Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Page 34
Fimmtudagur 19. apríl 200734 Sport DV
Æft á grasi Íslenska liðið hefur í þessari viku æft á grasi á
Garðskagavelli.
Síðustu daga hefur íslenska karla-
landsliðið skipað leikmönnum sautj-
án ára og yngri æft af krafti fyrir úr-
slitakeppni Evrópumótsins sem fram
fer í Belgíu. Þetta er fyrsta landslið Ís-
lands sem nær í lokakeppni stórmóts
og er Ísland fámennasta þjóð frá
upphafi sem kemst í þessa keppni.
Þetta er einn allra efnilegasti hópur
leikmanna sem komið hefur upp hér
á landi. Luka Kostic, þjálfari liðsins,
segir væðingu knattspyrnuhalla og
séræfinga spila stóran þátt í þessu.
„Þetta er mitt fimmta ár með U17
landsliðið og aldrei hefur verið eins
erfitt að velja hópinn eins og einmitt
nú. Þegar það er verið að velja milli
svona ungra stráka er óhjákvæmilegt
að einhverjir finni höfnun. En sam-
keppnin er bara svo rosalega mikil,“
segir Luka. „Ég man eftir því þegar
ég var með þetta U17 landslið fyrst
þá var mjög erfitt að finna leikmenn í
átján manna hóp sem uppfylltu allar
kröfur sem til þarf. Það er þó ekkert
mál í dag og hægt að finna tíu leik-
menn utan hópsins sem eru svipaðir
að getu.“
Erfið leið
Ísland er í A-riðli af tveimur á loka-
keppni Evrópumótsins. Fyrsti leik-
ur Íslendinga í riðlinum verður gegn
Englendingum 2. maí. Leikið verð-
ur gegn Hollandi 4. maí og loks við
gestgjafa Belga 7. maí. Það var ekki
heppnin sem fleytti íslenska liðinu
alla leið í lokakeppnina. Það fór erf-
iða leið, spilaði einfaldlega frábær-
lega og átti skilið að komast áfram úr
undankeppninni. Liðið tapaði ekki
leik í milliriðlinum og lagði m.a. ríkj-
andi Evrópumeistara Rússa.
„Við vorum að leggja lið eins og
Rússland sem tók þrjá mánuði bara
í undirbúning fyrir þennan millirið-
il í Portúgal. Svo hefur portúgalska
liðið verið með eitt besta unglinga-
lið Evrópu síðustu fimmtán ár og
við slógum þá út og það á þeirra
heimavelli. Við erum til alls líkleg-
ir og munum spila til sigurs í öllum
leikjum í Belgíu,“ segir Luka Kostic. Í
undankeppninni varð íslenska liðið í
öðru sæti riðils síns á eftir Frökkum
en á undan Rúmenum og Litháum. Í
milliriðlinum voru svo Rússar, Portú-
galir og Norður Írar skildir eftir.
Eins og áður hefur komið fram
segir Luka Kostic aldrei séð jafn-
sterkan leikmannahóp hjá nokkru
unglingalandsliði Íslands. Hann
segir að breyttir tímar í aðstöðu fyr-
ir fótboltamenn hér á landi spili þar
stóra rullu. „Það hafa orðið ákveðin
tímamót í íslenska boltanum með
þessum knattspyrnu-akademíum
og fótboltahúsum. Fyrir nokkrum
árum voru leikmenn að æfa kannski
í mesta lagi fimm sinnum í viku en
í dag eru margir sem æfa tíu til tólf
sinnum. Maður tekur strax eftir því
hvað þetta breytir miklu,“ segir Luka
Kostic.
Sá leikmaður í íslenska hópnum
sem hefur fengið mesta umfjöllun
er Kolbeinn Sigþórsson sem raðaði
inn mörkum á leið liðsins að úrslita-
keppninni. Hann er sonur Andra
Sigþórssonar og er í dag eftirsóttur af
fjölmörgum stórliðum í Evrópu.
