Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2007, Síða 16
þriðjudagur 17. apríl 200716 Sport DV
ÍÞRÓTTAMOLAR
Newcastle Neitar
orðrómi um oweN
glenn roeder knattspyrnustjóri
Newcastle hefur neitað að félagið ætli
sér að selja
Michael Owen til
Manchester
united. Blöð á
Englandi sögðu
frá því á
sunnudag að Sir
alex Ferguson
vildi fá Owen í sitt
lið. Samkvæmt
samningi Owen á
hann að geta losnað frá Newcastle
bjóði eithvert lið 12 milljónir punda í
hann, um tvo milljarða króna.
„Michael er stór hluti af mínum áætlun-
um fyrir næsta tímabil. Ég veit að hann
getur ekki beðið eftir að fara spila
fótbolta að nýju með Newcastle. Hann
getur skorað mörk og ég hef mikla trú
á honum,“ sagði roeder. Owen hefur
verið frá vegna meiðsla á hné eftir að
hafa meiðst með Englendingum á HM
síðastliðið sumar.
aNcelotti áNægður
aC Milan komst á sunnudag uppí
fjórða sæti ítölsku deildarinnar með 3-
1 sigri á Messina.
Eftir að hafa
komist í
undanúrslit
Meistaradeildar
Evrópu, þar sem
liðið mætir Man
utd, og komið í
fjórða sætið sem
gefur rétt til að
leika í Meistara-
deildinni að ári var þjálfari aC Milan
Carlo ancelotti sáttur eftir leikinn
gegn Messina. Hann hrósaði ronaldo
sem skoraði enn á ný og virðist hann
vera farinn að njóta þess að spila
fótbolta að nýju. „liðið er að leika vel
þessa stundina. það er góður taktur í
því og við ætlum okkur að njóta þess
sem lengst. ronaldo er einstakur
leikmaður og það er ekkert nýtt að
hann sé að skora mörk. Baráttan um
fjórða sætið er hörð en við munum
taka þátt í þeirri baráttu allt til loka.“
aC Milan byrjaði með 8 stig í mínus
eftir að hafa verið dæmt í svikamill-
unni sem skók ítalskan fótbolta í
upphafi tímabilsins.
leitar laNgt yfir skammt
rafa Benitez ætlar sér að fjárfesta í
ungviði livepool þrátt fyrir að hafa
fengið vilyrði frá
nýjum eigendum
félagsins um að
fá 40 miljónir
punda til
leikmannakaupa,
um 5 milljarða
króna. Benitez vill
að eithvað af
peningunum sem
nýjir eigendur
hafa komið með í félagið fari í
akademíu liverpool sem Steven
gerrard og jamie Carragher komu í
gegnum „þegar ég var hjá real
Madrid var aðalliðið skipað 40
leikmönnum. af þeim voru 14
heimalingar. það er frábær árangur. Ef
einn jamie Carragher eða Steven
gerrard kæmu úr skólanum hér á ári
yrði það frábært. það gæti tekið
nokkur ár en ímyndið ykkur lið með
fimm Carragher og fimm gerrard.“
Benitez bennti einnig á að ekki væri
hægt að byggja upp stórlið í Evrópu
eingöngu á uppöldum leikmönnum
og sagði að alltaf væri erfiðara að
komast í aðallið hjá stórliði.
lucarelli brjálaður
Cristiano lucarelli leikmaður livorno
var brjálaður eftir leik sinna manna
gegn reggina
sem endaði 1-1.
Áhorfendur og
stuðningsmenn
livorno sungu
niðrandi söngva
um sitt eigið lið
allan leikinn og
var lucarelli allt
annað en hrifinn
af framkomu
stuðningsmannanna. „Framkoma
áhorfendana var hneisa. að saka okkur
um að leggja okkur ekki fram er
fáránlegt. Ég mun gera mínar skyldur
til loka tímabilsins en síðan ekki meir.
Minn tími er kominn og ég mun fara
héðan,“ sagði lucarelli eftir leikinn.
Hann var orðaður við nokkur af stærri
liðum á ítalíu eftir síðasta keppnistíma-
bil en ákvað að vera áfram. Hins vegar
virðist ferli hans með liðinu nú vera
lokið.
Guðmundur Guðmundsson
hefur látið af störfum sem þjálf-
ari meistaraflokks karla hjá Fram.
Guðmundur mun innan tíðar hefja
störf hjá Kaupþing banka, starf sem
hann telur ekki samrýmast þjálfun
hjá handknattleiksliði í efstu deild.
Guðmundur tók við Fram árið
2005 og stýrði liðinu til sigurs á Ís-
landsmótinu á sínu fyrsta tímabili.
Framarar hafa ekki náð að fylgja
þeim sigri nægilega vel eftir, eru í
þriðja sæti deildarinnar, sjö stigum
á eftir Val og HK sem sitja í tveim-
ur efstu sætunum. Fram mætir ÍR
í síðasta leik tímabilsins á sunnu-
daginn í leik sem hefur enga þýð-
ingu, hvorki fyrir Framara né ÍR-
inga.
Mikið fjaðrafok var í kringum
ráðiningu Guðmundar á sínum
tíma. Heimir Ríkharðsson hafði þá
verið þjálfari Framara og uppsögn
hans kom mörgum leikmönnun
sem og stuðningsmönnum liðsins
í opna skjöldu.
Guðmundur á þrjá syni sem
stunda handknattleik hjá Fram og
hann hefur í hyggju að koma að
uppbyggingu yngri flokka hjá félag-
inu í framtíðinni.
