Læknablaðið - 15.02.1984, Blaðsíða 17
LÆKNABLADID
61
Tafla IX. Medferd 380 brota á kjálka.
»Opin Festing
og með
»Lokuð« »Opin« lokuð« gervi- Engin
tenging tenging tenging góm aðgerð
Proc.
condylaris 97 — — 3 24
Proc.
coronoideus 3 — — — 3
Ramus ............ 8 — — I 4
Angulus....... 38 14 15 3 7
Corpus........... 42 26 24 7 8
Symphysis .... 33 5 6 1 2
Proc.
alveolaris ... 6 — — — —
Samtals ...... 227 45 45 15 48
Hundradshlutar 60 % 12 % 12 % 4 % 12 %
brotum á kjálkaliðssvæðinu. Ein hæsta tíðni
brota á condylus mandibulae sem um getur er
frá Nijmegen í Hollandi, 47 %, og er skýringin
sögð tengjast miklum fjölda slysa á fólki, sem
ekur mótorhjólum (9). Hins vegar valda slags-
mál fleiri brotum á angulus og corpus mandi-
bulae. Slík brot eru og algengari hér á landi en
meðal pjóða, par sem umferð er meiri. Enn-
fremur hefur pað sín áhrif, að hér á landi eru
tannlausir allstór hluti slasaðra, eða 19%, en
til dæmis 10% í Finnlandi (3). Hjá tannlausu
fólki brotna corpus-svæðin frekar vegna bein-
rýrnunar en önnur svæði kjálkans. Enda er
tíðni brota á corpus mandibulae meiri hér en
sést annars staðar ef gerður er samanburður
við rannsóknir Lambergs (3), Rowe og Killey
(5) og van Hoof og fleiri (9) og borið saman
allt svæðið frá miðlínu til fremri marka angu-
lus.
Tíðni brota á processus condylaris er lang-
mest hjá ungu fólki og fer minnkandi með
aldrinum, og eftir prítugsaldur eru brot á
corpus tíðari. Fall hjá yngstu hópunum veldur
umtalsverðum fjölda brota á processus condy-
laris, síðan barsmíðar frá 16 ára aldri til 25 ára
aldurs. Eftir pað eru brot á corpus og angulus
hlutfallslega tíðari eftir slagsmál. Auk pess
hefur komið í ljós í yfirstandandi rannsókn, að
kinnbeins- og nefbrotum fjölgar mjög af
völdum slagsmála hjá fólki, sem komið er yfir
tvítugsaldur.
Brot á svæði symphysis mandibulae voru
hlutfallslega færri en í öðrum könnunum af
peirri ástæðu, að fjöldi tannlausra, sem brotn-
aði á kjálka, var verulegur. Symphysis mandi-
bulae er pað svæði kjálkans, sem í tannlausu
ástandi veitir höggum hvað mesta mótstöðu.
Undanfarna áratugi hafa algengustu sam-
setningar brota beggja vegna á kjálka verið
angulus/corpus (13), angulus/condylus á (14)
og symphysis/báðir condylar (5). Hér á landi
er dreifing á samtíma brotum svipuð og í
Finnlandi (3), p.e. corpus/condylus og condy-
lus/condylus.
Af öllum sjúklingunum voru 52 % marg-
brotnir á neðri kjálka. Þessi hundraðstala er sú
sama og gefin er upp frá Massachussets
General Hospital í Boston eftir skoðun á 327
kjálkabrotum (15), en hins vegar lægri en
hlutfallstala margbrotinna í Finnlandi (3). Með
tilliti til pess, að hér á landi verða einungis
23 % kjálkabrota eftir umferðarslys, verður að
skoða pessa tölu háa. Mölbrot voru hins vegar
sjaldgæf, 2 %, og urðu öll eftir umferðarslys.
Brot á svæði angulus mandibulae voru
helmingi tíðari í einbrotnum kjálkum en marg-
brotnum. Að svipaðri niðurstöðu komast Lam-
berg (3) og Rowe og Killey (5). Brot á ramus
og symphysis voru hins vegar miklu tíðari í
margbrotnum kjálkum, sem styður pá kenn-
ingu, að pví framar sem högg kemur á kjálka,
og veldur broti par, pví meiri líkindi eru til
pess, að óbeint brot finnist á aftari svæðum.
Brot á processus coronoideus sáust aldrei
ein og sér. í öllum tilfellum var um að ræða
brot á einhverju öðru svæði kjálkans eða
kinnbeinsbrot. Þessar niðurstöður eru sam-
hljóða öðrum pess efnis, að næsta útilokað sé
að sjá einstök brot á processus coronoideus,
og að alltaf purfi mjög pung högg til pess að
brjóta svæðið vegna staðsetningar, styrkleika
og vöðvafestinga (16).
Niðurstöðum um ástand brota og meðferð
svipar að flestu leyti til annarra sambærilegra
rannsókna. Hér eins og annars staðar mátti sjá
ákveðna tilhneigingu til pess að brot væru
meðhöndluð á ákveðinn hátt eftir pví hver
verkið vann. Að samanlögðu var í 24 % tilfella
gert að brotum með opinni skurðaðgerð, og í
helmingi peirra tilfella var einnig notast við
samtengingu kjálkanna beggja. í fræðiritum er
algengast að sjá hlutfallstölur kringum 8-10 %
yfir fjölda opinna skurðaðgerða til meðhöndl-
unar á brotum kjálkans, en pó allt upp í 38 %
(4). Meira en helmingur brota á corpus og
angulus svæðum var meðhöndlaður með op-
inni aðgerð og er ástæðu pess að leita til peirr-
ar staðreyndar, hve stór hluti sjúklinga okkar
var tannlaus. Ekkert brot á processus condyla-