Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Side 14
Björn spyr hvar stjórnarandstað- an sé í þessari kosningabaráttu og á hvaða grundvelli hún sé að gagn- rýna ríkisstjórnina. Sjálfur finnur hann ekki fyrir gagnrýni á sín verk sem dómsmálaráðherra frá stjórn- arandstöðunni. Hann veltir því fyrir sé hvort ástæðan sé sú að hún finni engan veikan punkt á hans störfum fyndi hún hann ætti hún að hamra á honum. „Annars er ég ekki mjög upptekinn af stjórnarandstöðunni, þótt ég skrifi stundum um hana á vefsíðunni minni mér til gamans,“ segir Björn. Jón Baldvin svartur senuþjófur „Ég held að kaffibandalagið hafi gufað upp í kosningabaráttunni og sé fyrir bí. Það er afar hæpið að þessir flokkar geti unnið saman. Hvað eiga þeir að sameinast um?“ segir Björn. Hann segir ótrúlegt hvernig Jón Baldvin Hannibalsson komi allt- af sem svartur senuþjófur til að gera Samfylkingunni lífið leitt. Eins finnst honum það lýsa vandamál- um flokksins enn betur að það þyki frétt, þremur vikum fyrir kjördag, að Össur og Ingibjörg geti talað saman og hafi náð sáttum. „Samfylkingin er uppteknari af eigin vandamálum en sókn gegn okkur.“ Eins telur Björn greinilegt að Ómari Ragnarssyni hafi tekist að fipa vinstri græna eitthvað. Kannski hafi hann náð að taka frá þeim ákveð- inn hóp sem veittu vinstri grænum breidd. Hitt sé líka spurning hvort umhverfismálin hafi toppað í kosn- ingunni í Hafnarfirði og eftir hana hafi glansinn dofnað á stefnu flokks- ins. Björn segir þó ekki hægt að horfa framhjá mikilli fylgisaukningu vinstri grænna samkvæmt skoðanaönn- unum og sé litið til úrslita síðustu kosninga. Það telur hann mega skýra meðal annars með því að flokkur- inn hafi skipt um lit sýnt græna lit- inn í stað rauða kjarnans auk þess að draga úr andstöðu við Sjálfstæðis- flokkinn. Flokkarnir geti náð saman um ákveðin mál, eins og afstöðuna til Evrópusambandsins, án þess að láta ólíka stefnu í öðru trufla sig. Feilspor hjá Framsókn Björn segir Framsókn hæglega geta bætt við sig á kjördag eins og oft áður en eins geti farið svo að það takist ekki. „Ég tel óvarlega far- ið af framsóknarmönnum að segjast ekki ætla í ríkisstjórn nema þeir nái ákveðinni prósentutölu. Því ef þeir fá þingmannafjölda til þess að fara í ríkisstjórn þá er ég viss um að þeir muni gera það hvað sem prósentu- tölum líður,“ segir Björn. Prósentu- talið sé hægt að nota gegn þeim fari þeir í ríkisstjórn án þess að hafa náð markmiðum sínum. „Menn verða að huga að því, hvað þeir segja til að hvetja fólk til að kjósa sig – þeir sitja uppi með ummælin.“ Upphafið að endalokum R-listans „Ég held að slagur okkar Ingi- bjargar Sólrúnar um borgarstjóra- stólinn á sínum tíma hafi náð að kveikja einhverja strauma innan R- listans sem síðan hafi leitt til þess að hann leystist upp,“ segir Björn, fyr- irfram hafi hann allt eins búist við því að það þyrfti meira en eitt skref fyrir Sjálfstæðisflokkinn að ná borg- inni aftur. Hann hafi verið tilbúinn til þess að taka áhættu og það hafi verið lærdómsríkt að vera í borgar- stjórn. Eftir kjörtímabilið hafi R-list- inn verið splundraður sem hafi dug- að til þess að Sjálfstæðisflokkurinn gat myndað meirihluta í kosningun- um á eftir. „Það var ekki stór mun- ur á atkvæðafjöldanum sem náðist undir minni forystu og síðan fjöld- anum sem dugði til þess að ná yfir- höndinni, það vantaði bara herslu- muninn.“ Björn segir feril stjórnmálamanna sem taka áhættu vera sveiflukennd- an og þegar litið sé til baka séu þeir sem þori oft hærra skrifaðir en hinir sem sitji á alltaf friðarstóli. Missættið á bak og burt Björn fullyrðir að það missætti sem varð í prófkjörsbaráttunni í haust, þegar Guðlaugur Þór Þórðar- son bauð sig fram gegn honum, sé á bak og burt. Hann heldur enn fast við að unnið hafi verið gegn honum og þess vegna hafi hann allt eins bú- ist við því að hann myndi rúlla nið- ur listann. Björn bauð sig fram því hann var tilbúinn að taka hvaða nið- urstöðu sem var. „Reglan er yfirleitt sú að formaðurinn situr óáreittur á friðarstóli. Ef menn vilja skapa ófrið um önnur sæti, nú þá verður ófriður á meðan baráttan stendur yfir. Svo er bara spurningin hvernig mönn- um tekst að vinna úr málum eftir á og ég tel að okkur hafa tekist það vel miðað við hvernig málin voru og