Læknablaðið - 15.01.1984, Page 43
LÆKNABLADIÐ
31
sem að henni berast, mismikla þó. Ef réttur
skriðvökvi er valinn, skiljast efnin að á súlunni,
þ.e. efni sem berast inn á hana samtímis berast
út á mismunandi tímum (sjá mynd). Pannig má
fá fram vissa hreinsun á sýninu og mæla þau
efni, sem áhugi er fyrir þegar þau koma af
súlunni. Dæla er notuð til að koma vökvanum
á jöfnum og réttum hraða gegnum súluna.
Þegar efnin koma út af henni (uppleyst í
skriðvökvanum), fara þau gegnum nemann þar
sem magn þeirra er mælt. Neminn er oftast
U.V.-ljósmælir, en við katekólamín mælingar
er best að nota rafeindanema. Hann er gerður
úr þremur rafskautum og er viss spenna á milli
þeirra. Efni, sem oxast af völdum þessarar
spennu, er hægt að magngreina, því við
oxunina hleypur straumur milli rafskauta, sem
er í réttu hlutfalli við styrk efnisins. Þessi
straumur er magnaður upp og sendur til
skrifara, sem gefur frá sér toppa, samanber
myndina. Flatarmál þeirra og hæð er í réttu
hlutfalli við styrk viðkomandi efnis í sýninu.
Chromatogram of a urine sample from a healthy
subject. I. Noradrenaline, 2. Adrenaline, 3. Internal
standard, 4. Dopamine.
Mæliaðferðir
Katekólamín mælingin er framkvæmd sam-
kvæmt lýsingu Riggin og Kissinger (8) með
þeim breytingum, sem lýst hefur verið af
Bioanalytical Systems (15). í þessari aðferð er
þvagsýnið fyrst hreinsað á jónskiptasúlu og
síðan með sýruþvegnu áloxíði (AAO) áður en
því er sprautað inn í LCED tækið. f>ar greinast
katekólamínin sundur á súlunni og mælast í
nemanum, sem aðeins greinir efni, er oxast
auðveldlega. Þessi fjögur þrep hvert fyrir sig
minnka líkurnar á að önnur efni valdi skekkju í
mælingunni. Aðferðin er því mjög sértæk fyrir
utan það vera næm. Kreatínín var mælt í
SMA 6/60 með afbrigði af Jaffe-aðferð (16).
Tæki
Catecholamin Analyser frá Bioanalytical Sy-
stems (BAS) samanstendur af: M-45 Solvent
Delivery System frá Waters Ass., LC-22 Tem-
perature Controler og LC-4A Amperometric
Detector frá BAS, OmniScribe B-15000 skrif-
ara frá Houston Instrument, Rheodyne Injec-
tor model 7125 og Biophase ODS súlu frá
BAS. SMA 6/60 er frá Technicon.
Söfnun sýna
Þvagsýnum var safnað í aprílmánuði. Starfs-
fólk Landspítalans og valdir sjúklingar af
bæklunar- og lýtalækningadeildum á aldrinum
16-74 ára, 13 konur (23-65 ára) og 12 karlar
(16-74 ára), tóku þátt í könnuninni. Sjúklingar
þessir voru inni vegna valdra (selective) að-
gerða. Þeir höfðu ekki kerfissjúkdóma né
notuðu lyf. í ílátin voru settir 50 ml af 2N HCl
fyrir sólarhringssöfnun. í 50 ml af þvagi úr
söfnunaríláti var sett EDTA lausn og thiogly-
colsýru til að hindra oxun katekólamína.
Morgunþvagi var safnað hjá 10 manns úr
þessum hópi og þau varin á sama hátt. Sýnin
voru síðan fryst og geymd uns mæling fór
fram tveim til tíu dögum eftir töku. Katekóla-
míngildi haldast stöðug í sýnunum a.m.k. 2
mánuði, ef þau eru geymd fryst (11, 17).
NIÐURSTÖÐUR
Tafla I sýnir markvísi (precision) aðferðarinn-
ar, en við höfum mælt sama sýnið sex sinnum í
sömu lotu og sex sinnum í mismunandi lotum,
til þess að kanna markvísi innan (intra) og milli
(inter) lota. Tafla II sýnir endurheimtur efnis-
magns, sem bætt hefur verið í sýnin og gefur
til kynna nákvæmni (accuracy) aðferðarinnar.