Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Side 41
Starfsferill
Vilhjálmur fæddist í Reykjavík
26.4. 1946. Hann lauk prófi frá VÍ
1966, stúdentsprófi þaðan 1968 og
lögfræðiprófi frá HÍ 1974.
Vilhjálmur var framkvæmdastjóri
SUS 1971-73, skólastjóri Stjórnmála-
skóla Sjálfstæðisflokksins 1973-77,
framkvæmdastjóri fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík 1974-78,
framkvæmdastjóri SÁÁ 1978-84, er
borgarfulltrúi frá 1982, borgarráðs-
maður frá 1986, var formaður Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga 1990-
2006 og borgarstjóri Reykjavíkur frá
13.6. 2006.
Vilhjálmur var varaformaður AFS
1964-66, sat í stjórn Heimdallar, FUS
1965-67, í stjórn Vöku og var ritstjóri
Vökublaðsins 1969-70, í flokksráði
Sjálfstæðisflokksins frá 1969, í stjórn
SUS 1971-77 og var varaformaður
1973-77, í Stúdentaráði HÍ 1971-73,
í stjórn Orators og ritstjóri Úlfljóts
1972-73, var formaður skólanefnd-
ar Stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokks-
ins 1977-81, í stjórn fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík 1978-90, í
framkvæmdastjórn Sjálfstæðisflokks-
ins 1978-82, var formaður málefna-
nefndar Sjálfstæðisflokksins um sveit-
arstjórnar- og byggðamál 1992-2006,
var formaður Stúdentafélags Reykja-
víkur 1979-80, í stjórn SÁÁ frá 1984,
situr í stjórn fulltrúaráðs Sólheima og
formaður Lagnakerfamiðstöðvar Ís-
lands frá 1997.
Vilhjálmur var formaður skipu-
lagsnefndar Reykjavíkur 1982-94, var
varaformaður stjórnar Samtaka sveit-
arfélaga á höfðuborgarsvæðinu 1982-
86, sat í Heilbrigðisráði Reykjavíkur
1982-86, var varaformaður stjórnar
sjúkrastofnana í Reykjavík 1982-94,
sat í byggingarnefnd aldraðra 1986-
94, í Hafnarstjórn 1986-94 og 1998-
2006, í stjórn Sambands íslenskra
sveitarfélaga frá 1986, var formaður
Þróunarfélags Reykjavíkur 1990-95,
í stjórn Sorpeyðingar höfuðborgar-
svæðisins, Sorpu bs., 1990-1994 og
frá 2004, í stjórn Landsvirkjunar 1991-
2006, í félagsmálaráði 1994-2002, í al-
mannavarnaráði ríkisins frá 2002 og
er formaður Slökkviliðs höfuðborg-
arsvæðisins og formaður Almanna-
varnarnefndar höfuðborgarsvæðisins
frá 2006, situr í stjórn skipulagssjóðs
Reykjavíkurborgar, í stjórn Samstarfs-
sjóðs Nuuk, Reykjavíkur og Þórshafn-
ar, í fulltrúaráði hjúkrunarheimilis-
ins Eirar og Eirarhúss og er formaður
stjórnar frá 2001.
Fjölskylda
Kona Vilhjálms er Guðrún Kristj-
ánsdóttir, f. 8.6. 1948, bókasafns-
kennari við Rimaskóla. Hún er dótt-
ir Kristjáns J. Gunnarssonar, f. 29.11.
1919, fyrrverandi borgarráðsmanns
og fræðslustjóra, og konu hans Þór-
dísar Kristjánsdóttur, f. 18.9. 1918, d.
7.6. 2002, hjúkrunarkonu.
Börn Vilhjálms og Önnu J. Johnsen,
f. 13.1. 1946, kennara, eru Jóhanna, f.
