Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Blaðsíða 47
DV Ferðalög föstudagur 27. apríl 2007 47 U m s j ó n : S n æ f r í ð u r I n g a d ó t t i r . N e t f a n g : s n a e f r i d u r @ d v . i s á ferðinni Tilboð í sólinaHeimsferðir bjóða tilboð til lloret de Mar á Costa Brava-ströndinni við Barcelona, þann 20. maí. Verð fyrir fimm nætur er 49.999 krónur og er allt innifalið í verðinu. aðeins eru fimmtán herbergi í boði á hinu fallega sunrise-hóteli, sem er steinsnar frá ströndinni. Nýlega var Amora – Academy of Love, Sex and Relationship opnað í hjarta Lund- úna. Um er að ræða fræðslumiðstöð, þá einu sinnar tegundar í heiminum, þar sem hægt er að fræðast um allt er viðkemur ást, kynlífi og samböndum. Miðstöðinni er skipt upp í ellefu svæði þar sem rauður litur er ríkjandi. Komið er inn í móttöku þar sem allir gest- ir fá heyrnatól sem gefur þeim persónulega leiðsögn í gegnum húsið. Fyrsta stopp er her- bergi þar sem meðal annars er hægt er að læra allt um daður, í næsta herbergi er hægt að læra að kyssa, í því þriðja er lögð áhersla á betri forleikstækni með hjálp unaðstækja. Fjórða herbergið einbeitir sér að g-blettin- um, það fimmta að fullnægingunni en þar er hægt að sjá hvernig líkaminn bregst við full- nægingu innan frá. Sjötta herbergið er tileink- að fantasíum. Þar geta gestir til dæmis prófað hæfni sína í hýðingum. Í sjöunda herberginu er áherslan lögð á vandamál tengd kynlífi og varnir gegn sjúkdómum og barneignum. Átt- unda herbergið er gallerí, það níunda versl- un með alls konar tólum og tækjum og það tíunda er bar þar sem tilvalið er að setjast nið- ur með kokteil að lokinni göngu um Amora og ræða það sem fyrir augu bar. Allt er þetta sett upp á afar flottan hátt, hágæðatækni er nýtt til hins ítrasta og gestir geta spreytt sig á ýmsum prófum. Á staðnum eru einnig kyn- lífsfræðingar sem hægt er að ráðfæra sig við. Amora er eins og áður segir í hjarta Lundúna og er staðsett á Coventry Street í göngufæri við Picadilly Cirkus. Áhugasamir geta lesið nánar um fræðslumiðstöðina á heimasíðunni amoralondon.com. Nýr ferðamannastaður opnaður á Picadilly: Kynlífsfræðsla í miðbæ Lundúna Kínverskir skemmtigarðar Þeir sem eru á leið til Kína ættu endilega að skella sér í kínverska skemmtigarðinn Happy Valley sem opnaður var á nýjan leik síðastliðið haust eftir fjögurra ára uppbyggingu. garðurinn er milljón fermetrar að stærð og er með meira en 40 tækjum. Ef út í það er farið þá er hægt að finna fleiri skemmtilega skemmtigarða í Kína því þar eru þeir um 2.000 talsins og hafa allir sprottið upp á síðastliðn- um 20 árum. Í síðasta helgarblaði var talað við göngugarpinn Viktor Jörgensson sem sagði frá uppáhaldsstað sín- um á Íslandi, Ásólfsgili undir Eyja- fjöllum. Hann skoraði á Kristínu Mörthu Hákonardóttur verkfræð- ing og klifrara að segja frá ævintýr- um sínum og uppáhaldsstöðum. DV sló á þráðinn til hennar og komst að því að uppáhaldsstaður Kristínar Mörthu er Hnappavellir í Öræfasveit. Hnappavellir eru á Suð- austurlandi, í um 20 mínútna akst- ursfjarlægð í austur frá Skaftafelli. Hafa þarf samband við bændur um leyfi til að fá að tjalda við klif- urvegginn. „Hér er vinsælt klifursvæði og jafnframt besta klifursvæði lands- ins,“ segir Kristín Martha. „Þar má finna um eitt hundrað boltaðar leið- ir en einnig sprungur sem er hægt að klifra í. Leiðirnar þarna eru 8–20 metra háar í þverhníptum hamra- veggjum. Svo má líka finna þrautir sem eru á steinum í klettabeltun- um, eða steinum sem standa stak- ir,“ segir hún og bendir á að þeg- ar þær séu leystar sé búið að setja dýnur undir. Kristín Martha segist aðallega klifra á sumrin og að hún hafi gert mikið af því að klifra síðustu sex til sjö sumur. Hún segist hafa farið í eina skemmtilegustu klifurferðina sína fyrir þremur árum, einmitt á Hnappavelli. En hvað er skemmtilegast við klifrið? „Það besta við klettaklifur er hreyfingin og svo reynir á svo margt í einu; líkamlegan styrk, einbeit- ingu, nákvæmni, útsjónarsemi og svo skiptir það máli að vera