Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Qupperneq 56

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Qupperneq 56
Volta lak á netið Nýjasta plata Bjarkar, Volta, lak út á iTunes í Bretlandi fyrr í vikunni en platan á ekki að koma út fyrr en áttunda maí næstkomandi. Í fyrstu var talið að hér væri einungis um eftirlíkingu af plötunni að ræða en nú hefur verið staðfest að platan sem lak út sé upprunalega útgáfan af Volta. Þrátt fyrir að platan hafi einungis verið fáanleg í nokkra klukkutíma, hún lak á netið seint á mánudagskvöldi og var tekin út aftur snemma á þriðjudagsmorgni, er það nóg til þess að nokkuð margir óprúttnir einstakl- ingar hafa hana nú í höndunum og hafa verið að leka henni á aðrar síður. Hjálp við textaleit Leitarvélin Yahoo! hefur nú tekið höndum saman við fyrirtækið Gracenote og hyggst bjóða upp á nýja þjónustu við leit á tónlistartext- um. Boðið er upp á hundruð þúsunda texta og er hægt að nálgast texta við lög frá hundrað helstu útgefendum heims í gagnagrunninum. Leitin að tónlistartextum er oftast í tíu efstu sætunum yfir orð sem leitað er eftir á Yahoo! og lofa fyrirtækin að upplýsingarnar um textana verði hundrað prósent réttar. „Ein versta afskræming á klassískum texta var þegar ég heyrði mann syngja The ants, my friend, are in a bowling pin, við lag Bobs Dylan The answers my friend are blowing in the wind,“ segir Ian Rogers hjá Yahoo! Music. Það er vonandi að nýja textaleitin komi í veg fyrir allan slíkan misskilning í framtíðinni. fösTuDaGuR 27. apRÍL 200756 Helgarblað DV TónlisT „Við erum í mörgu, gefum meðal annars út Sjónvarpsvísi Suðurlands, en svo eru það stórtónleikar með Toto þann 10. júlí í Laugardalshöll,“ segir Björgvin Þór Rúnarsson, einn forkólfa fyrirtækisins 2B Company. Fyrirtækið hefur staðið á bakvið fjöld- ann allan af atburðum sem haldnir hafa verið hér á Íslandi undanfarið, meðal annars þegar Harlem Globet- rotters léku á alls oddi í Laugardals- höll, sem og fjöllistahópurinn Xtreme Team. Björgvin segir að það sé ekki á færi allra að fóta sig í óstöðugum geira tónleikahaldsins, en allt sé hægt ef menn vandi sig nógu mikið. „Það er eins með útgáfu og tónleikahald, það þarf bæði að vanda val á listamönn- um og öll vinnubrögð.“ Stórtónleika- hald virðist vera á undanhaldi á Ís- landi, ef marka má þann aragrúa af tónlistarmönnum sem spilaði á land- inu árið 2005. Segir Björgvin að menn hafi farið fram úr sér það árið og að það sé enn að bitna á þeim. „Menn fóru einfaldlega offari þá. Núna eru menn að vanda sig meira og koma inn með stærri og betri bönd í stað þess að flytja bara inn hvað sem er. Svo er íslenski markaðurinn auðvitað lítill og erfiður.“ Stærsta verkefni 2B til þessa verða stórtónleikar með banda- rísku sveitinni Toto í Laugardalshöll í sumar. „Við sáum þá í Amsterdam og þeir eru alveg magnaðir, líklega ein- ir bestu tónleikar sem ég hef farið á,“ segir Björgvin. Varðandi næsta verk- efni eftir Toto-tónleikana vill Björgvin lítið segja, en segir þó: „Það verður eitthvað stærra í haust, en við segjum bara ekki frá því strax, ekki fyrr en öll smáatriði eru komin á hreint.