hvernig menn töluðu síðasta haust,“ segir Björn. Nauðsynlegt sé að setja leiðindin á bak við sig annars séu menn komnir í einhvern Samfylk- ingarleik. Knúinn til að verja föður sinn Björn segir sig hafa verið knú- inn til þess að bera hönd fyrir höfuð föður sínum, Bjarna Benediktssyni, í allri umræðunni um hlerunar- málið og þeirri gagnrýni sem hann sætti þar. „Það er sárt ef gagnrýnin er ósanngjörn, lygi eða tilbúningur. Það er erfitt þegar mannorð látins manns er svert með þessum hætti,“ segir Björn. Sjálfur hafi faðir hans talið erfitt að segja á líðandi stundu hvort ákvarð- anir, sem stjórnmálamenn þyrftu að taka, væru réttar eða rangar. Allt ork- aði tvímælis, þegar gert væri. Björn segir að í hlerunarmálinu hafi ekkert óeðlilegt hafa komið fram, fara eigi í saumana á þessum málum og skýra eins og kostur er. „Þegar ég var í prófkjörinu í haust var hlerunarmálið blásið upp og svona eftir á að hyggja kann það hafa verið gert til að það kæmi mér illa í prófkjörsslagnum,“ segir Björn. Hann segist hálfhissa miðað við öll lætin í vetur, á því, að málinu skuli ekki haldið á lofti í kosningabarátt- unni. „Það stenst ekki að lagt hafi ver- ið á ráðin um að hlera pólitíska and- stæðinga. Ég held að lögreglan hafi verið að búa sig undir ef eitthvað færi úr skorðum í hita leiksins. Það liggur fyrir að lögreglan bað um hlerunar- heimildir, dómari veitti þær en ekki er vitað, hvenær og jafnvel hvort lög- reglan hafi notað heimildirnar.“ Sumir hafa gagnrýnt Björn fyr- ir að hafa tjáð sig um hlerunarmál- ið með þeim hætti sem hann gerði. Sjálfur segist hann hafa haldið sig innan eðlilegra marka sem dóms- málaráðherra. Það sé skrýtið í lýð- ræðisþjóðfélagi ef hömlur eru settar á hvað stjórnmálamenn megi segja um svona mál. „Hvað mig varðar þá var ég van- ur því að faðir minn sætti stöðug- um árásum. Ætla hefði mátt, að því myndi einhvern tíma linna en svo virðist ekki vera, allavega hvað suma menn varðar,“ segir Björn sem fann sig knúinn til að taka upp hanskann fyrir föður sinn á liðnum vetri og ger- ir aftur, ef hann telur þess þörf. Með varnarmúr Talað hefur verið um það að Björn sé ekki nógu hlýr og allt að því hrokafullur á köflum þegar hann kemur fram í fjölmiðlum. „Ég er bú- inn að heyra þetta alla ævi. Þetta er kannski minn varnarmúr gagnvart umhverfinu. Ég verð að passa mig að vera ekki of harður því ég á það til að setja múr í kringum mig þegar ég þarf á því að halda,“ segir Björn sem alla tíð hefur þurft sitt svigrúm. Eiginkonu sína Rut Ingólfsdóttur segir hann líka þurfa sitt athvarf og heimilið sé griðastaður þeirra. Rut sem er fiðluleikari kemur fram sem listamaður og vegna starfa þeirra beggja þurfi þau að vera mikið út á við. Þau Rut hafa verið gift í 38 ár og segir Björn hjónaband stjórn- málamanns og listamanns fara vel saman en að sjálfsögðu misjafnlega eftir málaflokkum. „Þegar ég var menntamálaráðherra fóru störf okk- ar auðvitað mjög vel saman en það breyttist talsvert þegar ég fór í lög- reglumálin enda passa þau ekki eins vel við hennar áhugamál.“ Saman eiga Björn og Rut tvö börn og þrjú barnabörn sem eru sjö ára, fimm ára og átta mánaða. Þau búa í London og því sjá þau minna af barnabörnunum en þau vildu. „Þeg- ar þau koma eru það hátíðarstund- ir. Ég reyni að vera eins mikill afi og ég get.“ Föstudagur 27. apríl 200714 Helgarblað DV „Ég er ekki að bjóða mig fram í neitt ráðu- neyti en ítreka að ég er tilbúinn til verka þar sem verkefnin eru stór og breytingar eiga að verða.“ Ósáttur við R-listann Björn segir að við værum með betra grunnskólastig ef r-listinn hefði tekið á móti grunnskólunum á sama hátt og Ásdís Halla gerði í garðabæ. Fyrir Íslenskar aðstæður Jakki og buxur með Air-Tex öndun Kr. 19.500 Innifalið! Tvenn nærföt þunn rakadræg og fl ís. Athugið! Einnig fylgja með í kaupunum lúffur, húfa og trefi ll. North Ice Outdoor Finnskur útivistar fatnaður vatnsheldur með Air-Tex öndun. Jakki og buxur. Kr. 17.500,- Léttur og þægilegur fatnaður á frábæru verði. Athugið! Nú fylgja fl íspeysa, fl ísnærföt, húfa, vettlingar og snilldar bakpoki frítt með. Icefinwww.icefi n.is - Nóatúni 17 - 105 RVK. Vertu klár fyrir sumarið með útivistarfatnaði Icefin.indd 1 4/1/07 6:40:19 PM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.