þrjósk- ur,“ segir hún. „Þó er það ekki síst útiveran sem skiptir einna mestu máli,“ segir Kristín Martha. En klifrar hún í hvernig veðri sem er? „Nei, ekki í rigningu, það er einfaldlega of sleipt og svo verður manni svo kalt á puttunum. Annars lætur maður sig hafa ansi margt, ég hef til að mynda klifrað í snjókomu á Hnappavöllum,“ segir hún. Þegar hún er spurð hvernig klif- uráhugi hennar hafi kviknað, svarar hún: „Ég lærði verkfræði á Englandi og skráði mig þar í klettaklifur af því að ég hélt að ég væri svo lofthrædd. Það reyndist síðan byggt á misskiln- ingi og komst ég fljótlega yfir loft- hræðsluna. Fyrst í stað klifraði ég þó bara inni og fannst það fínt. Ég hélt ég yrði lofthrædd ef ég klifraði úti. Þegar ég kom svo loks í kletta breyttist það allt og nú er miklu skemmtilegra að klifra úti en inni,“ segir Kristín Martha. Þegar Kristín Martha er beðin um að benda á fleiri skemmtileg klifursvæði á landinu nefnir hún stórfenglegt svæði við Vetrarhöfn við Höfn í Hornafirði. „Þar er 450 metra hár hamar sem klifrað er í,“ segir hún. „Þetta svæði er allt sam- an alveg ofboðslega flott. Ég hef ekki klifrað þar enn en ætla mér að gera þar. Hins vegar hef farið þangað og skoðað mig um. Það er ótrúleg til- finning að þarna blasir Atlantshafið við, það er eitthvað brjálað við þetta svæði,“ segir hún. Að sögn Kristínar Mörthu er að finna eina boltaleið í hamrinum og nokkrir hafi klifrað hana. Flest- ir klifrið þó leið sem sé ekki boltuð. Að auki hafi tvær aðrar, styttri leiðir verið farnar upp hamarinn. Annað skemmtilegt klifursvæði sem hún nefnir er í Bjarnafirði á Ströndum. „Þar er klifrað á stein- um. Þetta er allt öðruvísi svæði en hin tvö, nálægt sjónum með allan rekaviðinn og í návígi við æðarfugl- inn. Þar er mjög fallegt.“ Kristín Martha skorar á Berglindi Aðalsteinsdóttur lækni og fjalla- konu að segja frá ævintýrum sínum og uppáhaldsstöðum í næsta helg- arblaði DV. Fjallganga á 1. maí ferðafélag íslands skipuleggur göngu á tindfjöll á þriðjudaginn 1. maí. lagt verður af stað frá Mörkinni 6 klukkan átta á þriðjudagsmorgun. Ekið verður inn fljótshlíð og upp í tindfjöll, þar sem gengið verður frá neðsta skála upp á tindana Ými og Ýmu. fararstjóri ferðarinnar verður páll guðmundsson og er áætlaður göngutími þrjár til fjórar klukkustundur. Verð er fimm þúsund krónur og er innfalið far upp að skála og fararstjórn. Hjólað frá Hellu ferðafélagið Útivist stendur laugardag fyrir hjólaferð frá Hellu í selsund við rætur Heklu. farið verður á eigin bílum austur á Hellu og er mæting klukkan tíu við bensínstöðina við bæjarmörk- in. leiðin sem hjóluð verður er tuttugu og sjö kílómetra löng og er tæpur helmingur hennar á malbiki. Þegar komið verður í selsund verður slegið upp grillveislu. Ekkert skráningargjald er í ferðina. Ferðir sumarsins Kayakklúbburinn hefur gefið út ferðaáætlun sína fyrir vorið og sumarið. Margir styttri túrar sem hennta vel byrjendum, sem og lengri róðrar hafa verið skipulagðir. sjókayakmót Eiríks rauða sem fram fer í stykkishólmi, ferðir á Þingvallavatn, langasjó, Húsavík og miðnæturróður á Jónsmessunótt út frá Hvammsvík í Hvalfirði, eru meðal ferða sem skipulagðar hafa verið í sumar. dagskrána má finna í heild sinni á vefsíðu klúbbsins, kayakklubburinn.is Kristín Martha Hákonardóttir hefur unun af því að klifra kletta. Hún segir klifur krefj- ast styrks, einbeitingar, nákvæmni, útsjónarsemi og ekki síst þrjósku. Hún segir hér frá uppáhaldsklifurstaðnum sínum. KLIFUR Á HNAPPAVÖLLUM Kristín Martha Hákonardóttir skíðanærmynd frá því í desember frá Whistler, BC, í Kanada Krefjandi klifur í ailfroide í les Ecrins þjóðgarðinum (suður alparnir) í suður frakklandi. Ég var þar í mánuð fyrir rúmu ári að klifra utan á svona steinum. Flott fræðsla amora á örugglega eftir að verða vinsæll áfangastaður ferðamanna enda aðdráttarafl kynlífs óumdeilan- legt. Þessi gestur er að prófa hversu fær hann er í flengingum en gestir safnsins geta þreytt alls konar próf þar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.