Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Side 21
DV Helgarblað Föstudagur 27. apríl 2007 21 Faðir Gerðar Pálmadóttur, Pálmi Pétursson kennari, veiktist af Alzheimer-sjúkdómnum árið 1978. Þá var hann 55 ára. Enginn skilningur var á sjúkdómnum og barátta fjölskyldunnar fyrir hjúkrunarrými eða heimahjúkrun bar engan árangur fyrr en mörgum árum síðar. Gerður grátbað um aðstoð en fékk enga. Hún auglýsti eftir aðstandendum og er einn stofnenda FAAS. OF UNGUR FYRIR ALZHEIMER „Ef við komum í heimsókn og síminn hringdi svaraði pabbi í sím- ann og gleymdi að við værum hjá honum,“ segir dóttir hans, Gerður Pálmadóttir, Gerður í Flónni, sem er einn stofnenda félags aðstand- enda Alzheimer-sjúklinga, FAAS. „Við upplifðum þetta eins og hann hefði engan áhuga á okkur og við værum bara fyrir honum. Við héld- um að hann væri farinn að drekka, hann breyttist svo mikið.“ Pálmi Pétursson var 55 ára, of ungur til að geta verið með Alzheim- er-sjúkdóminn, segir Gerður, enda ekkert kannað hvort sá möguleiki væri fyrir hendi. „Það gerði okkur erfitt fyrir hversu ungur hann var,“ segir Gerð- ur. „Hann var ekki á réttum aldri til að verða viðurkenndur veikur. Þeir læknar sem við leituðum til töluðu við okkur eins og við vær- um að ljúga upp á hann veikind- um. „Hann Pálmi er ekki veikur“ var viðkvæðið. Hegðunarmynstur pabba gjörbreyttist.“ Gerður Pálmadóttir hefur ver- ið búsett í Hollandi síðustu árin þar sem hún rekur ásamt dóttur sinni þrjú fyrirtæki: Copyrite, Hot Ice Confusion og Art it is, gjafa- og listaverkaverslun á Schiphol-flug- velli. Hún fylgist vel með aðbúnaði Alzheimer-sjúklinga þar í landi sem og hér heima. Hún segir að reynsla sín af veikindum föður síns valdi sér ennþá hugarangri. „Á þessum tíma var pabba boð- ið að verða gestakennari við skóla í Kanada en ýtti því frá sér. Okk- ur fannst hann vera vankaður og áhugalaus og vorum ósátt við hegðun hans. Það nagar mig enn þann dag í dag að enginn skilning- ur var fyrir hendi á Alzheimer-sjúk- dómnum á þessum tíma. Þegar við bættist að læknar og aðrir beinlín- is ásökuðu okkur fjölskylduna um að vera að gera úlfalda úr mýflugu bættist sjálfsásökun við vanmátt- inn sem við fundum fyrir.“ Vinkona greindi sjúkdóminn Gerður hafði verið skiptinemi í Bandaríkjunum þegar hún var átj- án ára. Það var ekki fyrr en banda- rísk vinkona hennar kom í heim- sókn til Íslands að hún vissi hvað var að gerast hjá föður sínum. „Móðir þessarar vinkonu minn- ar hafði látist úr Alzheimer og vin- kona mín sá strax að pabbi væri með sama sjúkdóm. Hann hafði þá verið veikur í um það bil ár, gat ekki keyrt, var vankaður og sýndi umhverfinu engan áhuga. Lækn- ar fundu ekkert að honum og þeg- ar hann hafði verið lagður inn á Borgarspítalann og ég beðin að sækja hann þar sem ekkert væri að honum, grátbað ég lækninn að kanna málið betur. Greiningin var Alzheimer.“ Auglýsti eftir aðstandendum í Morgunblaðinu Við tók tími ótta og skilningsleys- is. Engin hjálp var í boði og Gerður og fjölskyldan höfðu engan að tala við. Þá greip Gerður til óvanalegs ráðs. „Ég setti auglýsingu í Morgun- blaðið og auglýsti eftir fólki sem stæði í sömu sporum og við. Bað þá sem þekktu einhvern með Alzheim- er-sjúkdóminn að hafa samband. Skömmu síðar fór ég með pabba í leikhúsið, þar sem kona vatt sér að mér og hellti sér yfir mig. Sagði að það væri greinilega ekkert að pabba en eins og ég hegðaði mér mætti halda að hann væri kominn í hjólastól.“ Auglýsingin bar nokkurn árang- ur, en ekki nógu mikinn. Eftir út- varpsþátt, sem Gerður var með þar sem hún sagði sögu föður síns, fór boltinn hins vegar af stað. „Ævar Kjartansson, sá yndislegi maður, kom í heimsókn til okkar pabba ásamt nokkrum fyrrverandi nemendum pabba úr barnaskóla. Pabbi var þá fluttur til mín, enda fjölskyldan ekki í stakk búin til að sinna honum. Ég var reyndar sjálf ekki í nokkurri aðstöðu til þess, en einhver varð að sjá um hann. Ævar bauð mér að vera með út- varpsþátt og ég þáði það. Þar sagði ég frá pabba og lék tónlistina sem hann hlustaði á. Eftir þáttinn rigndi inn símtölum frá aðstandendum Alzheimer-sjúklinga og eftir fund sem við héldum ákváðum við að stofna formleg samtök aðstand- enda þeirra sem glímdu við heila- bilun.