Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2007, Síða 30
þriðjudagur 17. apríl 200730 Síðast en ekki síst DV
veðrið ritstjorn@dv.is
miðvikudagurþriðjudagur
Sandkorn
Það eru ekki næstum því allir sem
að komast frá í vinnunni til þess að
hreyfa sig í hádeginu. Fólk situr við
tölvur allan daginn og brennir ekki
mikið við það, nema þá kannski
augunum fyrir framan tölvuskjáinn.
Núna er hins vegar hægt að fá þjálf-
ara frá Bootcamp til þess að mæta
á vinnustaði í hádeginu til þess að
taka flokkinn í gegn. Hvort sem að
það er inni eða fyrir utan þá finna
þessir harðjaxlar einhvern stað í ná-
greninu til þess að fá fólk til þess að
svitna. Verum flott í sumar.
Núna fer veðrið hlýnandi þótt að
það detti ennþá inn ein og ein
hríð af hagléli. Það er fátt meira
hressandi en að skella sér út í garð
og tendra í grillinu. Hvort sem það
er með fjölskyldunni, vinunum eða
bara með þínum eða þinni heitt
elskuðu. Hægt er að grilla nánast
hvað sem er og þarf maður ekki að
vera neinn meistara kokkur til þess
að gera vel á grillinu góða. Ef það
kemur haglél í miðjum klíðum er
bara málið að skella upp sólhlífinni
og brosa.
Framboðið á mismunandi músík
er alltaf að aukast á klakanum og
tónleikahald í leiðinni. Allir geta
fundið eitthvað við sitt hæfi. Það
er því alveg málið að breyta til frá
sjónvarpsglápinu og skella sér á
tónleika. Ekki vera hrædd heldur
við að prófa eitthvað nýtt. Það borg-
ar sig aldrei að dæma hljómsveitir
fyrir fram og oftar en ekki uppgötv-
ar maður nýja uppáhalds bandið
sitt á tónleikum, þó svo að maður
hafi oft heyrt í þeim áður.
Það virðist ekki bera jafn mikið á
því og áður að gefa gjafir á sumar-
daginn fyrsta. Það þarf ekkert að
vera eitthvað stórræði heldur eitt-
hvað sumarlegt og sætt sem gleður
þá nánustu. Bolti handa stákunum
og sippuband handa stelpunum er
ekki svo vitlaus hugmynd. Jafnvel
einhver sundleikföng Eitthvað sem
að krakkarnir geta leikið sér með
utan dyra. Eitthvað annað en að
sitja bara og spila tölvuleiki. Auð-
vitað er ekki vitlaust fyrir fullorðna
fólkið að gleðja hvort annað líka
með hugmyndaríkum og öðruvísi
gjöfum. Sælla er að gefa en þiggja.
Við mælum með...
...grilli í garðinum
...vinnustaðalíkamsrækt
...tónleikum
n1 og n4
Bílanaust og Esso hafa sameinast
undir nafninu N1. Nýja nafnið er
auglýst mikið þessa dagana og
sitt sýnist hverjum um nafngift-
ina. Einhverjir hafa bent á það
að nafnið líkist bæði nafni og
lógói N4 afar mikið, en lógó þess
fyrirtækis er
einnig rautt
og hvítt. N4 er
norðlenskt fjöl-
miðlafyrirtæki
sem stofnað
var á síðasta ári og hefur aðsetur
í hjarta Akureyrar í Amarohús-
inu. N4 rekur tvo miðla; N4 Extra
dagskrána og N4 Sjónvarp Norð-
urlands. Einnig rekur fyrirtækið
hönnunardeild, auglýsinga- og
markaðsráðgjöf og framleiðslu-
deild sem fram-
leiðir innlent
sjónvarpsefni,
kynninga- og
auglýsingaefni.
