Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Side 13
og hafi gert mikið í málaflokki sínum
á valdatíð sinni. Sjálfum finnst Birni
breytingarnar á lögreglulögunum og
nýskipan lögreglumála, auk breyt-
inganna á Landhelgisgæslunni helst
standa upp úr.
Björn er ánægður með hversu
vel breytingarnar á lögreglunni hafa
gengið eftir og segir mikið hafa bæst
við frá því að hann lagði fram hug-
myndir sínar að breyttri skipan lög-
reglumála haustið 2003. Síðan þá
hafi greiningardeild ríkislögreglu-
stjóra verið komið á laggirnar, sér-
sveitin efld, dómsmálaráðuneytið
tekið við yfirstjórn allrar lögreglu á
Suðurnesjum eftir brotthvarf varn-
arliðsins og lögreglan á höfuðborg-
arsvæðinu styrkst svo eitthvað sé
nefnt. „Ég sé það núna þegar ég horfi
til baka að breytingarnar eru miklu
róttækari heldur en lagt var af stað
með í upphafi,“ segir Björn sem hef-
ur mikla ánægju af því að takast á við
breytingaverkefni.
Með fækkun lögregluumdæma
segir Björn víðtæka þróun hafa farið
af stað. Lögreglustjórum var fækkað
en ekki sýslumönnum og hefur ráðu-
neytið flutt verkefni til þeirra út á
land. „Þetta tel ég vera gott fordæmi
fyrir önnur ráðuneyti.“
Hann er líka ánægður með hvern-
ig hefur tekist til með Landhelg-
isgæsluna og eflingu hennar eft-
ir hvarf varnarliðsins. Skrifað hefur
verið undir samning um kaup á nýju
varðskipi og lagt á ráðin um hvernig
þyrlukostur Gæslunnar verður stór-
efldur. Með nýjum lögum um Land-
helgisgæsluna hefur hún víðtækara
umboð til að fara í samstarf við aðrar
þjóðir í öryggis- og varnarmálum.
Þarf að stofna varalið
Verkefnum í dómsmálaráðuneyt-
inu er þó síður en svo lokið að mati
ráðherra. „Það er ýmislegt sem ég
hefði gjarnan viljað klára eins og að
breyta lögunum um almannavarn-
ir. Þar er gert ráð fyrir að sett verði
á fót almannavarna- og öryggis-
málaráð undir forystu forsætisráð-
herra.“ Björn telur líka mikilvægt að
klárað verði að stofna varalið. Það
hafi sannað sig síðasta dag vetrar
þegar bruninn varð í miðbænum og
vatn flæddi á Vitastíg og Laugavegi.
Þá hafi reynt á slökkvilið og lögreglu
til hins ýtrasta. „Kerfið var fullþanið.
Ef eitthvað eitt hefði komið þessu til
viðbótar hefði þörf á varaliði sýnt sig
en slíkur hópur getur létt undir með
lögreglu og slökkviliði,“ segir Björn.
Fyrst og fremst sér Björn fyrir
sér að varalið yrði skipað björgun-
arsveitarmönnum sem séu þunga-
miðja í allri viðbót við lögreglu og
slökkvilið. Hann segir björgunar-
sveitarmenn hafa kvartað undan því
að hafa ekki alltaf nægilega skýrar
heimildir þegar þeir eru kallaðar á
vettvang. „Þeir gætu í sérstökum til-
vikum beitt heimildum sem hluti af
þjálfuðu varaliði og gætu gengið ör-
uggari fram á vettvangi en ella.“
Fangaverðir hafa setið eftir
Erfið staða er í málefnum fanga-
varða sem sagt hafa upp störfum
vegna óánægju með kjör sín. Björn
segir að með breytingu á lögum um
fullnustu refsinga sem hann hafi
beitt sér fyrir sé gert ráð fyrir aukn-
um verkefnum fangavarða. „Mér
hefur fundist alveg augljóst þegar
litið er á stöðu fangavarða að þeir
hafa setið eftir við síðustu samn-
ingagerð. Samningar voru hins
vegar gerðir og samningar skulu
standa,“ segir Björn. Hann segir erf-
itt að segja til um hvaða leiðir eigi að
fara þegar heil stétt situr eftir eins og
staðan er nú. Viðræður séu á milli
fangavarða, stéttarfélags þeirra og
fjármálaráðuneytisins. Fangaverð-
ir telja laun sín eiga að miðast við
laun lögreglumanna en samkvæmt
athugun hefur komið í ljós að laun
þeirra eru þrjátíu prósentum lægri.
