Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Blaðsíða 39
DV Helgarblað Föstudagur 27. apríl 2007 39 að mismuna samkynhneigðum áfram Þjóðkirkjan samþykkir Prestastefna á Húsavík felldi með yfirgnæfandi meirihluta tillögur um að þjóðkirkjuprestum væri heimilt að annast hjónavígslu samkyn-hneigðra. DV leitaði álits samkynhneigðra Íslendinga á niðurstöðum prestastefnunnar. sínum. Þetta er hrein og klár mismunun. Ég tilheyri Lauganeskirkjusöfnuði og þó svo prestarnir vildu gifta mig, þá hafa þeir ekki heimild til þess. Ég vil samt taka það fram að ég er mjög þakklát fyrir að vera Íslendingur og njóta þeirra mannréttinda sem samkynhneigðir einstakl- ingar hafa hér. Það er hins vegar ljóst að þjóðin vill leyfa samkynhneigðum að gift- ast í kirkju og Þjóðkirkjan er að vinna gegn þjóðinni.“ Þjóðkirkjan afskrifar sig sem kirkju íslensku þjóðarinnar Hanna Katrín Friðriksson framkvæmda- stjóri, er í staðfestri samvist með Ragnhildi Sverrisdóttur blaðamanni. „Það skiptir náttúru- lega máli fyrir trúað fólk að það fái að gifta sig í kirkju og þá á kynhneigð ekki að skipta nokkru máli. Þetta er spurning um jafnrétti og það skiptir máli fyrir alla einstaklinga. Ég varð fyrir vonbrigðum. Það er alveg klárt að með þessum samþykktum á nýafstaðinni prestastefnu er Þjóðkirkjan að afskrifa sig sem kirkja íslensku þjóðarinnar og þetta kallar á en frekari umræðu um aðskilnað ríkis og kirkju. Ég er hins vegar ánægð með þenn- an góða og fjölmenna hóp sem flutti þessa tillögu. Þarna fer hóp- ur margra yngri og öflugri presta Þjóð- kirkjunnar. Já, kirkjan er að mismuna börnum sínum algjörlega. Hún er ekki að standa undir nafni sem þjóðkirkja íslensku þjóðarinnar. Ekki ein- göngu var verið að fjalla um það hvort kirkjan ætti að hætta þessari mismunum heldur um framtíð hennar innan íslensku þjóðarinnar. Það er síðan spursmál hvort hjónavígslan eigi að vera í höndum trúfélaga. Þetta er verald- legur gjörningur en síðan eiga trúfélög að geta veitt blessun sína. “ Andlegt ofbeldi gegn lesbíum og hommum Margrét Pála Ólafsdóttir er framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar. Kona hennar er Lilja S. Sigurð- ardóttir. Þær staðfestu samvist 12. júlí 1996, eða strax eftir að mesta tilstandið kringum nýju lögin tóku gildi. „Trúin og trúarþörfin tilheyra innsta sálar- kjarna hvers og eins ásamt öðrum dýpstu tilfinn- ingum okkar – og ástartilfinningar allra búa þar líka hvaða nafni sem kynhneigð okkar nefnist. Þar af leiðandi er það skelfileg höfnun að Þjóð- kirkjan skuli beita lesbíur og homma því andlega ofbeldi að hafna vígslu okkar og setja tilfinningar samkynhneigðra þar með í annað og óæðra box í regluveldi sínu. Ég segi bara; guði sé lof fyrir þá presta sem virða mannhelgi og vildu opna dyrnar fyrir okkur en vona að hinir eigi eftir að skilja hví- líku sálartjóni kirkjan hefur valdið mörgum sam- kynhneigðum með neikvæðri afstöðu sinni.“ annakristine@dv.is, valgeir@dv.is, thorunn@dv.is „Mér finnst alveg sjálfsagt að farið sé með sér- stakt ritútal yfir samkynhneigðum en á sama hátt verður það að vera samkvæmt sannfæringu prestsins sem framkvæmir það. Sjálfum fyndist mér eðlilegast að ritúalið væri mjög svipað þótt það sé auðvitað ekki hægt að nota sömu orð.“ Heimir Már Pétursson „Mismunun gegn samkynhneigðum er bönnuð samkvæmt lögum.“ Margrét Pála Ólafsdóttir „trúin og trúarþörfin tilheyra innsta sálarkjarna hvers og eins.“ Sigursteinn Másson „Brýnt að þjónar kirkjunnar skynji sinn vitjunartíma.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.