Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Blaðsíða 8
Hleypti af
170 skotum
Fjöldamorðinginn Cho Seung-
Hui hleypti af að minnsta kosti
170 skotum
á þeim níu
mínútum
sem síðari
árásin í Virg-
inia Tech í
Bandaríkj-
unum átti sér
stað. Þá er
talið ljóst að
önnur byssan sem hann notaði
í seinni árásinni var notuð til að
myrða tvo einstaklinga sem féllu
í þeirri fyrri. Einnig telur lögregla
að myndbandið sem sýndi Cho í
annarlegu ástandi hafi ekki verið
tekið upp á milli árásanna held-
ur áður. Lögreglu gengur illa að
finna nákvæmar ástæður árásar-
innar enda hafa ekki fundist nein
tengsl milli morðingjans og hinna
látnu.
föstudagur 27. apríl 20078 Fréttir DV
erlendarFréttir
ritstjorn@dv.is
Jarðsprengjur
fjarlægðar
Margar af bestu vínekrum
Króatíu er komnar í ræktun á ný
eftir að jarðsprengjur frá því í
stríðinu í Júgóslavíu í byrjun ní-
unda áratugarins voru fjarlægð-
ar. Ein af bestum vínekrunum lá í
kringum sveitaheimili Josip Tito
hershöfðingja en síðar var það
notað af serbneska stríðsglæpa-
manninum Arkan sem lét strá
jarðsprengjum um vínekrurnar
til að verjast hugsanlegum óvin-
um. Eitt frægasta vín Króata er
Traminac, sem hefur verið rækt-
að síðan 1710, og vinna Serbar
og Króatar við ræktun þess.
NágraNNi frá Helvíti
Frú Dorothy Evans, 81 árs Wales-
verji, hefur verið dæmd í sex mán-
aða fangelsi fyrir að ofsækja ná-
granna sína.
Hinir ítalskættuðu nágrann-
ar Angela og Roberto Casa héldu
að þau hefðu keypt draumahús-
ið fyrir sig og börnin sín í hin-
um smekklega velska bæ Aberg-
avenny fyrir tíu árum en annað
kom á daginn. Nú hafa þau lýst
sambúðinni við Evans sem hreinu
helvíti. Hjónin segja Evans vera
sóðakjaft með árásarhneigð á við
amerískan bolabít og vera furðu-
lega hressa miðað við aldur, þótt
hún ætti helst heima á spítala.
Enginn slapp við ofsóknir
Allir meðlimir fjölskyldunnar
hafa fengið sinn skerf af ofbeldi
og kjaftbrúki.
Dag einn er Angela var að koma
heim vændi frú Evans hana um að
vera hóra og lamdi hana þar á eft-
ir með staf. Síðar náði hún í skott-
ið á Angelo og öskraði að hann
ætti að hypja sig aftur til
Ítalíu þaðan sem hann
kom, eins og hún orð-
aði það. Þrettán ára
dóttir hjónanna
fékk heldur ekki
frið enda kallaði
frú Mills hana
norn og sagðist
ætla að drepa
hundinn
hennar.
Dorothy
Evans dugði
þó ekki að skelfa
kjarnafjölskylduna
því er móðir Ang-
elu kom í heimsókn
sýndi Evans henni
á sér afturendann
með tilheyrandi
kjaftbrúki.
Ofan á allt saman
hefur Dorothy Mills
líka ráðist á fjölskyld-
una í heild sinni, það
gerði frú Mills þeg-
ar hún skreið á fjór-
um fótum og teiknaði
hring í kringum bíl
fjölskyldunnar, sem sat
skelfingu lostin og þorði ekki út.
Frú Evans reyndi í tíu
ár að hrekja fjölskyld-
una úr húsinu.
Casa-fjölskyldan
bað lögreglu ít-
rekað um aðstoð
en án árangurs.
Nágrannar hafa
bent á að frú Ev-
ans hafi líklega
haft neikvæð
áhrif á fast-
eignaviðskipti
í hverfinu þar
sem ein íbúð-
anna hafi ver-
ið á sölu í sjö
mánuði en að-
eins einn kom-
ið að skoða og
það án þess að
kaupa. Nú er svo
komið að Casa-
fjölskyldan þorir
vart út fyrir hússins
dyr.
12 dómar og fangelsi
Frú Evans hefur
áður hlotið tólf dóma
fyrir ofsóknir en aldrei
hefur hún farið í fangelsi því hún
hefur ítrekað hunsað beiðnir um
að mæta fyrir rétt. Nú hafa dómar-
ar komist að þeirri niðurstöðu að
frú Evans skuli sitja á bak við lás
og slá í sex mánuði. Líklegt þykir
þó að hún muni verja fyrstu þrem-
ur mánuðunum í Eastwood Park
kvennafangelsinu í Gloucester en
eyða síðan öðrum þremur á spít-
ala innan fangelsisins. Dóttir Ev-
ans, Barbara Thomas, hefur reynt
að áfrýja dómnum með þeim rök-
um að móðir hennar sé of gömul
til að fara í fangelsi, en án árang-
urs.
„Guð hjálpi þeim sem lend-
ir með henni í klefa,“ sagði Ro-
berto sem segist nú þegar farinn
að kvíða endurkomu nágrannans
frá helvíti.
blaðamaður skrifar: skorri@dv.is
Skorri GíSlaSon
Dorothy Evans er 81 árs, með
of háan blóðþrýsting og geng-
ur við staf. Hún hefur hlotið
tólf dóma fyrir ofsóknir. Fólk-
ið sem býr við hliðina á henni
hefur kallað hana nágranna
frá helvíti. Nú er ekki aðeins
nágrönnunum nóg boðið
heldur dómstólum líka og
gistir Evans því fangelsi
næsta hálfa árið.
Erfiður nágranni
reyndi að hrekja
nágranna sína úr
hverfinu í tíu ár án
árangurs.
dag einn er angela
var að koma heim
vændi frú evans
hana um að vera
hóra og lamdi hana
þar á eftir með staf.
nágrannarnir eru áhyggjufullir Ógerlegt hefur
reynst að selja eignir í nágrenni við dorothy Evans
sem hefur áreitt nágranna sína í áratug.