„Það blasir við að eitthvað hefur
gerst því bilið á milli fangavarða og
lögreglumanna hefur aukist. Þeir
ættu að vera nær lögreglumönnum í
launum,“ segir Björn og bætir við að
menntun fangavarða hafi verið færð
meira inn í Lögregluskóla ríkisins.
Með auknum kröfum vinnuveit-
andans segir hann greiðslur þurfa
að hækka á móti.
„Ég vona að það gangi eftir að nýtt
fangelsi verði komið á höfuðborgar-
svæðinu samkvæmt þeirri áætlun,
sem fyrir liggur. Fangelsin eru of lítil
og að sama skapi svigrúmið til þess
að veita meðferð og betrun. Búið er
að leggja fram hugmyndir og skyn-
samlegar áætlanir um hvernig best
sé að byggja fangelsin upp,“ segir
Björn og bætir við að engin höft ættu
að vera á því að framkvæma og veita
fjármagni til þess, því að verkefnið
sé mjög aðkallandi og vel hafi verið
staðið að öllum undirbúningi.
Þarf mitt viðhorf til
Aðspurður segir Björn ástæðu til
að óttast fari svo að einhver annar
flokkur en hans taki við dómsmála-
ráðuneytinu. „Mér finnst ástæða til
að óttast miðað við það sem sagt hef-
ur verið á þinginu þegar ég hef kom-
ið fram með mínar hugmyndir. Mér
finnst menn ekki nógu raunsæir í
mati sínu á stöðu okkar Íslendinga
þegar horft er á hvað gera þurfi til
að tryggja öryggi borgaranna,“ seg-
ir Björn, því mikilvægt sé að dragast
ekki aftur úr. Glaðlega bætir Björn
því við að best væri ef Sjálfstæðis-
flokkurinn fengi öll ráðuneyti að
loknum kosningum.
Hann segir stjórnarandstöðuna
alltaf hafa mætt hugmyndum sínum
um auknar öryggisráðstafanir í fyrstu
með þeim orðum að hann væri öfga-
fullur og vildi ganga alltof langt. Það
hafi hins vegar yfirleitt breyst þeg-
ar málin hafi verið rædd og stjórn-
arandstaðan hafi áttað sig á að hug-
myndir hans hafi verið innan þeirra
marka sem eðlilegt og nauðsynlegt
sé. „Það þarf að hafa það viðhorf sem
ég hef til að ýtt sé úr vör, annars ger-
ist ekkert. Ég sé ekki að stjórnarand-
staðan hafi það viðhorf.“
Heilibrigðisráðuneytið heillar
Þegar rætt er við Björn um ráð-
herraembætti og hvort hann muni
sækjast eftir því fari Sjálfstæðisflokk-
urinn í ríkisstjórn eftir næstu kosn-
ingar segist hann tilbúinn í ráðu-
neyti þar sem taka þurfi til hendinni
sé vilji til að nýta krafta hans. „Ég hef
mikla reynslu bæði úr menntamála-
ráðuneytinu og dómsmálaráðuneyt-
inu þar sem miklar breytingar voru
gerðar í minni tíð án þess að allt færi
í háaloft,“ segir Björn honum líki vel í
starfi sínu nú og sjái þar mörg spenn-
andi verkefni, hann sé ekki spenntur
fyrir ráðherrastól, þar sem allt eigi að
vera við það sama.
Heilbrigðismálin eru Birni hug-
leikin vegna reynslu hans undanfar-
ið og einnig vegna þess hve viðamikil
þau eru í ríkiskerfinu, hann telur að
sjónarmið einkarekstrar hafi alls ekki
fengið að njóta sín sem skyldi á þeim
vettvangi þau eigi ekki síður heima
þar en í menntakerfinu þaðan sem
hann hefur mikla reynslu. „Ég er ekki
að bjóða mig fram í neitt ráðuneyti
en ítreka að ég er tilbúinn til verka
þar sem verkefnin eru stór og breyt-
ingar eiga að verða,“ segir Björn.
Björn telur flutning grunnskól-
anna til sveitarfélaganna ekki hafa
heppnast sem skyldi þar sem R-list-
inn hafi verið við völd í Reykjavík.
