Læknablaðið - 15.02.1984, Blaðsíða 26
66
LÆKNABLADID
sérhæfð í næringarvandamálum (nutritional
rehabilitation) er til staðar. Tilraun með n.k.
eldhús á heilsugæslustöðvunum, ætlað fyrir
vannærð börn, hefur gengið illa. Þessi van-
nærðu börn fá pví oftast heim til sín hveiti-
soya- mjólkurduftið (CSM), sem dreift er af
Sameinuðu pjóðunum. Einnig fær móðirin hrís-
grjón, matarolíu og sykur. Par sem iðulega er
skortur á pessum nauðsynjavörum brennur oft
við að allir í fjölskyldunni, að afríkönskum sið,
njóti þessarar fæðugjafar. Pví gagnast hjálpin
stundum sáralítið peim sem hennar parfnast.
Annað vandamál með svona fæðugjöf er, að
löndin sem hennar njóta verða æ meir háð
matarinnflutningi á sama tíma og hefðbundnar
afurðir landsins eru hundsaðar. Pví er fæðu-
hjálpin í núverandi mynd víða gagnrýnd.
AÐRIR SJÚKDÓMAR
Eyrnabólgur eru sjúkdómur sem flestum hér-
lendum virðist vera hulin ráðgáta. Er nánast
ætíð gripið of seint inn með sýklalyfjum, enda
eyrnaskoðunartæki töfragripur í augum
flestra. Pví gengur hér um ótrúlegur fjöldi
barna með króniskan gröft í eyrunum, og fá
þau litla hjálp á HNE-deild 3. ágúst sjúkrahúss-
ins. Er ekki að undra að sumum liggur hátt
rómur.
Kíghóstinn er einn barnasjúkdómanna, sem
mjög algengt er að sjá hjá börnum. Leikur
pessi langdregni sjúkdómur (kínverjar kalla
hann 100 daga hósta) börnin oft illa. Þau
nærast illa meðan sjúkdómurinn herjar og er
hættara við alls konar öðrum sjúkdómum.
Afleiðingar mænuveiki eru áberandi á göt-
um úti. Er lærdómsríkt að leita uppi í hverfum
Bissau fötluð börn, flest vegna mænuveik-
innar. Er peim vísað á hollenskan sjúkrapjálf-
ara, sem útbýr ódýrar spelkur og hækjur og set-
ur upp æfingarskema.
Barnaveikin er enn einn barnasjúkdómurinn
sem rekast má á í Bissau, en tilfellin virðast pó
fá.
Meltingarfærapöddur eru mjög algengar,
enda börnin mikið berfætt og vatnssalerni
aðeins að finna hjá peim efnameiri í samfélag-
inu.
RANNSÓKNIR
Að rannsaka nánar ákveðinn sjúkdóm er oft
erfiðleikum háð. Á sumum heilsugæslustöðv-
anna eru litlar rannsóknarstofur. Þar er hægt
að kanna hemóglóbín (Sahli aðferðin), hvít
blóðkorn, sökk, pvag, saur og pykkdropa
(malaría, filariasis). Gæðin eru yfirleitt lítil og
stundum alls ekki að treysta niðurstöðunum.
Ástandið á sjúkrahúsunum er lítið skárra og
í sumum tilfellum verra pó úrval rannsókna sé
nokkuð gott. Pað parf að panta tíma og
niðurstöður koma oft eftir langa bið. Hér er
það meinatæknirinn sem ákveður hvað er
áríðandi (p.e. næsta dag) og hvað ekki.
Annað vandamál er, að ekki er víst að
móðirin sé ánægð með að gera einhverja
blóðrannsókn. Því fer hún stundum ekki með
barnið í blóðrannsóknina. Petta getur líka
snúist við: Ef beðið er t.d. um saurathugun pá
segja sögusagnir að hún fari stundum með
saur af einhverjum öðrum fjölskyldumeðlim.
Henni finnst svo leiðinlegt að koma með lítinn
barnssaur, að ég tala nú ekki um ef barnið
kúkar ekki á þeim tíma sem rannsóknarstofan
tekur á móti saur til athugunar.
Ef sjúkdómsgreiningin berklar kemur í hug-
ann vandast málið. Þar sem hráki kemur ekki
svo gjarnan frá börnum er bagalegt að maga-
skolun barna í leit að berklabakteríunni skuli
ekki framkvæmd. Röntgentæknin er léieg og
tækin iðulega biluð. Einnig er oft rafmagns-
laust eða skortur á framköllunarvökva. Man-
toux-próf er ekki framkvæmt. Því er pessi
annars hættulegi sjúkdómur sjaldan greindur
hjá börnum og pá stundum af klínísku svari
meðferðar. Að sjálfsögðu er slíkt ekki reynt
úti á heilsugæslustöðvunum.
LYF
Það er mikil reynsla að láta ólæst og óskóla-
gengið fólk fá lyf. Er nauðsynlegt að takmarka
sem mest má vera alla lyfjagjöf (sígild regla!).
Best er, ef mögulegt er, að komast af án lyfja
(ekki vinsælt) eða með eitt lyf. Ef nauðsynlegt
reynist að taka inn fleiri lyf er oft erfitt að
útskýra hvaða lyf er hvað og hversu oft á að
taka þau. Þarf ótrúlega polinmæði við að
útskýra petta og engin trygging er fyrir pví að
skilaboðin komist til skila. Þetta er nú reyndar
vandamál heima, en par er pó skráð á lyfja-
glösin hvernig taka eigi inn lyfin.
í Guinea-Bissau er algengast mikill skortur
á lyfjum. Er allur lyfjainnflutningur miðstýrð-
ur. Lyfin eru síðan til sölu í ríkislyfjaverslun-
unum eða lyfjaverslunum í einkaeign. Heilsu-
gæslustöðvarnar fá einnig ákveðinn skammt
af lyfjum á 3 mánaða fresti, 10 ampicillin
saftflöskur, 500 co-trimoxazol töflur (hér kall-
að Bactrim), 5 augnsmyrsl og svo mætti lengi
telja. Er augljóst að slíkar birgðir endast ekki