“ Feist með nýja plötu Kanadíska söngkonan Leslie feist er að gefa út sína aðra plötu sem ber nafnið The Reminder. fyrir tveimur árum gaf hún út plötuna Let It Die en á henni mátti heyra frumsamið ljúfleikapopp í bland við koverútgáfur af lögum á borð við Inside and Out sem Bee Gees gerði frægt á sínum tíma. feist segist hafa viljað prófa nýjar aðferðir við gerð The Reminder og meðal annars sleppt því að nota heyrnartól við upptökurnar og einnig prófað aðferð sem felur í sér að allir syngi samtímis í einn og sama hljóðnemann. auk þess að vera á fullu í sólóferlinum syngur feist líka með hljómsveitinni Broken social scene. Tónlistarakademía DV segir Hlustaðu á þessa! pieces of The people We Know með The Rapture Through Down Your arms með sinéad O‘Connor Tears for affairs með Camera Obscura The Reminder með feist Northern star með Groove armada Viðburða- og útgáfufyrirtækið 2B lætur til sín taka í sumar: Toto á leiðinni og eitthvað ennþá stærra í haust Rás 2 hefur að undanförnu staðið fyrir tónleikaferðalaginu Plokkað hringinn þar sem Ólöf Arnalds, Pétur Ben og Lay Low hafa flakkað um landið og plokkað gítarstrengina fyrir tónlistaraðdáendur á landsbyggðinni. Ferðalaginu lýkur í kvöld með tónleikum á Nasa við Austurvöll. Blaðamaður náði tali af útvarpsmanninum Óla Palla á Rás 2 sem stendur fyrir tónleikunum. „Þetta er bara búið að ganga alveg glimrandi vel. Við Ásgeir ferðumst með sveitunum og erum í rauninni allt í öllu með þeim, við tökum að okkur að selja miða á tónleikana og vera rótarar og burðardýr,“ segir Ól- afur Páll Gunnarsson, betur þekkt- ur sem Óli Palli, sem heldur utan um skipulagninguna ásamt Ásgeiri Ey- þórssyni fyrir hnd Rásar 2. Óli Palli segir hugmyndina að slíkum tónleikum hafa kviknað fyrir tíu árum. „Ég og Magnús Einarsson samstarfsmaður minn ræddum um að halda tónleika að vori til og ferð- ast hringinn í kringum landið með völdum hljómsveitum. Það er bara oft sem góðar hugmyndir eru lengi að komast í framkvæmd.“ Það var svo í fyrra sem Ásgeir Ey- þórsson, félagi Óla Palla, kom til hans með hugmynd að samstarfi. „Við steyptum þá saman þessari tíu ára gömlu hugmynd, fengum nokkrar vel valdar hljómsveitir með okkur og rokkuðum hringinn.“ Nauðsynlegt að fá styrki Óli segir nauðsynlegt að fá styrki til að svona lagað gangi upp. „Það voru 66° Norður og Coca-cola sem styrktu okkur í ár,“ segir Óli Palli. „Með því að halda svona tónleika erum við að gera tónlistarmönnum kleift að komast út á land og halda tónleika annars staðar en bara í Reykjavík. Við borgum gist- ingu og ferðalög fyrir tónlistarfólk- ið en svo fær það sjálft allan ágóða af tónleikunum,“ segir Óli Palli og bætir við: „Þetta er að sjálfsögðu líka frábært fyrir fólkið sem býr á landsbyggðinni þar sem það fær tækifæri til að sjá nokkrar af helstu tónlistarmönnum sinnar kynslóðar fyrir lítinn pening og þarf ekki að ferðast alla leið til Reykja- víkur á tónleika.“ Pétur Ben spilaði á náttbuxunum Þó var reyndar eitt leiðindaatvik sem kom upp eftir tónleikana á Græna hattinum á Akureyri. „Þetta var á öðr- um degi sumars og eins og við er að búast á Íslandi var slabb og snjór svo Pétur greyið rann til og ökklabrotn- aði,“ segir Óli Palli en bætir því við að Pétur hafi ekki látið þetta stöðva sig. „Hann sat bara í náttbuxunum sínum á næstu tónleikum sem haldnir voru í Hrísey fyrir troðfullu húsi.“ Á nánast öllum tónleikunum var gestahljóm- sveit sem spilaði með þríeykinu og segir Óli það hafa verið misjafnt hvort gestasveitin hitaði upp fyrir tónleik- ana eða endaði þá. „Í kvöld verður það svo reykvíska hljómsveitin Hjaltalín sem verður gestasveitin á tónleikun- um,“ segir Óli Palli að lokum, stoltur af því að tíu ára gömul hugmynd hafi orðið að veruleika. krista@dv.is Tíu ára gömul hugmynd að veruleika Ólafur Páll Gunnarsson Útvarpsmaðurinn á Rás 2 heldur utan um tónleikaferðina plokkað hringinn. Pétur Ben Kemur fram á tónleikunum á Nasa í kvöld. Björgvin Þór Gíslason ásamt Birgi Nielsen Björgvin segir að það þurfi mikla útsjónarsemi til þess að fóta sig í tónleikahaldi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.