Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Síða 26
V algeir Guð- jónsson valdi sér plokkfisk af matseðli, sem annars einkenndist af hamborg- um og klúbb- samlokum – frönskum, sósu og salati, þegar hann settist niður með blaðamanni DV á veitingastað í Reykjavík. Plokkfiskn- um fylgdu þrjár sneiðar af rúgbrauði, það verður varla íslenskara. Hvað annað ætti sjálfur Valgeir Guðjónsson svosem að fá sér? „Ég fæddist nú bara hérna á fæð- ingardeildinni og var keyrður heim í snjóbíl, eins og fram kemur í bók Illuga Jökulssonar, Draumur okkar beggja. Þetta var nefnilega á þeim árum þeg- ar það átti til að snjóa í Reykjavík,“ seg- ir Valgeir. Hann ólst fyrst upp á Njáls- götunni, í húsi sem afi hans byggði en flutti síðar í Smáíbúðahverfið. „Ég fór svo alltaf á sumrin í sveit, vestur á Galtarvita – sem er paradís á jörðu að sumarlagi, en ég þekki ekki aðrar árstíðir þar. Ég dvaldi hjá afabróður mínum, Óskari Aðalsteini, rithöfundi og Hönnu, konu hans og varð þarna fyrir mjög varanlegum áhrifum af ein- hverju óskilgreindu, sem varð til þess að hin leitandi óeirð þess sem sumir kalla listamann skaut rótum í mér. Ég varð fljótt var við að ég hafði þörf til að búa eitthvað til, en það getur verið dálítið harður húsbóndi og ekki frá því hlaupið mjög auðveldlega án þess að koma sér upp lífslangri óhamingju.“ Þessi óeirð leiddi síðan Valgeir inn á ýmsar brautir í lífinu. „Ég hef náttúrulega fengist við mjög margt. Ég starfaði um tíma í Bandaríkjun- um og þar þótti ferilskrá mín með hreinum ólíkindum og algerlega fjar- stæðukennd, því lífshlaup Banda- ríkjamanna er mest á einni braut og þeir eru ekki mikið að breyta til ótil- neyddir. Ég hef þannig farið svolítið um víðan völl og það hefur fært mér mjög mikla ánægju, en að sama skapi kennt mér að það er ekki alltaf á vís- an að róa þegar maður er að elta söng hjartans,“ segir Valgeir spekingslega. Gítarkennarinn mamma Foreldrar Valgeirs voru Guðjón Valgeirsson lögfræðingur og Margrét Árnadóttir, sem hann segir afar merki- lega konu. „Ég segi það gjarnan að hún sé elsti starfandi fatahönnuður landsins, enda hefur hún framleitt ull- arfatnað í marga áratugi. Hún kynnti mig líka fyrir tónlist, því hún spilar á gítar. Gripakunnátta hennar mælist í eins stafs tölu en hún er engu að síð- ur meðal fremstu partýgítarleikara og hefur haldið uppi gleðskap víða um land – og lönd. Hún kenndi mér fyrstu tvö gripin, en síðan var ég mikið að æfa mig með Þórði Árnasyni bekkjar- bróður mínum, en um leið og hann keypti gítar varð hann gítarsnillingur. Fyrsti gítarinn hans, sem var rússnesk- ur og kostaði 500 krónur, var keyptur í lítilli sérvöruverslun við Hallveigarstíg sem verslaði með rússneska sérvöru. Þar var til dæmis hægt að kaupa gítara, babúskur og samóvara – hún er því miður ekki lengur til þessi búð, enda hefur eftirspurn eftir rússneskri sér- vöru minnkað töluvert,“ segir Valgeir og maður veit ekki alveg hvort bros- ið sem fylgir í kjölfarið gefur til kynna lúmskt háð eða einlæga fortíðarþrá. Valgeir tók snemma til við að semja tónlist og fyrsta lagið sem hann man eftir að semja var við kvæði Jónasar Hallgrímssonar; Efst á Arnarvatns- hæðum, þegar hann var 12 ára. „Þetta var svosem ekki stórt lag og undir tals- verðum áhrifum frá Shadows, sem voru kannski mínir helstu áhrifavald- ar á þessum tíma – áður en allir hin- ir komu fram á sjónarsviðið. En þegar ég var í fyrsta eða öðrum bekk í gagn- fræðaskóla kom fyrsta kasettutækið á heimilið. Það var af Philips-gerð og ég man að ég tók upp og var þarna með í smíðum mikið tónverk í mörgum þáttum. Ég tók upp einn þátt í einu og þegar ég hafði samið þann næsta tók ég hann upp – og svo koll af kolli. Þessi kasetta er því miður týnd, eins og svo margar kasettur. Þarna lagði ég upp með að gera eins flókna tónlist og ég gat, þó ég hafi nú frekar hneigst til þess í seinni tíð að gera einfaldari og einfaldari lög. Þessi gömlu lög eru nú öll týnd, nema eitt sem ég samdi við kvæði Tómasar Guðmundsson- ar, Það kvað vera fallegt í Kína. Í þessu lagi finnst mér jafnvel gæta einhverra höfundareinkenna sem hafa fylgt mér síðan og ég þyrfti eiginlega að koma þessu lagi út.