Hægt er að lesa
nánar um þenn-
an norðlenska fjölmiðlarisa á
heimasíðunni www.n4.is. Svo má
líka velta fyrir sér hvort þessi tvö
fyrirtæki, N1 og N4, myndu síðar
sameinast, þá er spurning hvort
nafnið verði ekki N5?
dj. sóley gæsuð
Tími gæsananna er runninn
upp, mörgum til mikillar gleði
en öðrum
til armæðu.
Þannig mátti
á Vegamótum
sjá tvær gæsir
í stuði á laug-
ardagskvöldið.
Önnur þeirra
var afar hress
með tippagler-
augu á nefinu og með gervi-
brjóst. Hin var öllu penni í fram-
komu með bleikt slör á höfði.
Sú sem slörið bar var engin
önnur en Dj. Sóley sem gengur
fljótlega upp að altarinu. Sóley
skemmti sér vel með vinkon-
unum sínum þetta kvöld sem
sýndu góða takta á dansgólfinu.
Cliff íslands stofnandi gróttu
Það er stutt stórra högga á milli
hjá tónlistarmanninum Garðari
Guðmunds-
syni, einnig
þekktum sem
Cliff Íslands. Á
fimmtudaginn
mun íþróttafé-
lagið Grótta á
Seltjarnarnesi
halda upp á
40 ára afmæli
sitt en Garðar er einmitt stofn-
andi þess. Boðið verður upp á
skrúðgöngu frá sundlauginni að
íþróttahúsinu þar sem fjölbreytt
dagskrá verður í boði auk kaffi-
veitinga. Garðar er í skemmti-
legu viðtali í nýjasta tölublaði
Nesfrétta í tilefni af afmælinu og
þar segist hann eiga 50 ára tón-
listarafmæli í haust og upp á það
verði haldið með útgáfu á geisla-
diski sem nú er í smíðum.
...sumardagsgjöfum
PANTONE 485 C0 / M100 / Y100 / K0
Veisla í miðborginni
Veislukompaníið er alhliða veislu- og
fundaþjónusta, nýr og spennandi valkostur
í miðborginni. Þú gengur að fyrsta flokks
húsnæði með öllum tæknibúnaði, frábærum
veitingum og þjónustu á besta stað í bænum.
Lækjargötu 2a 101 Reykjavík s 517 5020 www.veislukompaniid.is
4
7
4
7
1
4
447
4
5
5
3
5
5
3
44
3
4 4
47
-1
1 4
1 7
2
45
7
34
5
4
4
7
2 7
SkrímSli og aðrar
dularfullar verur
Elfar Logi segir að það sé full
ástæða til þess að frumsýna verkið
á Bíldudal því Arnarfjörðurinn sé
mekka skrímsla á Íslandi.
„Skrímslafræðingurinn Jónatan
mun svara uppáþrengjandi spurn-
ingum, svo sem þeim hverjar þess-
ara dularfullu verur eru í raun og
veru, hvar þær er helst að finna og
hvernig best sé að finna þær. Sam-
tímis því mun hann setja fram óvé-
fengjanlegar sannanir fyrir tilvist
skrímsla í sjó og vötnum á Íslandi.
Þetta er einleikur, eins og önnur
verk sem sett eru upp af Kómedíu-
leikhúsinu og við Pétur Eggerz,
leikstjóri sýningarinnar, sömdum
textann í sameiningu. Tónlistin er
eftir Guðna Franzson og Marsibil
G. Kristjánsdóttir á heiðurinn af
skrímslamyndunum.“
Elfar Logi segir enga tilviljun að
verkið sé sett upp núna því það sé
nokkurs konar forleikur að því sem
koma skal í skrímslaheiminum.
„Það stendur mikið til hjá okk-
ur Bílddælingum því ætlunin er að
opna skrímslasetur sumarið 2008.