“ Engillinn Elsa Hún verður ekki hissa þegar ég segi henni af viðtali við Hönnu Láru Steinsson í blaðinu í dag og að nú eigi að opna einkarekna ráðgjafar- stofu. „Ég gekk á milli fólks og grátbað um hjálp þegar pabbi var að byrja að veikjast,“ segir hún. „Ég talaði við stjórnmálamenn og fór í ráðu- neytin. Ég spurði fólk hvort það gerði ráð fyrir að einhver úr þeirra fjölskyldu gæti annast það ef það veiktist. Ég reyndi að fá dagvist- un eða heimahjúkrun fyrir pabba en hann fékk ekki dagvistun fyrr en nokkrum árum síðar, í Múla- bæ. Þar kynntumst við konu sem reyndist vera engill í mannsmynd. Hún hét Elísabet Óskarsdóttir og hún tók pabba að sér til að ég gæti sinnt starfi mínu. Elísabet tók pabba heim til sín og það var hún sem var hjá honum þegar hann lést árið 1993. Þá hafði hann verið mikið veikur í fimmtán ár... Elísa- bet greindist sjálf með Alzheimer í fyrra en frelsaðist frá sjúkdómn- um því hún lést á afmælisdegi pabba, 20. nóvember síðastliðinn úr hjartaáfalli. Það er eins og hún og pabbi hafi gert samning...” Eitt símtal á gamlárskvöld Þrátt fyrir sorgina sem Gerður upplifir við að rifja upp þessi ár, lætur húmorinn ekki á sér standa. „Við pabbi vorum oft tvö ein. Síminn hringdi ekki og fólk forðað- ist að koma í heimsókn. Eitt gaml- árskvöldið sátum við tvö ein og eng- inn hafði hringt dögum saman. Allt í einu hringdi síminn. Á línunni var maður sem spurði hvort það væri ekki rétt munað hjá honum að ég byggi með Pálma. Ég hélt nú það og þar sem ég þekkti nafn mannsins varð ég svo innilega þakklát í hjarta mér yfir því að hann skyldi hringja. Við töluðum saman dágóða stund þar til kom í ljós að maðurinn var að hringja í rangt númer. Hann hélt ég byggi með Pálma Gestssyni leik- ara, en hann hafði ætlað að þakka honum frábæran leik í Áramóta- skaupinu!“ Vantar mannvirðingu og ást á Íslandi Gerður segir að sér finnist enn langt í land með að almenningur skilji að Alzheimer-sjúkdómurinn sé fjölskyldusjúkdómur. „Með einum sjúklingi sem veikist, lamast heil fjölskylda. Það þarf að sýna mikla aðgát í nær- veru heilabilaðra. Við vitum ekki hvort þau finni til, hvað þau skilja og sjálfur skilur maður ekki hvað er að gerast. Það fylgir gríðarleg hræðsla því að standa frammi fyrir sjúkdómi sem maður kann engin skil á. Og pabbi var ofboðs- lega hræddur fyrstu árin, þangað til hann hvarf í sinn eigin heim. Það var sárt, því ég vissi aldrei hvenær hann var í eigin heimi og hvenær í okkar. Ég er ekki hissa á að heyra af ástandinu heima á Ís- landi í þessum málum, það lýs- ir þjóðarsálinni. Einn daginn eru það Alzheimer-sjúklingar, þann næsta blindir og þann þriðja fatl- aðir. Ástandið heima á Íslandi verður svona þangað til stjórn- málamenn fara að sýna þegn- um landsins mannvirðingu og ást. Skipið strandar vegna þess að það er ekkert flæði. Það vant- ar heildarsýnina og það er ekki tekið á málum sem alla varðar. Innan heilbrigðisgeirans starfa hetjur sem eiga skilið meiri virð- ingu en þau fá núna. Mér finnst oft eins og það gleymist hjá þeim sem ráða ríkjum að lífið er einu sinni þannig að það kemst enginn í gegnum það án þess að upplifa sorgir. Það vantar ástina inn í líf- ið á Íslandi. Þegar hún kemur þá verður Ísland kjörland fyrir vel- gengni.“ annakristine@dv.is Í VIÐJUMÍ VIÐJUM ALZHEIMERS ALZHEIMERS Pálmi heitinn Pétursson var einstaklega ástsæll kennari. Hér er hann ásamt englinum Elísabetu sem tók hann að sér þar sem ekkert hjúkrunarrými var að fá „Elísabet greindist sjálf með alzheimer í fyrra en frelsaðist frá sjúkdómnum. Hún lést á afmælisdegi pabba 20. nóvember síðastliðinn.“ „Ástandið heima á Íslandi verður svona þangað til stjórn- málamenn fara að sýna þegnum landsins mannvirð- ingu og ást. Skip- ið strandar vegna þess að það er ekk- ert flæði. Það vant- ar heildarsýnina og það er ekki tekið á málum sem alla varðar.“ Gerður Pálmadóttir, einn stofnenda FAAS Vissi aldrei hvenær faðir hennar var í eigin heimi og hvenær í sínum. „Það vantar mannvirðingu og ást í íslenskt samfélag,“ segir hún.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.