Samkvæmt heimildum DV er Jón
Þorbjörn Jóhannesson, leikmaður
Skjern, á leið til Fram. Jón Þorbjörn
er stór og stæðilegur varnarmaður
sem einnig er liðtækur sem línu-
maður, en fyrir á línunni hjá Fram
eru þeir Einar Ingi Hrafnsson og
Haraldur Þorvarðarson.
dagur@dv.is
Miklar hræringar eru hjá handknattleiksliði Fram, í gær sagði þjálfarinn af sér og
Jón Þorbjörn Jóhannesson er á leið til liðsins:
Guðmundur hættur sem þjálfari Fram
Hyggst koma að starfi yngri flokka guðmundur á þrjá syni sem stunda
handbolta hjá Fram og hann hyggst koma að starfi yngri flokka hjá félaginu.
Önnur eins stemning og var í
íþróttahúsi KR í gær hefur ekki ver-
ið á íþróttakappleik hér á landi í
háa herrans tíð. KR-ingar lögðu þá
Njarðvíkinga í hreint mögnuðum
leik 83-81 og tryggði sér Íslands-
meistaratitilinn. KR-ingar urðu síð-
ast Íslandsmeistarar árið 2000 en
þeir unnu úrslitaeinvígið í ár 3-1
þar sem Njarðvíkingar vou tald-
ir sigurstranglegri fyrirfram enda
höfðu þeir titil að verja.
Njarðvíkingar voru yfir allan leik-
inn í gær en Jeremiah Sola jafnaði
fyrir KR í 73-73 þegar 0,75 sekúndur
voru eftir og tryggði framlengingu.
Stemingin var með heimamönnum
á þessum tímapunkti og þeir skor-
uðu fjögur fyrstu stig framlenging-
arinnar og komust í fyrsta skipti
yfir. Gestunum gekk brösuglega í
sóknarleiknum í framlengingunni
en á lokamínútu hennar tók Jó-
hann Ólafsson tvö víti, skoraði úr
þeim báðum, og minnkaði muninn
í tvö stig 83-81.
Tyson Patterson hitti ekki
körfuna þegar um fimm sekúndur
voru eftir og Jóhann hljóp upp all-
an völlinn á ögurstundu. Hann fór
þó illa að ráði sínu, hljóp í of þröngt
færi og skotið misheppnaðist. KR-
ingar hömpuðu þar með Íslands-
meistaratitlinum. Þeir lentu undir í
einvíginu en unnu síðan þrjá leiki í
röð, þar á meðal á útivelli í Ljóna-
gryfjunni í Njarðvík um síðustu
helgi og kom það mörgum á óvart.
breytt hugarfar í Vesturbænum
„Allur þessi fjöldi sem mætti
á þennan leik var ekki svikinn af
skemmtuninni,“ sagði Benedikt
Guðmundsson, þjálfari KR-inga,
eftir leikinn. Íþróttahúsið var pakk-
fullt og voru stuðningsmenn KR
þar allsráðandi og sungu fjölbreyti-
lega stuðningsmannasöngva allan
leikinn og lengur en það. „Ég mætti
klukkutíma fyrir leikinn og þurfti
að leggja einhverstaðar í Skerja-
firði. Það voru þúsund manns sem
voru mættir á undan mér,“ sagði
Benedikt.
„Það er bara ekki hægt að lýsa
því hvernig er að fá þennan stuðn-
ing. Áhorfendur voru alltaf hvetj-
andi þegar við vorum undir, al-
veg jafn mikið og þegar við vorum
yfir. Það er mannlegt eðli að vera
að röfla þegar gengur illa og hvetja
þegar vel gengur en að fá svona
stuðning var okkur ómetanlegt á
lokakaflanum. Við vorum búnir að
vera skrefi eftir á allan leikinn en
heyrðum þennan söng og hvatn-
ingu og það hafði mikið að segja,“
sagði Benedikt sem var að vonum
gríðarlega ánægður með sína leik-
menn.
„Ég held að okkur hafi tekið að
setja saman mjög sterkt lið. Það
voru ekki margir sem spáðu okk-
ur alla leið og verið að tala um að
liðið geri alltaf mistök á ögurstund-
um en við blásum á það. Það er
breytt hugarfar í Vesturbænum og
við erum með samansafn af mönn-
um sem kunna að vinna. Þetta eru
strákar sem hafa unnið allt í yngri
flokkunum, meistaratitilinn í Kos-
ovo... bara nefndu það!“ sagði
Benedikt.
misstu ekki trúna
Njarðvíkingar byrjuðu leikinn
í gær betur og höfðu yfir 24-15 að
loknum fyrsta leiktíma. Eftir það
voru KR-ingar alltaf skrefinu á eft-
ir, náðu að saxa á forskotið í öðr-
um leikhluta og forysta Njarðvík-
inga í hálfleik var fimm stig, 39-44.
Mikið jafnræði var með liðunum í
þriðja leiklhuta en snemma í þeim
fjórða náði Njarðvík tíu stiga for-
skoti. Voru þá margir sem bjuggust
við að þeirri forystu myndu þeir
Gríðarleg gleði ríkir
í Vesturbæ Reykja-
víkur en KR-ingar
eru Íslandsmeistar-
ar í körfuknattleik
2007. Þeir lögðu
Njarðvíkinga í
hádramatískum leik
á heimavelli sínum
fyrir framan troð-
fulla áhorfenda-
palla.
Hádramatískur endir á
frábæru tímabili
sárt að tapa Njarðvíkingar voru að
vonum súrir á svipinn eftir leikinn.