Við erum enn í hugmyndavinnu og
líklega fáum við hönnuð í lið með
okkur til þess að gera hugmyndirn-
ar að veruleika. Um þessar mundir
erum við að leita að hentugu hús-
næði og höfum augastað á ákveðnu
húsi. Þar munum við sýna leikritið
Skrímslið í framtíðinni og auk þess
verður þar alls kyns starfsemi sem
tengist dularfullum verum, litlum,
stórum, grimmum, ljúfum, illskeytt-
um og stundum jafnvel stórhættu-
legum. Ég verð að viðurkenna að
sjálfur hef ég aldrei komið auga
á skrímsli þótt Arnarfjörðurinn sé
fullur af þeim, þar una þau sér vel
og búa við bestu skilyrði.“
skrímsli á ferð um landið
Elfar Logi lærði leiklist í Dan-
mörku og flutti fljótlega að námi
loknu heim til Bíldudals. Þar stofn-
aði hann, ásamt Róberti Snorrasyni,
atvinnuleikhúsið Komedíuleikhús-
ið sem er fyrsta atvinnuleikhúsið á
Vestfjörðum og annað tveggja sem er
starfrækt utan höfuðborgarsvæðis-
ins. Síðan árið 2001 hefur Kómedíu-
leikhúsið einbeitt sér að einleikjum
og er Skrímsli annað leikritið sem
leikhúsið frumsýnir á Bíldudal.
„Við höfum sýnt talsvert af ein-
leikjum, Verðlaunaleikurinn Gísli
Súrsson hefur verið sýndur við mikl-
ar vinsældir bæði hér heima og er-
lendis og eru sýningar orðnar 140
talsins. Við höfum einnig sýnt einleik
um Steinn Steinarr, um Dimmalimm
og um Mugg ásamt fleiri verkum.“
Það er greinilega líf og fjör í
skrímslabænum Bíldudal en sem
betur fer fá fleiri en bæjarbúar tæki-
færi til þess að berja skrímslin aug-
um.
„Skrímsli er ferðasýning. Við
ætlum að ferðast með hana og leika
í skólum og víða um land á næstu
misserum. Íbúum höfuðstaðarins
gefst síðan kostur á að berja Skrímsli
Kómedíuleikhússins augum laug-
ardaginn 21. apríl en þá verður
Reykjavíkurfrumsýning á verkinu í
Möguleikhúsinu við Hlemm.“
Árleg leiklistarhátíð
Kómedíuleikhúsið lætur sér ekki
nægja að semja og setja upp ein-
þáttunga; það stendur líka fyrir ár-
legri leiklistarhátíð á Ísafirði.
„Við byrjuðum á þessu sumar-
ið 2004 og köllum hátíðina ACT
ALONE. Hátíðin er helguð einleikj-
um og er meðal fárra slíkra í heim-
inum. Í ár verður sýningin haldin
dagana 27. júní til 1. júlí og þá verð-
ur boðið upp á 20 einleiki.
Framtakið hefur heppnast vel og
sem merki um það hafa sýningun-
um fjölgað, því þær voru 13 talsins
á síðasta ári.
Auk þess að mæta á leiksýn-
ingar geta gestir farið á námskeið.
Aðgangur að hátíðinni er ókeyp-
is og við vonumst til þess að sjá
sem flesta,“ segir Elfa Logi hress í
bragði.
Þess má geta að Kómedíuleik-
húsið hefur gefið út tvær bækur og
til stendur að leikhúsið verði öflugt
á hljóðbókamarkaðnum.
Leikarinn elfar logi Hannesson ætlar að bregða sér í gervi
skrímslafræðingsins jónatans þorvaldssonar á sumardaginn
fyrsta, en þá frumsýnir Kómedíuleikhúsið einleikinn Skrímsli, í
Baldurshaga á Bíldudal. Sagt er að skrímsli af ýmsum toga hafi
lifað góðu lífi í sjó og vötnum á þessum slóðum þótt leikarinn við-
urkenni að hafa aldrei rekist á þau sjálfur.