7.12. 1970, dagskrárgerðarmaður hjá
Sjónvarpinu en sambýlismaður henn-
ar er Geir Sveinsson framkvæmda-
stjóri og eru dætur hennar Anna Björk
Hilmarsdóttir og Ragnheiður Katrín
Geirsdóttir; Helga Björk, f. 10.6. 1974,
flugfreyja en maður hennar er Friðrik
Þór Snæbjörnsson byggingaverkfræð-
ingur og eru börn þeirra Dagur Þór
Friðriksson og Birna Björk Friðriks-
dóttir; Baldur Þór, f. 25.4. 1976, sjóðs-
stjóri hjá Lífeyrissjóði starfsmanna
ríkisins en sambýliskona hans er Sól-
rún Sverrisdóttir sjúkraþjálfari og er
dóttir þeirra Jóhanna Björg Baldurs-
dóttir.
Systkini Vilhjálms: Svanur Þór,
f. 12.7. 1939, lögfræðingur; Hlöðver
Örn, f. 26.6. 1941, framkvæmdastjóri;
Erla, f. 2.12. 1943, kaupmaður; Við-
ar, f. 4.9. 1947, d. 8.1. 1997, verslunar-
maður; Einar Þór, f. 3.4. 1952, d. 31.10.
1993, framkvæmdastjóri.
Foreldrar Vilhjálms voru Vilhjálm-
ur Kristinn Þórðarson, f. 5.10. 1913, d.
1.12. 1988, bifreiðastjóri í Reykjavík,
og k.h., Helga Jórunn Finnbogadóttir,
f. 30.6. 1916, d. 1999, húsmóðir.
Ætt
Vilhjálmur Kristinn var sonur
Þórðar, sjómanns á Fáskrúðsfirði Vil-
hjálmssonar, útvegsbónda á Kalda-
læk Jóhannssonar. Móðir Þórðar var
Kristín Sturludóttur, bónda á Vatt-
arnesi Jónssonar. Móðir Sturlu var
Margrét Árnadóttir. Móðir Margrétar
var Guðrún, systir Margrétar, lang-
ömmu Gunnlaugs, langafa Gunn-
ars Hanssonar framkvæmdastjóra.
Móðir Kristínar var Úlfheiður, syst-
ir Björns, langafa Valdimars Björns-
sonar ráðherra. Úlfheiður var dóttir
Björns, bónda á Hallbjarnarstöðum
Ásmundssonar og Önnu, systur Guð-
rúnar, ömmu Gunnars Gunnars-
sonar rithöfundar. Anna var dóttir
Hallgríms, bónda á Stóra-Sandfelli
Ásmundssonar, bróður Indriða, afa
skáldanna og alþingismannanna Jóns
og Páls Ólafssona. Þorbjörg var dótt-
ir Þórarins Magnússonar úr Þistilfirði
og Arnbjargar Árnadóttur frá Grund-
arstekk, af Antoníusarætt.
Helga er systir Jónu, móður Krist-
bjargar Kjeld leikkonu. Helga er dóttir
Finnboga, útvegsbónda í Tjarnarkoti,
bróðir Guðmundar, afa Hauks Helga-
sonar ritstjóra. Finnbogi var son-
ur Guðmundar, bónda í Tjarnarkoti
Gíslasonar. Móðir Guðmundar var
Guðrún Jónsdóttir, bónda í Grímsfjós-
um Bjarnasonar og Guðrúnar Helga-
dóttur, bónda í Brattsholti Sigurðs-
sonar, bróður Jóns, afa Jóns forseta.
Móðir Helgu var Þorkelína, syst-
ir Margrétar, móður séra Jóns Guð-
jónssonar sem stofnaði byggðasafnið
á Akranesi. Þorkelína var dóttir Jóns í
Hópi Guðmundssonar, bróður Tóm-
asar, afa Guðlaugs Þorvaldssonar
ríkissáttasemjara og Haldóru, móður
Eiríks Jónssonar, formanns KÍ. Móð-
ir Þorkelínu var Guðrún Guðbrands-
dóttir, bónda í Vestra-Geldingalæk
Jónssonar, bónda á Gaddastöðum
Sveinssonar. Móðir Jóns var Elín
Jónsdóttir, bónda á Hvoli Eyjólfs-
sonar og Valgerðar, langömmu Jóns
Helgasonar, prófessors og skálds.
