Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2007, Qupperneq 59
Dónalegur
Hugh Grant
Leikarinn Hugh Grant hefur
verið kærður af breskum papar-
azzi-ljósmyndara fyrir líkamsár-
ás og ærumeiðingar. Atvikið átti
sér stað á þriðjudagsmorgun,
fyrir utan íbúð leikarans, þar sem
ljósmyndarinn ætlaði sér að ná
nokkrum góðum myndum. Hugh
henti þá í hann dós af bökuðum
baunum, sparkaði svo í hann
og sagðist vona að börn hans
myndu látast úr krabbameini.
„Ég bað hann bara að brosa fyrir
myndavélina og þá tók hann upp
á því að elta mig, sparkaði svo
nokkrum sinnum í mig og þrykkti
hnénu í klofið á mér og sagði
svo þessa ljótu hluti við mig,“
segir ljósmyndarinn. Talsmaður
lögreglunnar í London segir að
vissulega hafi borist kæra, en að
enginn hafi enn verið handtek-
inn.
Íslenska töluð
í Pathfinder
Víkingamyndin �athfinder
er frumsýnd um helgina en hún
fjallar um átök víkinga og frum-
byggja í Ameríku. Gaman er
frá því að segja að víkingarnir í
myndinni tala íslensku. Það er
leikarinn Calncy Brown sem fer
með stærstu rulluna í víkinga-
hópnum og lærði hann að segja
nokkrar setningar á íslensku
sérstakelga fyrir hlutverkið.
„Brown hljómaði eins og hann
væri fæddur á Íslandi, en það var
honum mjög erfitt að læra tungu-
málið, það er flókið og erfitt að
tileinka sér það,“ segir Karl Urban
aðalleikari kvikmyndarinnar. Alltaf fyndinn Ferrell hefur leikið mörg ógleymanleg hlutverk. Óborganlegur Heder skaust upp á stjörnuhimininn sem Napoleon Dynamite.
Will Ferrell
John William Ferrell er fæddur 16. júlí 1967 í Kaliforníu og er sonur Lee Fer-
rell sem var hljómborðsleikari í hljómsveitinni The Righteous Brothers. Ferrell
er giftur sænsku leikkonunni Viveca �aulin sem hann kynntist á leiklistarnám-
skeiði 1995 og eiga þau tvo syni.
Ferrell vakti fyrst athygli sem grínmeistari mikill þegar hann varð fastaleik-
ari í Saturday Night Live. Ferrell sló hins vegar fyrst í gegn í myndinni A Night
at the Roxbury sem náði óvæntum vinsældum. Á meðan Ferrell var í SNL lék
hann meðal annars ógleymanleg hlutverk í myndunum Superstar, The Ladies
Man og Zoolander. Ferrell sagði svo skilið við þáttinn eftir sjö farsæl ár og snéri
sér alfarið að kvikmyndaleik.
Það var þá sem ferill hans tókst virkilega á flug og Ferrell lék í hverri snilldar-
myndinni á fætur annarri. Fyrst var það Old School árið 2003 sem er af mörg-
um talin með betri grínmyndum allra tíma. Síðan komu myndir eins og Elf og
Anchorman þar sem Ferrell hreinlega gat ekki hætt að vera einum of fyndinn.
Síðan þá hefur Ferrell verið gríðarlega duglegur og hefur fyrir löngu fest sig
í sessi sem einn allra besti grínleikari samtímans. Nú er hann mættur aftur til
leiks í myndinni Blades Of Glory og er hann í sínu besta formi þar.
Jon Heder
Jonathan Joseph Heder er fæddur 26. október 1977 í Colorado og á sex
systkini og þar af tvíburabróðurinn �aniel. Heder hefur verið giftur Kirsten
Heder frá 2002 og eiga þau vona á stúlkubarni. Billy Bob Thornton sem lék
með Heder í myndinni School for Scoundrels lýsti Heder sem „viðkunnaleg-
um ungum mormóna frá Oregon,“ en Heder fékk mjög trúarlegt uppeldi.
Heder fór í Brigham Young-háskólann á sínum tíma þar sem hann kynnt-
ist leikstjóranum Jared Hess sem leikstýrði Napoleon �ynamite. Heder lék
í myndinni hans �eluca áður en þeir gerðu Napoleon �ynamite en báðar
myndirnar eru byggðar upp á sömu persónu. Napoleon �ynamite hefur þén-
að hvað mest þeirra mynda sem sýndar hafa verið á Sundance-kvikmyndahá-
tíðinni og sló ótrúlega í gegn um allan heim.
Síðan þá hefur ferill Heder bara verið upp á við. Auk þess að hafa leikið á
móti Billy Bob í School for Scoundrels, lék hann einnig í myndinni The Bench-
warmers ásamt Rob Schneider og �avid Spade. Heder gerir fína hluti í mynd-
inni Blades of Glory og vegur vel upp á móti Ferrell. Þá er Heder væntanlegur
í myndunum Moving McAllister og Mama‘s Boy á árinu sem og teiknimynd-
inni Surf‘s up.
Will Ferrell Hefur löngu sannað sig sem einn besti grínleikarinn í bransanum Jon Heder Er ferskur blær í grínheiminum
Þeir Will Ferrell og Jon Heder leika í myndinni Blades Of Glory sem er frumsýnd um
helgina. Ferrell er virkasti og einn vinsælasti grínleikarinn í dag. Jon Heder hefur
komið ferskur inn eftir að hafa slegið í gegn í myndinni Napoleon Dynamite.
Konungur og prins grínsins
MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á
MIÐASALA Í BORGARBÍÓ Á
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
ALLS EKKI FYRIR
VIÐKVÆMA! STRANGLEGA
BÖNNUÐ INNAN 18 ÁRA
NEXT kl. 8 og 10 B.I. 14 ÁRA
SHOOTER kl. 8 og 10.15 B.I. 16 ÁRA
PERFECT STRANGER kl. 6 B.I. 16 ÁRA
ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 6
PATHFINDER kl. 8 og 10.15 B.I. 16 ÁRA
INLAND EMPIRE kl. 6 og 9 B.I. 16 ÁRA
HILLS HAVE EYES 2 kl. 8 og 10 B.I. 18 ÁRA
PERFECT STRANGER kl. 8 og 10. 30 B.I. 16 ÁRA
THE SCIENCE OF SLEEP kl. 6 B.I. 7 ÁRA
ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 6
TMNT kl. 6 B.I. 7 ÁRA
NEXT kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 14 ÁRA
NEXT SÝND Í LÚXUS kl. 5.45, 8 og 10.15
PATHFINDER kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 16 ÁRA
HILLS HAVE EYES 2 kl. 8 og 10.10 B.I. 18 ÁRA
PERFECT STRANGER kl. 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA
SUNSHINE kl. 5.50 B.I. 16 ÁRA
ÚTI ER ÆVINTÝRI ÍSLENSKT TAL kl. 3.45
TMNT kl. 4 og 6 B.I. 7 ÁRA !óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu