Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Side 12
B jörn Bjarnason dómsmálaráð- herra tók á móti blaðamanni á heimili sínu, ótrúlega bratt- ur og hraustleg- ur þrátt fyrir að aðeins tvær vik- ur væru frá því að hann gekkst undir heljarinnar uppskurð. Tvisvar á stuttum tíma hefur Björn þurft að leggjast inn á Landspítalann háskólasjúkrahús við Hringbraut vegna lungnasjúkdóms. Hann leit- aði til lækna í byrjun febrúar þar sem hann var orðinn svo móður og orku- lítill að hann gat varla farið á milli hæða án þess að standa á öndinni. Hægra lungað hafði fallið saman vegna blaðra sem lögðust á það og gerðu að lokum gat á lungað. „Ég lá inni á spítalanum í tíu daga og þeir dældu lofti úr brjóstholinu í þeim til- gangi að fá lungað til að lyfta sér og festast við brjósthimnuna þannig að götin á lunganu myndu lokast, þegar þau lokuðust ekki sjálf var dælt talk- úmi í brjóstholið,“ segir Björn. Að- gerðin tókst og loft hætti að leka úr lunganu en dugði þó í stuttan tíma. Afmyndaðist vegna lofts Annan í páskum var Björn orð- inn jafnslæmur. Hann fór í mynda- töku og var lagður inn samdægurs. „Daginn eftir var mikið loft undir húðinni á hálsinum og í andlitinu. Ég tútnaði út og var orðin eins og blaðra, var alveg afmyndaður í fram- an.“ Götin á lunganu eftir blöðrurn- ar voru svo stór að ekki dugði annað en uppskurður til þess að fjarlægja blöðrurnar og loka götunum á lung- anu. „Bjarni Torfason skurðlæknir opnaði á mér brjóstkassann og lokaði lunganu með goritex-efni og heftum. Nú bíð ég eftir því að vita hvort þetta hafi ekki dugað, en læknarnir telja svo vera,“ segir Björn. Björn segir enga sérstaka skýringu vera á því af hverju hann hafi fengið þennan sjúkdóm. Væri hann stór- reykingamaður væri það líklegasta skýringin en það sé hann ekki. Það er þó ekki alltaf ástæðan því ungt og reyklaust fólk getur líka fengið þess- ar blöðrur á lungun en oftast eru þær mun minni og það gerir sjúkdóminn auðveldari viðureignar. Birni gengur vel að jafna sig eftir uppskurðinn og finnst spennandi að sjá hvort hann verði ekki bara betur á sig kominn en lengi áður þegar hann hefur jafnað sig að fullu. Í dag, föstu- dag, verða teknar myndir af lungun- um og ákveðið í framhaldinu hvort hann verði útskrifaður eftir aðgerð- ina. Björn fer í gönguferðir í nágrenni við heimili sitt til þess að vinna upp þol og styrk. Björn hefur verið heilsuhraust- ur alla tíð og því segir hann veikind- in hafa verið mikil viðbrigði. „Það er mikil reynsla að leggjast tvisvar inn á sjúkrahús við þessar aðstæður og hefur hún vissulega stækkað sjón- deildarhring minn. Ég naut frábærr- ar þjónustu lækna, hjúkrunarfræð- inga, sjúkraliða og annars starfsfólks á sjúkrahúsinu. Reynslan nýtist mér í mörgu tilliti og þess vegna einnig í stjórnmálum,“ segir Björn og bæt- ir við að sem betur fer sé sjúkdóm- ur hans vel læknanlegur. Á meðan á sjúkrahúslegunni stóð segir Björn alveg klárt að hann hafi ekki viljað neina sérmeðferð enda kunni menn almennu meðferðina yfirleitt miklu betur. Gott fordæmi fyrir önnur ráðuneyti Margir sem vinna hjá undirstofn- unum dómsmálaráðuneytisins hafa haft á orði að Björn sé maður verka Föstudagur 27. apríl 200712 Helgarblað DV BB Björn Bjarnason dóms- málaráðherra er að ná sér af veikindum en vegna þeirra missti hann af fyrsta Landsfundinum síðan á sjötta áratugnum. Hann er maður breytinga og segist vilja taka að sér ráðuneyti þar sem gera á breytingar verði Sjálf- stæðisflokkurinn í næstu ríkisstjórn. Hann telur breytinga þörf í heilbrigðisráðuneytinu og býr yfir þeirri reynslu sem þarf. Björn telur baráttu sína við Ingibjörgu Sólrúnu vera upphafið að endalokum R-listans. „Bjarni Torfason skurð- læknir opnaði á mér brjóstkassann og lok- aði lunganu með gori- tex-efni og heftum. Nú bíð ég eftir því að vita hvort þetta hafi ekki dugað.“ Tilbúinn í heilbrigðis- ráðuneytið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.