“ Sprenging í Hamrahlíð Valgeir sinnti tónlistinni nokkuð í gagnfræðaskóla og var meðal annars í skólahljómsveit, en þegar hann gekk í Menntaskólann við Hamrahlíð fóru hlutirnir að gerast fyrir alvöru. „Það varð bara einhverskonar sprenging, enda var skólinn ótrúleg deigla. Ég kom þangað inn 1968 og telst þannig ungliði í 68-kynslóðinni. Ég kynnt- ist þarna tilvonandi samstarfsmönn- um mínum; Sigurði Bjólu fyrst, svo Jakobi og Agli. Bjólan hafði á þessum tíma mjög góðan og þróaðan tónlist- arsmekk. Hann átti frábær hljómtæki af Bang&Olufsen gerð þannig að við fórum mikið heim til hans og hlust- uðum á tónlist. Hann hlustaði mik- ið á blús og við urðum saman miklir áhugamenn um blústónlist, sem var nokkuð óvenjulegt á þessum tíma. Þarna snerist líf okkar mjög mikið um tónlist, menn sátu saman og hlust- uðu á tónlist á kvöldin og krufðu heilu plöturnar til mergjar. Þetta varð svo til þess að maður fór að semja meira og upp úr þessu varð til fyrsti vísirinn að Stuðmönnum og Spilverki þjóðanna.“ Það varð þó ekki til þess að Val- geir helgaði sig tónlistinni eingöngu því eftir útskrift gerðist hann kennari. „Eftir að ég útskrifaðist lagði ég mikla stund á forfallakennslu á gagnfræða- stigi, sem var mjög lærdómsríkt. Ég kenndi í mörgum skólum, til dæmis í Lækjarskóla í Hafnarfirði en á þeirri kennarastofu kynntist ég mörgum góðum mönnum. Samhliða kennsl- unni var ég svo viðloðandi Tónlist- arskóla Reykjavíkur, þar sem ég nam hljóðfræði hjá Jóni Ásgeirssyni. Hann er mikill snillingur og hafði gríðarleg áhrif á mig. Við komum svo þarna fram með leynihljómsveitina Stuð- menn, sem kom á daginn að enginn þekkti þegar hulunni var svipt af með- limunum. Árið 1975, þremur árum eftir að ég útskrifaðist úr menntaskóla kom svo Sumar á Sýrlandi út og fyrsta plata Spilverksins seinna sama ár. Þá vorum við búnir að vera að undirbúa jarðveginn í nokkurn tíma, með því að spila og semja og pæla mikið,“ segir Valgeir. Að vita mikið um lítið Valgeir kynntist síðan konunni sinni, Ástu Ragnarsdóttur um þetta leyti. „Það gerðist á afar rómantískan hátt í gönguferð frá Þingvöllum yfir í Hvalfjörð þegar við gengum svokall- aðan Leggjabrjót í svartaþoku ásamt vinum okkar. Einn þessara vina, séra Þorbjörn Hlynur Árnason á Borg, gifti okkur svo 27 árum síðar eftir býsna langt tilhugalíf. Þannig að við mælum brúðkaupsdaga okkar ennþá í endur- vinnanlegum efnum – enda eru brúð- kaupsafmælin úr pappa til að byrja með,“ segir Valgeir og aftur er erfitt að rýna í svipinn sem fylgir. Þau Ásta eign- uðust sitt fyrsta barn árið 1977 og fóru ári síðar í nám til Þrándheims í Noregi, sem Valgeir kallar „stóran smábæ.“ „Ég aflaði mér þarna menntunar sem fé- lagsráðgjafi. Ég ætlaði reyndar að læra músíkþerapíu, en fyrir einhverja tilvilj- un fór ég í þetta nám í staðinn og það hefur nýst mér vel í lífinu sem grunnur að því að vita mikið um lítið. Ásta lærði hinsvegar námsráðgjöf, sem er í raun- inni grunnurinn að því starfi sem við vinnum við í dag.“ Alltaf á undan sinni samtíð Spilverk þjóðanna gerði 6 plötur á árunum 1975-1978, sem gefur til kynna mikla sköpunargleði sveitar- innar og Valgeirs. „Ég man sérstak- lega að árið 1977 var ég að vinna að plötu með Hrekkjusvínunum, gerði plötuna Sturlu með Spilverkinu, Á bleikum náttkjólum með Megasi og eignaðist mitt fyrsta barn, Árna Tómas. Þannig að þetta var mjög viðburðaríkt ár hjá mér. Við gerð- um líka sjónvarpsþátt 1978 í tilefni af Bráðabirgðabúgi, síðustu plötu Föstudagur 27. apríl 200726 Helgarblað DV HIN LEITANDI Valgeir Guðjónsson hefur verið áberandi í íslensku tónlistar- lífi í yfir 30 ár. Á þeim tíma hefur hann verið í vinsælustu hljómsveitum landsins, leikið í kvikmyndum, gefið út sólóplöt- ur og samið kvikmyndatónlist auk þess að keppa tvisvar fyrir Íslands hönd í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Hann situr nú í 17. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Kragan- um og vill kenna íslenskum námsmönnum að vinna. óeirð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.