Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2007, Side 25
DV Sviðsljós þriðjudagur 17. apríl 2007 25
Heimsfrumsýning á
Þriðja myndin um Kóngulóarmann-
inn, sem hefur verið beðið með mik-
illi eftirvæntingu, var heimsfrum-
sýnd í Tókýó á mánudag:
Furðufuglinn Marilyn Manson skildi við þokkadísina Ditu Von Teese í fyrra en segist nú þeg-ar vera búinn að finna sér nýjan sálufélaga. Það ku vera hin 19 ára gamla Evan Rachel Wood en sjálf-
ur er Manson 38 ára. Hann segir að þrátt fyrir
mikinn aldursmun líði honum eins og hún sé
tvíburasystir hans, þar sem þau eigi öll sömu
áhugamálin og hún skilji fullkomlega lífsstíl
hans. „Ég vil fara á fætur rétt fyrir miðnætti og
vaka alla nóttina og sofa svo yfir daginn og það
skilur Rachel,“ segir rokkarinn og myrkra-
höfðinginn Manson. Parið kynntist við tökur
á hryllingsmynd sem Manson leikstýrði og er
talið að kynni þeirra hafi átt stóran þátt í því
að Dita Von Teese sótti um skilnað í desember.
„Ég var giftur konu sem vildi breyta mér og
mér var farið að líða hræðilega illa, hún vildi
að ég færi að þroskast og taka meiri ábyrgð. Í
kjölfarið fór mér að líka illa við sjálfan mig,“
segir Manson og bætir því við að hann hafi í
depurð sinni leigt sér húsnæði úti í óbyggðum
og farið að vinna í nýrri plötu sem er væntan-
leg í júní. „Platan hjálpaði mér við að binda
enda á samband okkar Ditu og hún yfirgaf
mig um jólin meðan ég var í upptökum,“ segir
rokkarinn sem loksins virðist hafa höndlað
hamingjuna.
Parið á öll sömu áhugamálin og rok
k-
arinn segir Wood eins og tvíbura sinn
.
Manson búinn
að finna sálufélaga
Tobey Maguire
Hefur slegið í gegn í hlutverki
kóngulóarmannsins.
Spider-Man
Var mættur á svæðið við
mikinn fögnuð viðstaddra.
Flott umgjörð
það var ekkert til sparað á
heimsfrumsýningu Spider-Man 3.
Nóg að gera
Tobey var önnum kafinn við að
árita plaggöt fyrir aðdáendur.
Myndarlegur hópur
Theresa russell, Kirsten dunst, james Franco, Tobey
Maguire, Thomas Haden Church, Topher grace, rosemary
Harris og Howard Stringer, yfirmaður hjá Sony.
Æstir aðdáendur
japanar settu sig í stellingar og
sumir mættu í búningum.
Tískan leikur fólk stundum grátt og fær það
til að klæðast alls kyns múnderingum. Það sem
gerir þetta þó skemmtilegt er að allir hafa sinn
smekk og því erfitt að dæma hvað er ljótt og
hvað ekki, eða hvað?
Paula
abdul
idol-dómarinn
mætti í þessum
fötum á Kids
Choice awards
fyrir stuttu.
Hvað myndi
Simon segja?
Sarah
JeSSica
Parker
Hittir ekki alveg
í mark að þessu
sinni þó svo að
hún sé ein af
þeim betur
klæddu í
bransanum.
leaNN riMeS
Skartaði þessum
kjól á Brick-
verðlaununum í
New York og
einhver hafði
orð á því að hún
hefði klippt
lakið sitt til.
JeNNiFer
coNNelly
þessi kjóll frá
Oscar de la
renta er ekki
að gera neinar
rósir fyrir
leikkonuna
fögru.
Komin með nýjan
Hin þrjátíu og átta ára gamla ástralska
söngkona Kylie Minogue er sögð verða
nánari og nánari Calvin Harris sem
vinnur með henni
að nýjustu plötu
hennar. ítrekað
hefur sést til þeirra
skötuhjúa á mjög
rómantískum
stefnumótum og
hafa þau dvalið
mörgum stundum
saman við vinnu í
plötunni. Calvin er
skoskur plötusnúður og segja vinir
söngkonunnar að hún sé loksins búin að
finna hamingjuna í örmum Calvins en
einungis eru liðnir tveir mánuðir síðan
Kylie sagði skilið við franska leikarann
Olivier Martinez.
Fílar að vera bundin
Hin undurfagra Eva longoria, betur
þekkt sem gabrielle í desperate
Housewives segist fíla að láta binda sig
niður meðan hún hefur samfarir. Eva er
gift körfuboltastjörnunni Tony parker og
segir í viðtali við tímaritið live að hún
vilji láta manninn sinn sjá um að stjórna
sér í rúminu. „það er eitthvað mjög
kynæsandi við að láta stjórna sér,“ segir
hin þrjátíu og tveggja ára gamla
leikkona. þrátt fyrir að vera sjö árum
yngri en unnustinn segist Eva vera gefin
fyrir eldri og þroskaðri menn og að gáfur
og viska séu eitthvað sem heilli hana
mikið.