DV Ættfræði föstudagur 27. apríl 2007 41
MAÐUR VIKUNNAR
Jón Páll Sigmarsson
f. 28. apríl, 1960, d. 16. janúar 1993
Á morgun eru fjörutíu og sjö ár frá
fæðingu Jóns Páls Sigmarssonar afl-
raunamanns. Jón Páll fæddist á Sól-
vangi í Hafnarfirði, sonur Sigmars
Jónssonar og Dóru Jónsdóttur. For-
eldrar hans höfðu slitið samvistum
er hann kom í heiminn og tveimur
árum síðar flutti hann með móður
sinni og fósturföður vestur í Stykk-
ishólm. Á bernskuárunum var Jón
Páll áhugasamur um ýmsar íþrótta-
greinar, æfði glímu í Stykkishólmi frá
fimm ára aldri og þótti kappsfullur
með afbrigðum.
Jón Páll dvaldi á sumrin í Skáleyj-
um hjá foreldrum Sveins Guðmunds-
sonar, fósturföður síns. Þar fékk hann
heldur betur að reyna kraftana og
dafnaði vel á blóðgraut, lýsi, hráum
eggjum, selshreifum og öðru því góð-
gæti sem sótt hefur verið í matark-
istuna við Breiðafjörð um aldaraðir.
Þarna bjó Jón Páll við gott atlæti en
kynntist jafnframt mikilli líkamlegri
vinnu, veiðum og þeim hefðbundnu
bústörfum sem þarna voru stunduð.
Árið 1969 flutti Jón Páll með fjöl-
skyldu sinni suður til Reykjavíkur en
þar hófst hans skipulegi íþróttafer-
ill. Hann æfði meðal annars karate
en segja má að hann hafi fundið sinn
farveg þegar hann sá auglýst lyftinga-
námskeið í sænska frystihúsinu árið
1975.
Jón Páll vann til fjölda gull- og silf-
urverðlauna í lyftingum á Íslandi og
á Norðurlandamótum og sló með-
al annars Evrópumetið í réttstöðu-
lyftu er hann lyfti 362,5 kg. En það
var þó í aflraunum sem hann náði
óumdeilanlega bestum árangri – þar
varð hann bestur í heimi. Hann vann
titilinn Sterkasti maður heims’ árin
1984, 1986, 1988 og 1990. Á þessum
árum varð Jón Páll fyrirmynd ungra
drengja hér á landi og víða um heim,
með því að sameina ný viðhorf um
heilsurækt og hina fornu aðdáun á
víkingaköppum og aflraunamönn-
um.
Jón Páll var vel liðinn og frábær
fulltrúi þjóðar sinnar hvar sem hann
keppti á alþjóðlegum mótum, enda
gamansamur, einlægur og hlýleg-
ur í framkomu. Fleyg varð setning-
in sem hann sagði í miðri réttstöðu-
lyftu: ,,Þetta er ekkert mál fyrir Jón
Pál.’’ Nýlega var frumsýnd um hann
heimildarmyndin: Þetta er ekkert
mál. Jón Páll lést langt fyrir aldur
fram 1993.
MeRKIR ÍsleNdINgAR:
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
borgarstjóri
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
borgarstjóri og stjórnarfor-
maður Slökkviliðs höfuðbog-
arsvæðisins stóð vaktina þegar
slökkviliðsmenn börðust við
eldinn á horni Austurstrætis og
Lækjargötu á síðasta vetrar-
dag. Hann lét þá hafa það eftir
sér að þarna væru að brenna
menningarverðmæti sem eft-
irsjá væri í og að vel kæmi til
álita að byggja þessi hús upp í
fyrri mynd.