk leggja metnað í búð- ingagerðina. Sigurvegarar Músíktilrauna og ef maður vill vera með á nótunum er nauðsynlegt að kynna sér þá hljóm- sveit. Metalrokkarar sem eiga pott- þétt eftir að láta meira í sér heyra á næstunni. Flottir á sviði og tromm- arinn alveg magnaður. Shogun eru ungir og efnilegir rokkarastrákar Það er fátt notalegra en að skella sér í heitt og gott freyðibað fyrir svefninn. Ekki skemmir fyrir að keyra róm- antíkina í sjálfum sér alveg í botn og kveikja jafnvel á nokkrum kertum og setja disk uppáhalds hljómsveitar- innar í græjurnar. Það er líka strang- lega bannað að trufla mann þegar maður er í freyðibaði svo gott ráð er að setja símann á þögn. Við mælum með... ..Búðingapartýi ...páskaferðalagi ...shogun dj margeir selur Plötusnúðurinn knái Dj. Margeir hefur sett íbúð sína við Vesturgöt- una á sölu og opnaði dyrnar á sunnudaginn fyrir áhugasöm- um kaupend- um. Íbúðin, sem er bæði björt og fög- ur, þykir mikil miðborgarperla og stoppar því líklega ekki lengi á fasteignamarkaðnum. Íbúðin var á sínum tíma öll mynduð í bak og fyrir tímaritið Hús og hý- býli sem eru mikil meðmæli því þangað inn ná yfirleitt ekki nema flottustu íbúðir borgarinnar. sigrún flytur suður Og það eru ef til vill fleiri í fast- eignahugleiðingum þessa dag- ana. Sigrún Stefánsdóttir, sem er nýráðin dagskrárstjóri bæði Rásar 1 og Rásar 2, þarf að öllum líkind- um að flytja frá Akureyri til Reykjavíkur til þess að sinna hinu nýja embætti. Menn velta fyrir sér hvort Sigrún selji hið fallega heimili sitt fyrir norðan og komi alfarið suður eða hvort hún flakki á milli enda hefur hún komið sér vel fyrir á Akureyri. nýr sjópottur Nýja sjópottinum í Laugardals- laug hefur verið vel tekið og er hann yfirleitt stútfullur af fólki. Reyndar kvarta sumir yfir því hversu nánasarleg stærðin á pott- inum sé, hann hefði alveg mátt vera stærri. Þrátt fyrir það treður fólk sér ofan í pottinn og soðnar þar hvert ofan í öðru. Stemming- in minnir fyrir vikið á pottapartí í sumarbústað, eina sem vantar er bjórinn. syngjandi sexí Spákonunni og sjónvarpsþul- unni Ellý Ármanns verður enn tíðrætt um kynþokka á bloggsíðu sinni ellyarmanns.blogspot.is Hún og vinkonur hennar eru að setja saman eigin kynþokkalista sem er reglu- lega uppfærð- ur á síðunni. Þannig hafa ýmis áhuga- verð nöfn bæst á listann síðan Davíð Þór, dómara í Gettu betur var þar lofaður í hástert. Þar á meðal eru nöfn eins og Pétur Jóhann Sigfússon sem Ellý segir að toppi alla í leikara- stéttinni, því hann hefur fengið þá ynd- islegu köllun að fá aðra til að hlæja. Geir H. Haarde er víst einnig kominn inn á listann þar sem hann virkar svo traustur. Nýjasta nafnið á listanum er svo Sverrir Guðjónsson söngvari en á bloggsíðu Ellýjar segir að ekk- ert er meira sexý en syngjand- i maður klæddur í munkahempu. ...freyðiBaði Á morgun munu krakkar frá frístundamiðstöðvum Reykjavíkur keppa sín á milli í ratleik í anda Amazing Race. Eitt lið mun standa uppi sem sigurvegari eftir að hafa þurft að nota strætisvagna borgarinnar til að ferðast á milli hverfa til að leysa bæði líkam- legar og hugrænar þrautir. ÆSISPENNANDI RAT- LEIKUR Í REYKJAVÍK „Ratað í Reykjavík er eins kon- ar ratleikur sem búinn var til und- ir áhrifum frá sjónvarpsþáttunum Amazing Race. Keppnin er verkefni í Vettvangsverkefni I, sem er áfangi á tómstunda- og félagsmálabraut í Kennaraháskóla Íslands. Við erum fjórar sem stöndum að þessu verk- efni og erum allar á öðru ári í Kennó. Eitt lið frá hverri frístundamiðstöð mun taka þátt í keppninni, hvert með fjóra keppendur innanborðs, og það lið sem er fyrst til að leysa all- ar þrautirnar stendur uppi sem sig- urvegari,“ segir Þórunn Vignisdóttir, starfsmaður í frístundamiðstöðinni Miðbergi og umsjónarmaður keppn- innar. Að hennar sögn þurfa krakk- arnir að leysa níu þrautir sem bæði eru einstaklings- og hópþraut- ir. Hópþrautirnar byggjast flestar á samvinnu og klókindum á meðan einstaklingsþrautirnar byggjast líka á snöggri hugsun sem og líkamlegu erfiði. Það skiptir því miklu máli að liðin séu vel samsett en einhverjar félagsmiðstöðvanna völdu í lið sín með undankeppnum. flottar þrautir „Þrautirnar eru staðsettar um alla borg og keppendur fá dagspassa í strætó og þurfa að flakka á milli borg- arhluta. Ekki er leyfilegt að hafa gsm- síma meðferðis og þurfa þau því að átta sig á strætóleiðum í Reykjavík sjálf. Við höfum lagt mikið á okkur til að gera þrautirnar sem flottastar og sem dæmi má nefna að þá feng- um við gefins fisk sem keppendur þurfa að flytja á milli tunna á Mið- bakka, eins þurfa þeir að klifra upp turn í Gufunesbæ, finna vísbendingu sem er falin einhvers staðar undir einu af 1.000 glösum, hoppa í sjó- inn í flotgalla og margt fleira,“ segir Þórunn og er greinilega ekki minna spennt en krakkarnir fyrir keppn- inni. Að hennar sögn fylgir einn myndatökumaður hverjum hóp sem passar ekki bara upp á það að krakk- arnir svindli ekki í keppninni held- ur tekur hann þrautagönguna upp á myndband sem seinna verður svo sýnt í félagsmiðstöðvunum. Keppn- in hefst klukkan níu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og hafa liðin allan daginn til þess að leysa þrautirnar en verða þó að vera komin tilbaka í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn kl.17 því þá hefst þar pylsupartí fyrir all- ar félagsmiðstöðvarnar. Búist er við 100 krökkum í partíið þar sem úrslit- in verða kynnt og plötusnúðar munu sjá um að halda uppi fjörinu. Verð- launin eru ekki af verri endandum, reiðhjól frá Húsasmiðjunni, páska- egg og heimatilbúið spil. Ef keppnin tekst vel sér Þórunn fyrir sér að hún verði að árlegum viðburði í félagslífi unglinga í Reykjavík. snaefridur@dv.is 7 7 4 12 4 4 4 4 4 7 7 6 6 6 13 8 107 14 9 4 17 6 6 8 6 4 9 49 7 5 4 5 4 5 7 9 4 nýjung í félagslífi unglinga þessir krakkar keppa fyrir hönd félagsmiðstöðvanna Hólmasels og Miðbergs í ratleiknum ratað í reykjavík á morgun. þau þurfa meðal annars að hoppa í sjóinn, bera slímugan fisk og beita klókindum til þess að leysa þær níu þrautir sem leikurinn samanstendur af.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.