Læknablaðið - 15.01.1984, Side 9
LÆKNABLADID
5
INNGANGUR
Um skráningu á fylgikvillum
lyfjameðferðar
Frá ársbyrjun 1974 hafa lyfjaofnæmi og ýmsir
aðrir fylgikvillar lyfjameðferðar verið skráðir
hjá þeim sjúklingum, sem hafa verið vistaðir á
lyflækningadeild Sjúkrahúss Akraness. Skrán-
ingin hefir ekki eingöngu verið bundin við
aukaverkanir lyfja í þrengri merkingu þess
orðs, því aðrar óæskilegar afleiðingar lyfja-
gjafa, sem falla undir neðanskráð skilyrði hafa
einnig verið teknar með t.d. ofverkun (sbr.
daonil síða 10). Hér á eftir verður greint frá
niðurstöðum skráningarinnar fyrstu 6 árin, þ.e.
1974 til 1979.
Tilgangur skráningarinnar er einkum:
Að koma í veg fyrir að sjúklingar okkar fái
aftur þau lyf, sem geta verið þeim var-
hugaverð.
Að afla uþþlýsinga um meiri háttar aukverk-
anir lyfja í venjulegum skömmtum og tíðni
þeirra, en uþþlýsingasöfnun af þessu tagi
er skammt á veg komin hérlendis.
Að þjálfa starfsfólk deildarinnar í að greina
aukaverkanir lyfja.
Til þess að ná því marki, sem getið er um í
fyrsta lið, eru lyf þau, sem hafa valdið auka-
verkun, skráð í sérstakan reit á hitablöð og
sjúkraskrárkáþur sjúklinganna, svo og á
lyfjakort (1, 2), sem þeir fá við útskrift og
eiga að sýna hverjum þeim lækni, sem þeir leita
til. Upplýsingar um þessar aukaverkanir
eru einnig skráðar í læknabréf.
Skilyrdipess ad aukaverkun lyfs falli inn í
skráninguna eru:
Að sterkar líkur séu, að okkar mati, á orsaka-
sambandi á milli lyfjagjafar og aukaverk-
unar og
að læknir hafi ákveðið lyfjaskammta og ekki
sé til þess vitað,
að stærri skammtar hafi verið notaðir.
Auk þess þarf eitthvert eftirtalinna skilyrða
vera uppfyllt:
Að aukaverkunin hafi stefnt sjúklingi í hættu
eða valdið verulegum sjúkdómseinkenn-
um.
Að varhugavert eða hættulegt geti verið að
gefa sama sjúklingi lyfið aftur.
Að aukaverkunin hafi leitt til þess, að sjúkl-
ingurinn var lagður inn á deildina.
Að aukaverkunin sé, að okkar mati, athygl-
isverð af öðrum ástæðum, svo sem þeg-
ar ný lyf eiga í hlut.
Þetta er ekki tæmandi skráning á aukaverk-
unum lyfja. Sleppt er mörgum minni háttar
aukaverkunum og einnig afleiðingum of stórra
lyfjaskammta, sem læknir hefur ekki ráðlagt.
Ekki er aukaverkun ætíð skráð, þótt lyfjameð-
ferð hafi verið hætt hennar vegna og ekki
heldur þótt hún hafi krafist sérstakrar með-
ferðar t.d. hypokalemia, en af henni eru
nær eingöngu skráð þau tilfelli, sem ollu klínísk-
um einkennum.
Skráning á ofnæmissvörunum í húð, á þó að
vera tæmandi og hafi verið greind útbrot,
kláði eða hiti af lyfjum, hefur það verið skráð.
Skráðar voru þær aukaverkanir, sem komu
fyrir á deildinni og einnig þær, sem nægilega
glöggar upplýsingar fengust um úr sjúkrasögu.
AÐFERÐIR
\/ð greiningu aukaverkana er beitt sömu
aðferðum og notaðar eru við sjúkdómsgrein-
ingu á deildinni. f>ar vega þyngst saga sjúk-
lings, klínísk skoðun og eftirlit, en þessi atriði
eru í höndum lækna og hjúkrunarliðs. Einnig
hafa ýmsar rannsóknir, einkum í meinefna- og
blóðmeinafræði, oft leitt til greiningar á auka-
verkunum.
Einstaka sinnum hafa upplýsingar úr spjald-
skrám heimilislækna og úr læknabréfum frá
öðrum sjúkrahúsum komið að gagni. Pær
aukaverkanir, sem læknar deildarinnar telja
að uppfylli sett skilyrði, færa þeir síðan á eyðu-
blöð, sem til þess eru gerð, og fylgir eitt eintak
sjúkraskrá, en annað fer til úrvinnslu.
Eyðublað þetta var gert hér á sjúkrahúsinu í
lok árs 1973 og höfð hliðsjón af erlendum
eyðublöðum. Þetta blað er nánast eins og
eyðublaðið, sem landlæknir sendi læknum
árið 1980 til að skrá á alvarlegar aukaverk-
anir lyfja.
SJÚKLINGAR
Efniviður þessarar skráningar eru þeir sjúkling-
ar, sem vistuðust á lyflækningadeild Sjúkra-
húss Akraness árin 1974 til 1979 að báðum
meðtöldum. Á sjúkrahúsinu eru 96 legurúm, 30
á lyflækningadeild, 31 á hjúkrunardeild, 19 á
skurðlækningadeild og 16 á kvensjúkdóma- og
fæðingadeild. Frá upphafi skráningar til 1.
febrúar 1977, eða í alls 37 mánuði var 31 rúm á
lyflækningadeild, en þá var opnuð ný deild