Betra að vera heima í fullorð-
insbolta
Luka Kostic hikar ekki eitt augna-
blik þegar hann er spurður út í hvort
íslenska liðið eigi möguleika á þessu
Evrópumóti í Belgíu. „Við höfum sýnt
það að á góðum degi getum við unn-
ið öll þessi lið. Við búum hinsvegar
ekki yfir neinni reynslu af þátttöku í
svona úrslitakeppni. Við tökum bara
leik fyrir leik og reynum að fá sem
mest út úr þessu. Liðið hefur verið
að spila mjög vel og leikmennirnir
kunna þetta alveg. Hvernig sem fer
þá verð ég stoltur af þessu liði,” segir
Luka Kostic.
Þess má geta að ef íslenska liðið
hafnar meðal fimm efstu liða Evr-
ópumótsins fær það þátttökurétt á
heimsmeistaramótinu sem fram fer í
Suður Kóreu um miðjan ágúst
„Þetta er rosalega flottur hóp-
ur efnilegra leikmanna. Andinn og
samstaðan er mjög góð. Þetta eru allt
vinir sem eru í þessu saman og eru
stoltir af því að spila fyrir hönd Ís-
lands. Við lítum ekkert á að nein lið
séu eitthvað stærri en við.“
Luka Kostic er á þeirri skoðun
að margir efnilegir íslenskir leik-
menn fari of snemma út til að spila
með unglinga- og varaliðum. Leik-
menn þroskist meira af því að æfa
og spila með meistaraflokkum hér á
landi. „Það hefur sýnt sig í gegnum
tíðina að leikmenn sem eru farnir út
áður en þeir komast upp í meistara-
flokkinn koma bara til baka. Þessir
sem eru núna í fremstu röð af okk-
ar atvinnumönnum voru langflest-
ir komnir upp í meistaraflokkinn
hérna áður en þeir fóru út. Má þar
nefna leikmennina hjá Reading og
Charlton,” segir Luka Kostic.
Hann segir unglinga- og varaliðs-
deildirnar úti vera ofmetnar. „Svona
ungir leikmenn fá miklu meira út úr
því að vera að spila í fullorðinsbolta
hér en með einhverjum unglinga- og
varaliðum þarna úti. Það eru mörg
dæmi um mun hraðari framfarir hjá
strákum sem verða eftir hérna heima
en þeim sem fara snemma í einhver
unglingalið erlendis. Hér er vegur-
inn upp í það að spila fyrir aðallið-
ið miklu styttri og þar spila þeir gegn
fullorðnum mönnum. Þó að efstu
deildirnar hér heima séu ekki neitt
rosalega sterkar þá eru þær mjög
góðar fyrir svona unga drengi.“
Gott starf í Kópavogi
Athygli vekur að Kópavogsliðin
Breiðablik og HK eiga samtals átta
leikmenn í átján manna hópi ef Vikt-
or Unnar Illugason sem fór frá Blik-
um til Reading eftir síðasta sumar
er tekinn með. Skagamenn eiga tvo
fulltrúa en annars er ekkert lið sem
á fleiri en einn. En hví skyldu Kópa-
vogsliðin eiga svona marga fulltrúa?
„Það er mjög gott starf unn-
ið í þessum liðum. Þau eru líka að
Íslenska U17 landsliðið er að fara að keppa í lokakeppni Evr-
ópumótsins sem fram fer í Belgíu. Þetta er einn efnilegasti
hópur leikmanna sem komið hefur upp hér á landi enda er
Ísland fámennasta þjóð sem komst í þessa lokakeppni.
STOLTUR HVERNIG SEM FER
Eftirsóttur Kolbeinn Sigþórsson er eftirsóttur af stórliðum í Evrópu.
Ekki sá besti Völlurinn í Garðinum er kannski ekki upp á sitt besta en gras
engu að síður.