„Skólinn hefði þróast á allt annan
veg, ef R-listinn hefði tekið á móti
grunnskólunum eins og Ásdís Halla
Bragadóttir gerði í Garðabæ. Hún
leyfði Hjallastefnunni og þar með
einkarekstri að njóta sín. Ef hið sama
hefði verið gert í Reykjavík væri
grunnskólastigið enn öflugra í borg-
inni.“
Saknar Davíðs
„Auðvitað saknar maður
skemmtilegs samstarfsmanns til
margra ára. Ég sakna líka að hafa
hann ekki með okkur í mörgum slag
sem við erum að taka því hann er
mikill baráttumaður og glöggur að
greina hluti og takast á við viðfangs-
efni,“ segir Björn um Davíð Odds-
son, vin sinn og fyrrverandi formann
Sjálfstæðisflokksins. Hann segir þó
gott að vita af honum í Seðlabank-
anum þar sem hann stigi fast til jarð-
ar þegar nauðsyn krefst. Hann segir
Davíð ekki tjá sig of mikið um sínar
skoðanir miðað við stöðu sína. „Ef
hann hætti að segja hvað honum
fyndist hlyti að vera eitthvað að hon-
um.“
Umskipti þegar Kjartan hætti
„Eftir að Davíð fór er eðlilegt að
flokkurinn þróist á nýjan hátt og mér
finnst það hafa tekist farsællega, því
að það getur verið erfitt fyrir flokka
að fóta sig, eftir að hafa verið undir
forystu jafnöflugs leiðtoga og Dav-
íðs,“ segir Björn. Hann telur flokk-
inn þó ekki hafa skipt um stefnu með
nýjum formanni. Á þessum breyt-
ingatíma segir Björn ekki aðeins hafa
reynt á þá sem kjörnir eru til forystu
heldur líka þá sem vinna með þeim.
Allt þetta telur Björn hafa lukkast vel
og það megi sjá á því að fólk hafi ekki
misst traust á flokknum eins og gerst
hafi eftir formannskjörið í Samfylk-
ingunni.
„Mín kynslóð er nú að flytja flokk-
inn frá okkar kynslóð, undir forystu
Davíðs Oddssonar, yfir til nýrrar kyn-
slóðar með nýja forystu. Það er okkar
verk að smíða brúna, svo að menn
geti gengið öruggum fótum þarna á
milli og ég held að okkur sé að takast
það,“ segir Björn.
Björn segir það hafa verið ákveð-
in umskipti fyrir sig þegar Kjart-
an Gunnarsson hætti sem fram-
kvæmdastjóri flokksins enda sé þeim
vel til vina og hafi unnið mikið sam-
an. Hann hafi þó alltaf haft þá burði
innan Sjálfstæðisflokksins, sem til
þurfi án þess að vera endilega háð-
ur skrifstofu flokksins. Hann vonast
til að nýir starfsmenn skrifstofunnar
vinni sitt verk eins vel og gert hefur
verið en á það muni reyna í kosning-
unum og hefur hann fulla trú á að
það takist.
Missti af Landsfundinum í
fyrsta sinn
Í fysta skipti frá því á sjötta ára-
tugnum vantaði Björn á Landsfund
sjálfstæðismanna. En nú er meira en
hálf öld síðan hann fór með föður sín-
um í fyrsta sinn á fundinn. Björn segir
sig því aðeins skorta tilfinningu fyrir
því, sem gerðist á fundinum núna og
erfitt hafi verið að geta ekki verið með.
Hann fylgdist þó með því sem fram
fór úr fjarlægð eins vel og hann mátti.
Hann er ánægður með umfjöllunina
sem fundurinn fékk. Hann telur þó
fjölmiðla hafa gert lítið úr landsfundi
sjálfstæðismanna með því að leggja
hann að jöfnu við fund Samfylkingar-
innar sem hafi verið sviðsett eftirlík-
ing. „Landsfundur sjálfstæðismanna
er raunverulegur fundur þar sem
menn hittast til að vinna, komast að
niðurstöðu með atkvæðagreiðslu og
kjósa fólk til forystu.“
Lítið upptekinn af
stjórnaandstöðunni
Björn hugsar sig um þegar hann
er spurður hverjir séu erfiðustu and-
stæðingarnir. „Mér finnst einhvern
veginn að öll framganga andstæð-
inganna hafi verið upphlaupskennd.
Raunverulegir andstæðingar myndu
benda manni markvisst á að maður
væri á rangri leið með rökum og ef
svo væri þyrfti að taka tillit til þeirra,
öðru gegnir um andstæðinga sem
hrópa og hoppa upp við fyrsta orð
án þess að meira búi þar að baki en
upphlaupið eitt.“
DV Helgarblað Föstudagur 27. apríl 2007 13
„Mér hefur fundist al-
veg augljóst þegar litið
er á stöðu fangavarða
að þeir hafa setið eftir
við síðustu samninga-
gerð.“
Best að leggjast frískur inn á sjúkrahús Björn þakkar sundi, göngum og Qi
gong-æfingum góða heilsu.
Björn á heimili sínu Björn segir
ástæðu til að óttast fari svo að
annar flokkur fái dómsmálaráðu-
neytið eftir kosningar. Hann segist
allavega ekki sjá viðhorfið sem
þarf hjá stjórnarandstöðunni.
dV myndir gúndi
Tilbúinn